Custom lyklaborð og layouts

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
Jon1
Geek
Póstar: 843
Skráði sig: Sun 20. Jan 2008 04:25
Reputation: 15
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Custom lyklaborð og layouts

Pósturaf Jon1 » Mán 02. Des 2019 18:45

Kvöldið

ég datt nýlega inní þennan heim af custom lyklaborðum/layouts
lagaði að sjá hvort það væri einhver annar hérna sem hefði dottið ofan í þetta?

eins og er, er ég kominn með eitt 75% kbdfans og eitt cheapo ortholinear(varð að prófa) af amazon

aukalega langaði mig að tékka hvort einhver hérna notaði colemark og hvort það væri þess virði fyrir íslenskuna ?


i7 6700k @ 4.0 GHz | Custom Loop Water Cooling| AsRock z170 extreme 6+ | G.skill trident z 16 GB DDR4 @ 3200 MHz | Gigabyte Aorus GTX 1080ti| Wallmount | BeQuiet Darkpower pro 850+ | Samsung 950 pro nvme m.2 512gb + Samsung SSD 850 evo 2.5'' 2x250GB SATA3|Acer X34a - BenQ G2450 24'' | W10 x64

Skjámynd

Njall_L
Stjórnandi
Póstar: 1244
Skráði sig: Mið 29. Okt 2014 20:58
Reputation: 372
Staða: Ótengdur

Re: Custom lyklaborð og layouts

Pósturaf Njall_L » Mán 02. Des 2019 19:51

Ég hef verið að leika mér svolítið í þessum heimi

Byrjaði á því að fara í gegnum nokkra tugi, bókstaflega, af mismunandi borðum til að finna hvað mér þætti skemmtilegt og fór síðan að gera aðeins meira custom hluti.

Fyrsta "custom" borðið mitt var Kono Whitefox kit sem ég setti síðan saman með Cherry MX Blue svissum. Skemmtilegt borð sem ég endaði samt á því að selja út af hávaða í svissunum.

Er núna að bíða eftir að fá alla íhluti í eitt sem ég er að púsla saman. Verður 60% byggt á Gingham platformi með MX Silent Red svissum, Cherry stabilizers og sérprentuðum keycaps með íslensku letri frá WASD. Það notar síðan QMK firmware svo ég áætla að forrita það eftir eigin höfði til að fá inn þær functions sem mig langar í á FN layerum.

Náði mér líka í eitt Ergodox EZ um helgina og er að vinna í því að læra á það og búa til það layout sem mér finnst þæginlegt, þetta er það næsta sem ég hef komist því að læra á lyklaborð sem er ekki þetta hefðbundna. Fékk það smá notað með Kailh Box Brown svissum sem ég er ekki alveg að fíla nóg, mun sennilega skipta þeim út fyrir MX Silent Red líka og nota þetta borð í vinnunni þegar ég er búinn að ná upp skrifhraða.


Löglegt WinRAR leyfi

Skjámynd

Höfundur
Jon1
Geek
Póstar: 843
Skráði sig: Sun 20. Jan 2008 04:25
Reputation: 15
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Custom lyklaborð og layouts

Pósturaf Jon1 » Mán 02. Des 2019 22:02

Gaman að heyra að maður er ekki einn hérna á klakanum.

gingham borðin líta mjög öðruvísi út á góðan hátt. Ég væir endilega til í að heyra hvernig þér líkar við ergodox ez á endanum, mikið búinn að vera að skoða það sem möguleika fyrir mig. Saknaru ekkert örvatakka á 60% ?

qmk er alveg það sem selur svona custom ævintýri, er búinn að skoða 100 mismunandi layout sérstaklega með ortholinear borði

fyrir þá sem hafa áhuga þá eru þetta borðin mín

kbd75v2 black með zeal sakurious / gmk miami dusk caps

idobo75 coffee brown með gateron yellow /ymdk carbon blank caps

Mynd
Mynd


i7 6700k @ 4.0 GHz | Custom Loop Water Cooling| AsRock z170 extreme 6+ | G.skill trident z 16 GB DDR4 @ 3200 MHz | Gigabyte Aorus GTX 1080ti| Wallmount | BeQuiet Darkpower pro 850+ | Samsung 950 pro nvme m.2 512gb + Samsung SSD 850 evo 2.5'' 2x250GB SATA3|Acer X34a - BenQ G2450 24'' | W10 x64

Skjámynd

bjornvil
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 361
Skráði sig: Fim 24. Jan 2008 00:10
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Custom lyklaborð og layouts

Pósturaf bjornvil » Þri 03. Des 2019 00:36

Ég er að nota Input Club Kira með GMK Hyperfuse og Cherry Browns sem ég er búinn að smyrja, ég var með Outemu Sky en fannst þeir bara allt of tactile fyrir minn smekk. Hugsa að ég fari alveg í linear sviss næst. Ég fíla þetta compact full size layout sem Kira er með en á eflaust einn daginn eftir að smíða mitt eigið frá grunni... :)

Mynd

Gamla borðið mitt, KUL ES87 sem mér fannst æðislega flott líka :)

Mynd

Mynd



Skjámynd

Höfundur
Jon1
Geek
Póstar: 843
Skráði sig: Sun 20. Jan 2008 04:25
Reputation: 15
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Custom lyklaborð og layouts

Pósturaf Jon1 » Þri 03. Des 2019 14:46

damn hyperfuse lítur vel út og custom kapall líka ;D

ég mæli með að smíða það er merkilega gaman (meira að segja bara svona kit eins og kbdfans er með)

ég er að vinna í því að teikna mitt eigið 75% borð núna og ætla að hafa það annað hvort úr stáli eða POM er ekki alveg viss.
það sem ég á eftir að finna útur er að fá einhvern til að gera pcb fyrir mig þegar sú hönnun er tilbúin.


i7 6700k @ 4.0 GHz | Custom Loop Water Cooling| AsRock z170 extreme 6+ | G.skill trident z 16 GB DDR4 @ 3200 MHz | Gigabyte Aorus GTX 1080ti| Wallmount | BeQuiet Darkpower pro 850+ | Samsung 950 pro nvme m.2 512gb + Samsung SSD 850 evo 2.5'' 2x250GB SATA3|Acer X34a - BenQ G2450 24'' | W10 x64

Skjámynd

Njall_L
Stjórnandi
Póstar: 1244
Skráði sig: Mið 29. Okt 2014 20:58
Reputation: 372
Staða: Ótengdur

Re: Custom lyklaborð og layouts

Pósturaf Njall_L » Þri 03. Des 2019 15:12

Jon1 skrifaði:það sem ég á eftir að finna útur er að fá einhvern til að gera pcb fyrir mig þegar sú hönnun er tilbúin.

Hvað með að handvíra það bara? Töluvert auðveldara heldur en að hanna og fá framleitt 1stk (eða örfá) PCB


Löglegt WinRAR leyfi

Skjámynd

Höfundur
Jon1
Geek
Póstar: 843
Skráði sig: Sun 20. Jan 2008 04:25
Reputation: 15
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Custom lyklaborð og layouts

Pósturaf Jon1 » Mið 04. Des 2019 12:18

Njall_L skrifaði:
Jon1 skrifaði:það sem ég á eftir að finna útur er að fá einhvern til að gera pcb fyrir mig þegar sú hönnun er tilbúin.

Hvað með að handvíra það bara? Töluvert auðveldara heldur en að hanna og fá framleitt 1stk (eða örfá) PCB

satt, langar samt að prófa að hanna og gera pcb einhvertíma þegar ég er sáttur við virknina. væri gaman ef á endanum þetta verður nóg og flott til að jafnvel selja á geekhack


i7 6700k @ 4.0 GHz | Custom Loop Water Cooling| AsRock z170 extreme 6+ | G.skill trident z 16 GB DDR4 @ 3200 MHz | Gigabyte Aorus GTX 1080ti| Wallmount | BeQuiet Darkpower pro 850+ | Samsung 950 pro nvme m.2 512gb + Samsung SSD 850 evo 2.5'' 2x250GB SATA3|Acer X34a - BenQ G2450 24'' | W10 x64

Skjámynd

natti
Tölvutryllir
Póstar: 658
Skráði sig: Fös 10. Jan 2003 09:59
Reputation: 61
Staðsetning: 107
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Custom lyklaborð og layouts

Pósturaf natti » Fim 05. Des 2019 19:24

Ég ætla að stelast inn í þennan þráð, því ég veit lítið sem ekkert um lyklaborð, en er með spurningu.

En mig vantar lyklaborð sem er með næstumþvíþetta layout, nema að ég vill hafa "stóran" return takka og örva/píputakkann við hliðiná Z.
Ég er ekki að leitast eftir að búa e--ð til, bara kaupa something, en ég átta mig enganveginn á hvaða "layout" ég ætti að vera að googla eftir eða velja.
Og sumar vefverslanir eru bara með preview af einu layouti en svo er hægt að velja nokkur önnur í dropdown lista.

Ekki getið þið leiðbeint mér og sagt mér hvað slíkt takkalayout myndi kallast?

Mynd


Mkay.

Skjámynd

Njall_L
Stjórnandi
Póstar: 1244
Skráði sig: Mið 29. Okt 2014 20:58
Reputation: 372
Staða: Ótengdur

Re: Custom lyklaborð og layouts

Pósturaf Njall_L » Fim 05. Des 2019 19:39

natti skrifaði:Ekki getið þið leiðbeint mér og sagt mér hvað slíkt takkalayout myndi kallast?

ISO


Löglegt WinRAR leyfi