Áreiðanlegustu hörðu diskarnir?

Skjámynd

Höfundur
kusi
has spoken...
Póstar: 189
Skráði sig: Mið 29. Apr 2009 23:17
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Áreiðanlegustu hörðu diskarnir?

Pósturaf kusi » Fim 15. Ágú 2019 13:37

Eftir að hafa þjónað mér dyggilega í 5-6 ár þykir mér orðið tímabært að skipta út 2x2TB hörðu diskunum í "servernum" mínum.

Mig vantar í sjálfu sér ekkert mikið meira pláss en sýnist að "sweet spottið" sé í dag að kaupa 4TB diska.
Hugmyndin er að vera með 2x4TB diska speglaða í software RAID á Linux server.

Ég er að vandræðast með það hvað ég ætti að taka af þessum NAS diskum:
- 4 TB Seagate IronWolf
- 4 TB Toshiba N300
- 4 TB Western Digital RED

Létt "gúgl" gaf mér enga afgerandi niðurstöðu og BackBlaze listinn virðist ekki vera með þessa diska. Amazon umsagnir voru svipaðar um Seagate IronWolf og Western Digital RED en heldur neikvæðari um Toshiba N300 sem virðist samkvæmt þeim vera fremur hávær, hitna mikið og bila meira.

Eruð þið með einhverjar skoðanir eða reynslusögur af þessum diskum?

Kannski maður ætti að dreifa áhættunni og spegla saman 1x Seagate og 1x WD RED... :-k



Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3090
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 522
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanlegustu hörðu diskarnir?

Pósturaf Hjaltiatla » Fim 15. Ágú 2019 13:55

Persónulega Þá myndi ég velja WD-RED alla daga í gegnum árin hefur Seagate verið með ansi háa bilanatíðni.

edit:Ég hef átt nokkra 2-tb seagate diska sem biluðu allir á innan við 2 árum


Just do IT
  √

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6773
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 934
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanlegustu hörðu diskarnir?

Pósturaf Viktor » Fim 15. Ágú 2019 14:03

Smá Googl skilaði að WD eru með 3 ára ábyrgð en Seagate 90 daga ábyrgð.

Myndi ekki snerta Seagate diskana með 5 metra löngu priki.

https://www.seagate.com/gb/en/support/w ... -warranty/

https://support-en.wd.com/app/Warranty_Policy#group2

edit: Seagate virðast vera með 3 ára ábyrgð á Amazon, skrítið að það sé ekki jafn skýrt á síðunni þeirra og hjá WD: https://www.amazon.com/Seagate-IronWolf ... B01LOOJBQY

edit2: WTF, þegar maður opnar PDF skjalið á Amazon sem segir til um ábyrgðina þá er það 2 ár :-k Djöfull er þetta loðið.
Viðhengi
warranty.JPG
warranty.JPG (103.37 KiB) Skoðað 6147 sinnum


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

Fletch
Stjórnandi
Póstar: 1312
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 00:14
Reputation: 103
Staðsetning: MHz=MHz+1
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanlegustu hörðu diskarnir?

Pósturaf Fletch » Fim 15. Ágú 2019 14:49

sammála að forðast Seagate eins og heitan eld, allir seagate diskar sem ég hef komið nálægt hafa bilað

hef góða reynslu af HGST diskum


AMD Ryzen 7900X3D * Nvidia GTX 4090 * Asus ROG STRIX B650E-ITX * 32GB DDR5
LianLi * Seasonic Vertex1200w * Alienware 34" OLED AW3423DWF

Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6419
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 280
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanlegustu hörðu diskarnir?

Pósturaf gnarr » Fim 15. Ágú 2019 15:01



"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

DJOli
Vaktari
Póstar: 2103
Skráði sig: Fim 24. Jún 2010 01:58
Reputation: 175
Staðsetning: Heima
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanlegustu hörðu diskarnir?

Pósturaf DJOli » Fim 15. Ágú 2019 15:15

Taktu WD Red 4tb á Amazon.
Sparar grimmt ef þú tekur 4 stykki, þó svo að þú lendir í innflutningskostnaði & tollum. m.v. ódýrustu verslun landsins.


i7-11700KF|64gb(2x32gb)ddr4|1060-6gb|1tb Samsung 980 Pro nvme m.2|1tb Samsung 860 Evo sata ssd|Corsair HX1200|

Skjámynd

ArnarF
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 318
Skráði sig: Þri 04. Mar 2008 20:21
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanlegustu hörðu diskarnir?

Pósturaf ArnarF » Fös 16. Ágú 2019 13:03

Ég hef verið með 4 stk WD Red 4TB í Synology boxi núna í rúm 3 ár, ekkert vesen þannig ég klárlega mæli með þeim.

Las mig einmitt mikið til um milli framleiðenda áður en ég keypti, fannst WD Red bera af og hefur það merki sannað sig.



Skjámynd

DJOli
Vaktari
Póstar: 2103
Skráði sig: Fim 24. Jún 2010 01:58
Reputation: 175
Staðsetning: Heima
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanlegustu hörðu diskarnir?

Pósturaf DJOli » Fös 16. Ágú 2019 13:19

Gleymdi að láta dæmið fylgja, þar sem ég er sjálfur að spá í að kaupa nokkur stykki af WD RED að utan.
4x 4TB WD RED:
Computer.is: 87.600kr
Amazon: 56.791kr + 6.796kr í sendingarkostnað + 15.520kr í tolla & gjöld: 79.107kr

4x 4TB WD RED Pro:
Ófáanlegir á skerinu
Aamzon: 77.271kr + 7.842kr í sendingarkostnað + 20.770kr í tolla & gjöld: 107.944kr


i7-11700KF|64gb(2x32gb)ddr4|1060-6gb|1tb Samsung 980 Pro nvme m.2|1tb Samsung 860 Evo sata ssd|Corsair HX1200|

Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanlegustu hörðu diskarnir?

Pósturaf kiddi » Fös 16. Ágú 2019 13:37

Bestu diskarnir eru þeir sem þú skiptir út reglulega. Allir diskar eru risky, ég er sjálfur búinn að tapa WD 6TB RED og það reyndist vera hægara sagt en gert að elta alheimsábyrgðina sem átti að vera enn í gildi. Diskarnir mínir voru rétt rúmlega 2 ára og úr íslenskri ábyrgð en ennþá í "international warranty" gagnvart WD þegar ég sló inn serialnúmerin þeirra. Ég setti mig í samband við WD og þeir sögðu, sorrí, JÚ diskarnir eru í ábyrgð en NEI, enginn á Íslandi sem getur framfylgt þessari ábyrgð fyrir okkur, og þú mátt EKKI senda okkur diskinn beint heldur þarftu að koma disknum á viðurkenndan WD aðila á norðurlöndunum á eigin kostnað. Endaði með að ég sagði þeim að fokka sér eftir nokkur e-mail. En punkturinn sem ég vill koma áleiðis er, ekki treysta neinum disk - ekki einusinni þeim sem koma best út úr áreiðanleikakönnunum, í stuttu máli: aldrei treysta hörðum disk, sama hvað. Eigið afrit af öllu sem skiptir máli, helst þreföld.



Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanlegustu hörðu diskarnir?

Pósturaf kiddi » Fös 16. Ágú 2019 13:42

Svo langar mig að bæta við annarri pælingu, ef ykkur finnst gott að það séu til íslenskar tölvubúðir yfir höfuð þá skuluð þið versla af þeim en ekki Amazon, þó það muni nokkrum þúsurum. Amazon og þessar risanetverslanir eru af hinu illa, þó þið sparið örfáar krónur, og íslensku búðirnar munu á endanum drepast ef við sýnum þeim ekki stuðning. Það getur skilað sér fljótt þegar maður þarf á ábyrgð og þjónustu að halda.



Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3090
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 522
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanlegustu hörðu diskarnir?

Pósturaf Hjaltiatla » Fös 16. Ágú 2019 13:56

kiddi skrifaði:En punkturinn sem ég vill koma áleiðis er, ekki treysta neinum disk - ekki einusinni þeim sem koma best út úr áreiðanleikakönnunum, í stuttu máli: aldrei treysta hörðum disk, sama hvað. Eigið afrit af öllu sem skiptir máli, helst þreföld.



Það er ákveðin "Gullna regla" í server heiminum að skipta út diskum eftir 5 ár af notkun og það eru líka fyrirtæki sem skipta diskum út eftir tvo ár bara til að vera safe (ef uppitímakröfur eru mjög miklar) . Btw disk fault tolarance í Server uppsetningu kemur ekki í stað fyrir Backup :happy


Just do IT
  √

Skjámynd

ArnarF
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 318
Skráði sig: Þri 04. Mar 2008 20:21
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanlegustu hörðu diskarnir?

Pósturaf ArnarF » Fös 16. Ágú 2019 16:31

kiddi skrifaði:Bestu diskarnir eru þeir sem þú skiptir út reglulega. Allir diskar eru risky, ég er sjálfur búinn að tapa WD 6TB RED og það reyndist vera hægara sagt en gert að elta alheimsábyrgðina sem átti að vera enn í gildi. Diskarnir mínir voru rétt rúmlega 2 ára og úr íslenskri ábyrgð en ennþá í "international warranty" gagnvart WD þegar ég sló inn serialnúmerin þeirra. Ég setti mig í samband við WD og þeir sögðu, sorrí, JÚ diskarnir eru í ábyrgð en NEI, enginn á Íslandi sem getur framfylgt þessari ábyrgð fyrir okkur, og þú mátt EKKI senda okkur diskinn beint heldur þarftu að koma disknum á viðurkenndan WD aðila á norðurlöndunum á eigin kostnað. Endaði með að ég sagði þeim að fokka sér eftir nokkur e-mail. En punkturinn sem ég vill koma áleiðis er, ekki treysta neinum disk - ekki einusinni þeim sem koma best út úr áreiðanleikakönnunum, í stuttu máli: aldrei treysta hörðum disk, sama hvað. Eigið afrit af öllu sem skiptir máli, helst þreföld.


Klárlega þetta, ég er að keyra þessa 4x WD Red diska mína á Synology Hybrid Raid með 2 diska bilunaröryggi og fæ því í stað einungis rúm 8 TB í geymslu af 16 TB en aftur á móti er ég öruggur ef 1 eða 2 diskar klikka.

Myndi persónuleg aldrei treysta einum eða tveim diskum sama hvaða merki þeir eru, finnst stafræn gögn sem eru uppsöfnuð af ljósmyndum og upptökum af fjölskyldu og vinum í gegnum 10+ ára tímabil vera of verðmæt.



Skjámynd

Hnykill
Of mikill frítími
Póstar: 1863
Skráði sig: Þri 09. Des 2008 07:12
Reputation: 85
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanlegustu hörðu diskarnir?

Pósturaf Hnykill » Fös 16. Ágú 2019 18:41

er orðinn dálítð þreyttur á Seagate diskum. 3-4 ár og svo hrynur þetta bara. Western digital eru fínir.. en þessa daga held ég mig bara við Samsung M.2


Corsair Obsidian 450D - Corsair RM850x 850W - Gigabyte Z490 Gaming X - Intel i5 10600K @ 5Ghz - Corsair H115i Pro - Asus 5700 XT OC 8GB - 16GB DDR4 3600MHz - 1 TB ADATA XPG SX8200 Pro - Windows 10.

Skjámynd

bits
Fiktari
Póstar: 54
Skráði sig: Þri 21. Maí 2019 16:15
Reputation: 25
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanlegustu hörðu diskarnir?

Pósturaf bits » Lau 17. Ágú 2019 13:39

Ég myndi velja Western Digital, hef átt fleiri tugi diska gegnum árin og WD hafa verið þeir sem klikka minnst. Það hafa komið módel af Seagate diskum sem hafa verið góð en yfir allt þá hafa Seagate verið að bila meira hjá mér. Og eins og staðan er með Seagate í dag (Rosewood ruslið frá þeim) þá myndi ég forðast þá eins og heitann eldinn :)



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7013
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 986
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanlegustu hörðu diskarnir?

Pósturaf rapport » Mið 13. Maí 2020 09:41




Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16258
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1983
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Áreiðanlegustu hörðu diskarnir?

Pósturaf GuðjónR » Mið 13. Maí 2020 09:49

rapport skrifaði:https://www.backblaze.com/blog/backblaze-hard-drive-stats-q1-2020/

HDD's eru augljóslega farnir að standa sig betur en þeir gerðu.
Lítill munur á milli framleiðanda.



Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3090
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 522
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanlegustu hörðu diskarnir?

Pósturaf Hjaltiatla » Mið 13. Maí 2020 09:55

Jahá. Það hefur ýmislegt breyst. Í dag myndi ég eflaust kaupa seagate ironwolf pro hdd en ekki WD-RED ef ég væri að fara versla mér diska fyrir NAS.
HGST eru mjög stabílir en maður reynir að fá sem mest fyrir aurinn.
Þoli ekki þegar seljendur eru að reyna að blekkja mann (þó svo að diskar reynist vel).
https://arstechnica.com/gadgets/2020/04/caveat-emptor-smr-disks-are-being-submarined-into-unexpected-channels/


Just do IT
  √

Skjámynd

olihar
spjallið.is
Póstar: 420
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 13:23
Reputation: 85
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanlegustu hörðu diskarnir?

Pósturaf olihar » Mið 13. Maí 2020 14:38

Ef þið viljið spara ekki kaupa IronWolf Pro heldur Exos diskana getur munað heilmikið. Exos eru bara auglýstir á enterprise markaði en ekkert mál að kaupa.



Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3090
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 522
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanlegustu hörðu diskarnir?

Pósturaf Hjaltiatla » Mið 13. Maí 2020 15:02

olihar skrifaði:Ef þið viljið spara ekki kaupa IronWolf Pro heldur Exos diskana getur munað heilmikið. Exos eru bara auglýstir á enterprise markaði en ekkert mál að kaupa.

Áhugavert, eru þeir nýlega búnir að droppa í verði ? . Las ekki fyrir svo löngu inná r/datahoarder að þeir voru dýrari en Ironwolf pro.

Greinilega ekki:
https://www.amazon.com/dp/B01IA9GU0Q/ref=twister_B071JTHPZY?_encoding=UTF8&psc=1

https://www.amazon.com/Seagate-Enterprise-Capacity-Cache-Internal-ST10000NM0016/dp/B01DSRHFOK/ref=sr_1_4?dchild=1&keywords=seagate+exos+10tb&qid=1589381884&s=electronics&sr=1-4

Spec sheet samanburður:
https://www.seagate.com/www-content/datasheets/pdfs/ent-cap-3-5-hdd-10tb-channelDS1863-5C-1608US-en_US.pdf
https://www.seagate.com/www-content/datasheets/pdfs/ironwolf-14tb-DS1904-10-1807US-en_US.pdf
Síðast breytt af Hjaltiatla á Mið 13. Maí 2020 15:09, breytt samtals 1 sinni.


Just do IT
  √

Skjámynd

olihar
spjallið.is
Póstar: 420
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 13:23
Reputation: 85
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanlegustu hörðu diskarnir?

Pósturaf olihar » Mið 13. Maí 2020 15:28

Hjaltiatla skrifaði:
olihar skrifaði:Ef þið viljið spara ekki kaupa IronWolf Pro heldur Exos diskana getur munað heilmikið. Exos eru bara auglýstir á enterprise markaði en ekkert mál að kaupa.

Áhugavert, eru þeir nýlega búnir að droppa í verði ? . Las ekki fyrir svo löngu inná r/datahoarder að þeir voru dýrari en Ironwolf pro.

Greinilega ekki:
https://www.amazon.com/dp/B01IA9GU0Q/ref=twister_B071JTHPZY?_encoding=UTF8&psc=1

https://www.amazon.com/Seagate-Enterprise-Capacity-Cache-Internal-ST10000NM0016/dp/B01DSRHFOK/ref=sr_1_4?dchild=1&keywords=seagate+exos+10tb&qid=1589381884&s=electronics&sr=1-4

Spec sheet samanburður:
https://www.seagate.com/www-content/datasheets/pdfs/ent-cap-3-5-hdd-10tb-channelDS1863-5C-1608US-en_US.pdf
https://www.seagate.com/www-content/datasheets/pdfs/ironwolf-14tb-DS1904-10-1807US-en_US.pdf


EXOS hafa alltaf verið ódýrari, allavegana í bulk.

Er með 16 diska stæðu af ST12000NM0007 við hliðiná mér, heyri varla í henni. Reynst mér mjög vel.

https://www.seagate.com/www-content/dat ... -en_US.pdf
Síðast breytt af olihar á Mið 13. Maí 2020 15:31, breytt samtals 2 sinnum.



Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3090
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 522
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanlegustu hörðu diskarnir?

Pósturaf Hjaltiatla » Mið 13. Maí 2020 16:15

olihar skrifaði:
Hjaltiatla skrifaði:
olihar skrifaði:Ef þið viljið spara ekki kaupa IronWolf Pro heldur Exos diskana getur munað heilmikið. Exos eru bara auglýstir á enterprise markaði en ekkert mál að kaupa.

Áhugavert, eru þeir nýlega búnir að droppa í verði ? . Las ekki fyrir svo löngu inná r/datahoarder að þeir voru dýrari en Ironwolf pro.

Greinilega ekki:
https://www.amazon.com/dp/B01IA9GU0Q/ref=twister_B071JTHPZY?_encoding=UTF8&psc=1

https://www.amazon.com/Seagate-Enterprise-Capacity-Cache-Internal-ST10000NM0016/dp/B01DSRHFOK/ref=sr_1_4?dchild=1&keywords=seagate+exos+10tb&qid=1589381884&s=electronics&sr=1-4

Spec sheet samanburður:
https://www.seagate.com/www-content/datasheets/pdfs/ent-cap-3-5-hdd-10tb-channelDS1863-5C-1608US-en_US.pdf
https://www.seagate.com/www-content/datasheets/pdfs/ironwolf-14tb-DS1904-10-1807US-en_US.pdf


EXOS hafa alltaf verið ódýrari, allavegana í bulk.

Er með 16 diska stæðu af ST12000NM0007 við hliðiná mér, heyri varla í henni. Reynst mér mjög vel.

https://www.seagate.com/www-content/dat ... -en_US.pdf


Nimble ?
Minnir að ein diskastæða sem ég kom nálagt hafi verið að nota 11 X 1TB exos diska sem hafi verið hugsað fyrir VM umhverfi ?


Just do IT
  √


nonesenze
Kerfisstjóri
Póstar: 1217
Skráði sig: Fim 10. Des 2009 17:06
Reputation: 98
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanlegustu hörðu diskarnir?

Pósturaf nonesenze » Mið 13. Maí 2020 16:49

wd red voru fyrir valinu hjá mér bara útaf ég hef geta reyst þeim í gegnum tíðina, mest allt annað klikkað á einhverjum tímapunkti, vona að wd haldi áfram að vera góðir hjá mér, maður veit aldrei með harða diska. veit samt ekkert hvað ég á að gera við allt þetta pláss, 2x12tb
þetta voru samt white label en það sem ég hef lesið þá er þetta nákvæmlega sömu diskarnir, ég þurti ekkert 3.3v neitt til að tengja í tölvuna


CPU: Intel i9-14900KS
Móðurborð: Asus z790 apex encore
Minni: G.skill 2x16gb 7600mhz cl36
Skjákort: RTX 4090 rog strix
Turn psu: lian li o11d xl rog, Bequiet straight 1200w13xQL120
Kæling: EK CR360 direct die AIO
SSD: Samsung SSD 980 PRO 1TB
HDD: WD 12TB
Skjár: asus pg32uqr
Lyklaborð Mús heyrnatól : Corsair k100 rgb, corsair Virtuos