Apple Pay komið á klakann

Allt utan efnis

Höfundur
psteinn
Ofur-Nörd
Póstar: 247
Skráði sig: Lau 01. Okt 2011 19:09
Reputation: 5
Staðsetning: Suður póllinn
Staða: Ótengdur

Apple Pay komið á klakann

Pósturaf psteinn » Mið 08. Maí 2019 09:44

Djöfulsins veisla er þetta! :happy
Nú er þetta loksins komið, aðeins eftir fimm ára bið.
Landsbankinn og Arion eru að bjóða upp á þetta en Íslandsbankinn sagðist bætast við í hópinn eftir smá.

Hvað finnst mönnum?


Apple>Microsoft

Skjámynd

Jón Ragnar
vélbúnaðarpervert
Póstar: 973
Skráði sig: Lau 06. Des 2008 12:28
Reputation: 173
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Apple Pay komið á klakann

Pósturaf Jón Ragnar » Mið 08. Maí 2019 09:47

Virkilega gott dæmi!



CCNA Collaboration
CCNA Voice
CCNA Video

Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3090
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 522
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Apple Pay komið á klakann

Pósturaf Hjaltiatla » Mið 08. Maí 2019 10:05

Ef einhver ætlar að reyna að greiða mér með Apple úri þá getur sá aðili gleymt því :sleezyjoe


Just do IT
  √

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16258
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1983
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Apple Pay komið á klakann

Pósturaf GuðjónR » Mið 08. Maí 2019 11:57

Ég veit ekki hvað mér finnst þar sem ég er ekki búinn að prófa, mér skilst að posarnir skanni símann? Þá er þetta væntanlega þráðlaus greiðsla? Er þá 5000 kr. limit á greiðslu?
Þið sem hafið prófað, kostir og gallar?




GunniH
Græningi
Póstar: 37
Skráði sig: Mið 07. Apr 2010 16:40
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Apple Pay komið á klakann

Pósturaf GunniH » Mið 08. Maí 2019 12:57

Ég hafði sömu áhyggjur Guðjón, og hafði því samband við Arion.

Þetta er ekki eins og snertilausu greiðslurnar sem eru á kortunum, þ.e. það er ekkert limit á greiðslu né þarf að nota kortið sjálft á X færsla fresti.

Er ekki búinn að prófa sjálfur en ég sé bara kosti!



Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Apple Pay komið á klakann

Pósturaf kiddi » Mið 08. Maí 2019 13:23

Ég borgaði fyrir Wok-on núðlur í hádeginu í dag með símanum mínum (iPhone7plus) og það var bara geggjað. Ég þurfti að setja þumalinn (fingrascan) á símann samhliða því að leggja símann ofan á þennan standard posa sem allir eru með í dag. Þetta svínvirkaði og ég fékk staðfestingu/kvittun inn á Wallet-ið í símanum samstundis. Þetta er bara snilld! Nú getur maður bjargað sér þegar maður á það til að gleyma veskinu sínu heima.
Viðhengi
59688650_318878008807528_4519747183985033216_n.jpg
59688650_318878008807528_4519747183985033216_n.jpg (74.14 KiB) Skoðað 4432 sinnum




JReykdal
Tölvutryllir
Póstar: 695
Skráði sig: Lau 04. Des 2004 18:59
Reputation: 154
Staða: Ótengdur

Re: Apple Pay komið á klakann

Pósturaf JReykdal » Mið 08. Maí 2019 13:31

Þetta var nú komið í Android hjá Íslandsbanka án þess að hafa eplabragð af því.


Vinsamlegast athugið: Skoðanir mínar sem birtast hér eru mínar og mínar einar en ekki
vinnuveitenda minna,vina og vandamanna, gæludýra og húsgagna nema annað sé tekið fram.

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6773
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 934
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Apple Pay komið á klakann

Pósturaf Viktor » Mið 08. Maí 2019 15:01

Samhryggist þeim sem borga 1900kr fyrir núðlur, en þetta er snilld!

Vonandi fer maður að geta hent veskinu fljótlega.


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB


Höfundur
psteinn
Ofur-Nörd
Póstar: 247
Skráði sig: Lau 01. Okt 2011 19:09
Reputation: 5
Staðsetning: Suður póllinn
Staða: Ótengdur

Re: Apple Pay komið á klakann

Pósturaf psteinn » Mið 08. Maí 2019 15:44

Hvað þarf nú að gerast til þess að Apple Music komi líka? :-k


Apple>Microsoft


Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Apple Pay komið á klakann

Pósturaf Tbot » Mið 08. Maí 2019 15:53

Sallarólegur skrifaði:Samhryggist þeim sem borga 1900kr fyrir núðlur, en þetta er snilld!

Vonandi fer maður að geta hent veskinu fljótlega.


Þetta hafa verið gullhúðaðar núðlur sem kallinn hefur splæst í.



Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3838
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 265
Staða: Ótengdur

Re: Apple Pay komið á klakann

Pósturaf Tiger » Mið 08. Maí 2019 17:25

Geggjað !!


Mynd

Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3838
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 265
Staða: Ótengdur

Re: Apple Pay komið á klakann

Pósturaf Tiger » Mið 08. Maí 2019 17:26

Hjaltiatla skrifaði:Ef einhver ætlar að reyna að greiða mér með Apple úri þá getur sá aðili gleymt því :sleezyjoe


Why?


Mynd

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6773
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 934
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Apple Pay komið á klakann

Pósturaf Viktor » Mið 08. Maí 2019 17:29

GuðjónR skrifaði:Ég veit ekki hvað mér finnst þar sem ég er ekki búinn að prófa, mér skilst að posarnir skanni símann? Þá er þetta væntanlega þráðlaus greiðsla? Er þá 5000 kr. limit á greiðslu?
Þið sem hafið prófað, kostir og gallar?


Eru takmörk á því hvað ég geitt greitt háa fjárhæð með Apple Pay?
Nei, það eru engin fjarhæðarmörk á greiðslum með snjalltækjum, önnur en heimildin á kortinu.


https://www.landsbankinn.is/einstakling ... og-svarad/


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB


Televisionary
Tölvutryllir
Póstar: 654
Skráði sig: Þri 17. Feb 2009 15:26
Reputation: 107
Staða: Ótengdur

Re: Apple Pay komið á klakann

Pósturaf Televisionary » Mið 08. Maí 2019 18:04

Gerist það ekki sjálfkrafa þegar þú kaupir mikið af svona núðlum þá þarf hvorki veski eða dýrt Apple tæki.

Sallarólegur skrifaði:Samhryggist þeim sem borga 1900kr fyrir núðlur, en þetta er snilld!

Vonandi fer maður að geta hent veskinu fljótlega.




kjartanbj
Tölvutryllir
Póstar: 677
Skráði sig: Fim 24. Sep 2009 12:42
Reputation: 128
Staða: Ótengdur

Re: Apple Pay komið á klakann

Pósturaf kjartanbj » Mið 08. Maí 2019 20:29

Búin að vera nota símann minn lengi til að borga með, virðist ekki vera nein takmörk á upphæð , það er mikið öruggari greiðsluleið að nota símann heldur en snertilaust kort, síminn þarf að vera með ákveðin öryggisatriði í lagi til þess að það sé hægt að greiða með honum(android) þarft að hafa pin code á símanum en getur aflæst með td fingrafari áður en maður borgar , leið og maður setur inn td unlock með bluetooth device nálægt þá hættir snertilausi greiðslumöguleikinn að virka , ég er með bæði debet og kredit kortið mitt og get bara skipt á milli eftir því með hvoru ég ætla greiða



Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3090
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 522
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Apple Pay komið á klakann

Pósturaf Hjaltiatla » Mið 08. Maí 2019 20:51

Tiger skrifaði:
Hjaltiatla skrifaði:Ef einhver ætlar að reyna að greiða mér með Apple úri þá getur sá aðili gleymt því :sleezyjoe


Why?


Því við hin "Dauðlegu" höfum ekki tíma fyrir rugl og notum bara símann eins og hinar mannskepnunar.


Just do IT
  √