delidding 7700k er það worth it?


Höfundur
sigurgeir5
Nýliði
Póstar: 20
Skráði sig: Fim 07. Feb 2019 22:04
Reputation: 0
Staðsetning: Borgarnes
Staða: Ótengdur

delidding 7700k er það worth it?

Pósturaf sigurgeir5 » Mán 18. Feb 2019 10:26

Er með i7 7700k overclockaður 4,9 á stock voltage, hann fer uppí sikra 85 c°max. Annað, get ég náð hærra overclock með því að hækka voltage. Er með 2400mhz ram 8gb er það að halda mér einhvað niðri?

Er með corsair h100i v2 kælingu




pepsico
Bannaður
Póstar: 714
Skráði sig: Mán 20. Apr 2015 17:30
Reputation: 174
Staða: Ótengdur

Re: delidding 7700k er það worth it?

Pósturaf pepsico » Mán 18. Feb 2019 11:12

Mér fannst það vel þess virði. Er að keyra minn á 4.8 GHz og get samt haft alveg hljóðlátar viftustillingar þ.e. örgjörva og kassavifturnar fara ekkert yfir lágmörkin sín og örgjörvinn er í ~75°C við vinnslu þrátt fyrir það. Get keyrt 5.0 GHz núna á <70°C ef ég set örgjörvaviftuna í botn--og auðvitað hærra hitastigi við eðlilegri stillingu. Almennt er reynsla fólks að það lækkar um um og yfir 20°C. Það besta við að delidda 7700K er að það er ekkert fyrir manni á chippinu og þeir því kjörnir í það að nota bara rakvélarblað við þetta.

(Hávær tónlist) https://www.youtube.com/watch?v=BeHpibT-yHY getur séð hérna hvernig þetta er gert og hversu auðvelt þetta er. Ég mæli sterklega með því að teypa rakvélarblaðið (verður að vera þunnt blað) með eftirfarandi mynstri í mörgum lögum https://i.imgur.com/EtsvbJ9.png til að lágmarka líkurnar á því að þér takist að ýta blaðinu óvart alla leiðina inn að örgjörvanum sjálfum, teipið myndi þá klessa á IHSinn og blaðið ekki komast nógu langt inn til að snerta chippið. Svo er sniðugt að horfa á mörg myndbönd af fólki að beita málmkremi áður en þú lætur þannig á. Ef þú ert ekki að skipta yfir í málmkrem þá mæli ég alls ekki með þessu ferli því hitatölurnar lækka víst bara um nokkrar gráður þó maður láti allra bestu hefðbundnu hitaleiðandi kremin á.

Það er erfitt að spá fyrir um það nákvæmlega hvað er hægt með hverjum einasta örgjörva því þeir eru allir öðruvísi úr framleiðsluferlinu, en yfirleitt ættirðu að geta keyrt örgjörva sem nær 4.9 GHz í stock voltage á 5.0-5.2 GHz á hærra voltagei ef það eru engin hitavandamál.



Skjámynd

ZoRzEr
/dev/null
Póstar: 1403
Skráði sig: Þri 28. Apr 2009 12:11
Reputation: 41
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: delidding 7700k er það worth it?

Pósturaf ZoRzEr » Mán 18. Feb 2019 18:38

Ég segi já.

Keypti einn 7700k af Silicon Lottery 2017 og gæti ekki verið ánægðari. Hann var delided og confirmed að keyra 5.1Ghz af þeim. Er með open loop vatnskælingu og hef keyrt hann undervolted núna frá síðasta sumri. Er með hann 1.15v @ 4,7Ghz. Hann verður aldrei heitari en 58°c (hottest core) í leikjum og ég get keyrt allar viftur á 550 - 750 rpm (Noctua). Vélin er svo gott sem hljóðlaus fyrir utan D5 dæluna fyrir vatnið.

Ég var með annan 7700k sem ekki var delidded á undan þessum og það var svakalegur munur á milli kjarna. Hitamunurinn gat verið allt frá 20°c á milli core 0 og core 3 sem dæmi. Eftir að ég fékk þennan er sjaldnast nema 2-4 °c munur á milli kjarna.

Screenshot af CPUID HWmonitor, var að spila Anthem í nokkra tíma í dag:
Mynd


13700K | Asus Z790 Prime| 32GB DDR5 | Zotac 4080 | 2TB 960 Pro m.2 | Corsair AX1200i | Fractal North | LG 34GN850-B
Synology DS1817+ | 20TB
USG | US-8-60W | nanoHD | Flex Mini


pepsico
Bannaður
Póstar: 714
Skráði sig: Mán 20. Apr 2015 17:30
Reputation: 174
Staða: Ótengdur

Re: delidding 7700k er það worth it?

Pósturaf pepsico » Mán 18. Feb 2019 19:01

Bara svo það sé alveg á hreinu: Þegar fólk segir delid er það svo til alltaf að tala um að skipta út hitaleiðandi kreminu fyrir liquid metal, það er lykilatriðið í þessu. Það er alls ekki þess virði að fara í gegnum þetta ferli bara til að endurnýja/skipta út með öðru hitaleiðandi kremi sem er ekki fljótandi málmur. Ágóðinn fæst af því að þetta örlitla lykilsvæði beint ofan á chippinu verður ekki lengur flöskuhálsað af "lélegu" kremi sem stendur á milli örgjörvans og "risastóru" IHS plötunnar ofan á honum sem örgjörvakælingarnar kæla.




andriki
spjallið.is
Póstar: 472
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 00:31
Reputation: 27
Staða: Ótengdur

Re: delidding 7700k er það worth it?

Pósturaf andriki » Mán 18. Feb 2019 23:38

á til delid tool og liquid metal ef þú vilt ekki nota rakvélarblaðs aðferðina, og já myndi líka 100% mæla með þessu er með 8700k sjálfur lækaði hita tolurnar um á milli 15-20°c þrátt fyrir að vera með custom vatnkælingu, og er búin að delidda um 10 missmunandi cpu svipaðar niðurstöður á þeim öllum,(4770k-4790k-6700k-7700k-8700k) búin að prófa alla vegna alla þessa



Skjámynd

Hnykill
Of mikill frítími
Póstar: 1863
Skráði sig: Þri 09. Des 2008 07:12
Reputation: 85
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: delidding 7700k er það worth it?

Pósturaf Hnykill » Þri 19. Feb 2019 07:13

Já þetta er vel þess virði til að lækka hitann töluvert.. gerðu þetta bara vel og vandaðu þig. delid tool væri best ef þú tímir að splæsa í það. en þú átt eftir að sjá mikla hitalækkun. ég er alltaf jafn hissa á Intel með allann sinn pening og gróða að nota svona sloppy aðferð á örgjörvana sína.. þetta er til skammar hjá þeim.. eru líklegast að spara eitthvað með því að nota þessa aðferð í staðinn fyrir soldered tim. það er margsinnis búið að reyna fá þá til að gera þetta betur en það virðist ekert komast inní hausinn á þeim. því miður :/


Corsair Obsidian 450D - Corsair RM850x 850W - Gigabyte Z490 Gaming X - Intel i5 10600K @ 5Ghz - Corsair H115i Pro - Asus 5700 XT OC 8GB - 16GB DDR4 3600MHz - 1 TB ADATA XPG SX8200 Pro - Windows 10.


pepsico
Bannaður
Póstar: 714
Skráði sig: Mán 20. Apr 2015 17:30
Reputation: 174
Staða: Ótengdur

Re: delidding 7700k er það worth it?

Pósturaf pepsico » Þri 19. Feb 2019 16:18

TIM á nýju 9th gen örgjörvunum (9xxx) er soldered.




andriki
spjallið.is
Póstar: 472
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 00:31
Reputation: 27
Staða: Ótengdur

Re: delidding 7700k er það worth it?

Pósturaf andriki » Þri 19. Feb 2019 21:48

pepsico skrifaði:TIM á nýju 9th gen örgjörvunum (9xxx) er soldered.

bara á 9900k ekkk hinum




pepsico
Bannaður
Póstar: 714
Skráði sig: Mán 20. Apr 2015 17:30
Reputation: 174
Staða: Ótengdur

Re: delidding 7700k er það worth it?

Pósturaf pepsico » Þri 19. Feb 2019 23:48

Það er soldered TIM á öllum nýju 9th gen örgjörvunum sem ég veit af. i9-9900K, i7-9700K, og i5-9600K eru allir með soldered TIM. Ef það koma fleiri þá veit ég ekki neitt um það.