Hvaða benchmark-i á maður mest að taka mark á


Höfundur
hahallur
Staða: Ótengdur

Hvaða benchmark-i á maður mest að taka mark á

Pósturaf hahallur » Mán 22. Nóv 2004 17:36

Ég var að spá hvaða benchmark væri best til þess að sjá getu tölvunnar aukast.

3D mark 2001 hefur verið sagt best við mig en þegar maður er kominn með Direct X 9 getur maður ekki verið að taka mark á því.
Ég sá að það var ekki rosalegur munur á R.9800 Pro og X800 Pro því X800 er direct X 9 og þetta benchmark er ekki að nota afl kortsins til fulls.

3D mark 2005 og 3D mark 2003 eru sögð nær eingöngu GPU og þess vegna voða lítið að marka þau.

Vantar ekki benchmark sem er Direct X 9 sem er eins og 3D mark 2001 eða er ég allveg að rugla.

En annars, hvaða test á maður hellst að nota til að sjá afkastamun.
???




CraZy
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1694
Skráði sig: Þri 02. Des 2003 15:44
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Pósturaf CraZy » Mán 22. Nóv 2004 18:35

er ekki hægt að nota PC mark?



Skjámynd

Stutturdreki
Of mikill frítími
Póstar: 1711
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Reputation: 42
Staða: Tengdur

Pósturaf Stutturdreki » Mán 22. Nóv 2004 20:09

ATI Radeon 9800 pro er directx9 'hæft' eða hvernig maður á að orða það.

Það er örugglega lítill munur á 9800 og x800 í 3DMark 2001 en í 3DMark 05 er hann örugglega orðinn meiri.

Hvað ertu annars að velta þér upp úr skjákortum og directx þegar þú ert að benchmarka tölvuna í heild?

Var sjálfur að leita að CPU benchmark forritum fyrir löngu, besta sem ég fann var PCMark. Síðan er hægt að nota Super PI sem einhverjir hafa verið að pósta á Benchmarks og svo er hægt að nota Prime95 sem benchmark..

Prófaði helling af allskonar forritum sem mér fannst ekki virka alltof vel og lagði þau þar af leiðandi ekki á minnið..




einarsig
Gúrú
Póstar: 511
Skráði sig: Fös 18. Jún 2004 22:18
Reputation: 0
Staðsetning: 113 rvk
Staða: Ótengdur

Pósturaf einarsig » Mán 22. Nóv 2004 20:21

minnir að ég hafi lesið að ´gaurarnir sem bjuggu til 3dmark05 hafi ákveðið að láta cpu spilla svolítið inní þar sem að 3dmark03 var næstum bara einblínt á GPU.




Höfundur
hahallur
Staða: Ótengdur

Pósturaf hahallur » Mán 22. Nóv 2004 20:39

Ég held að 3D mark 2001 sé besta overall test-ið.
Annars þyrfti að gefa út útgáfu af því sem nýtir betur þessi nýju öflugu kort.

3D mark 2005 gerir það fyllilega en það notar cpu svo lítið.



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Mán 22. Nóv 2004 21:34

Hmm, 3D mark......
Er þetta ekki hugsað sem GPU benchmark, og þessvegna væri ekki sniðugt að láta örran koma of mikið inní þetta? Frekar nota önnur test í það.




Höfundur
hahallur
Staða: Ótengdur

Pósturaf hahallur » Mán 22. Nóv 2004 21:37

Ég held að það sé bara best að taka öll þessi test.
Runna þau á gömlu tölvunni, geyma info um scrore.
Og svo þegar nýja AMD 64 3500 kemur í hús keyra öll aftur og sjá muninn.

Taka svo tölvuna í o.c. og sjá muninn
Það væri gaman.



Skjámynd

Stutturdreki
Of mikill frítími
Póstar: 1711
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Reputation: 42
Staða: Tengdur

Pósturaf Stutturdreki » Þri 23. Nóv 2004 20:28

hahallur skrifaði:Ég held að 3D mark 2001 sé besta overall test-ið.
Annars þyrfti að gefa út útgáfu af því sem nýtir betur þessi nýju öflugu kort...


Hmm.. Sko.. 3DMark 03 er nýrri og öflugri útgáfa af 3DMark 2001.. og 3DMark 05 er nýrri og öflugri útgáfa af 3DMark 03 :)

3DMark er gert til að mæla grafík afköst..

Og, held að planið hjá þeim sem búa 3DMark til sé að í hvert skipti sem einhver fer að nálgast 15000 stig byrja þeir að setja saman nýja útgáfu.



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6590
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 363
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Þri 23. Nóv 2004 22:20

3d mark er að benchmarka hvernig tölvum gengur í nýjustu tölvuleikjunum og þeim sem eiga eftir að koma á næstunni. afhvejru ætti það að prófa eitthvað annað.

það væri frekar asnalegt að vera að reyna að steypa saman forriti sem væri að benchmarka tölvuleiki og forrit.. svona álíka og að hafa excel benchmark og hl2 benchmark í sama forriti.


"Give what you can, take what you need."