myndvinnslu tölva


Höfundur
IM666
Græningi
Póstar: 35
Skráði sig: Fim 12. Apr 2018 20:24
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

myndvinnslu tölva

Pósturaf IM666 » Fim 12. Apr 2018 20:32

Góða kvöldið
langaði að ath hvort einhver geti gefið mér smá ráðleggingu í sambandi við tölvukaup, mig vantar tölvu til að nota aðalega í photoshop myndvinnslu, þannig að skjárinn verður að vera þokkalega góður og hún þarf að ráða vel við photoshoppið.
er búin að vera að skoða þessa , vil helst hafa hana svona með tölvuna sjálfa í skjánum og stórann skjá, en já spurningin mín er semagt bara sú hvort þetta væri þokkaleg tölva í það eða ætti ég að skoða eitthvað öflugra :P ( er ekki að skilja þetta tæknimál nógu vel til að vita hvort skjákortið sé gott) og er i5 nóg eða þyrfti hún helst að vera i7 ?(vil samt ekki fara í mikið dýrari vél)
https://www.tl.is/product/aspire-u27-880-aio-i5-skjatolva-m-8gb-minni-og-256gb-ssd
bestu kveðjur IM :japsmile




pepsico
Bannaður
Póstar: 714
Skráði sig: Mán 20. Apr 2015 17:30
Reputation: 174
Staða: Ótengdur

Re: myndvinnslu tölva

Pósturaf pepsico » Fim 12. Apr 2018 21:23

Ert að fórna ansi miklum pening m.v. það sem þú ert að fá til baka í vinnslugetu með því að kaupa svona skjátölvu.
Getur fengið mun betri tölvu ásamt mun betri skjá á sama pening. Þá meina ég mun betri.
Turn með t.d. Intel i3-8100 og öllum hinum íhlutunum jafn góðum eða betri er svo til tvöfalt öflugri og kostar sem dæmi 118.000 frá Tölvutækni.
Það stendur ekkert hvernig 27" 1920x1080 skjár þetta er en mig grunar að þetta sé ígildi 25.000 króna skjás og Tölvulistinn selur 27" 1920x1080 skjá á 25.000 til að gefa þér hugmynd um hvað þú ert að borga mikið aukalega fyrir að hafa þetta skjátölvu.

Ert að borga 27.000 krónum meira fyrir tölvu sem er helmingi aflminni til að vera með skjátölvu.
Í staðinn gætirðu verið með annað hvort talsvert betri skjá, nú eða skjákort til að gera allt liprara.



Skjámynd

Zorglub
spjallið.is
Póstar: 415
Skráði sig: Mið 16. Jan 2008 12:42
Reputation: 41
Staðsetning: Nokkuð góð!
Staða: Ótengdur

Re: myndvinnslu tölva

Pósturaf Zorglub » Fim 12. Apr 2018 21:28

Menn leggja mjög mismunandi merkingu í hugtakið myndvinnsla og hvað afkastagetan þarf að vera mikil, þú kannski finnur ekki mikinn mun á því að vinna 5 myndir, en ef við erum að tala um hundruði eða þúsundir mynda þá er hver sek í töf svakalega fljót að telja.
Eins er mismunandi hvað menn leggja mikla áherslu á að litir séu réttir uppá prent eða sölu, maður vill skjá sem sýnir sömu liti/birtu óháð sjónarhorni svo maður sjái í raun hvað maður er að gera. Þetta er ennþá mikilvægara á 27+ skjám
Svo þarf alltaf utanáliggjandi diskalausnir með svona græjum ef gagnamagnið er eitthvað.

Þannig að þessi tölva færi ekki á innkaupalistann minn, en það merkir ekki að hún geti ekki virkað fyrir þig.


Gigabyte Z790 Aorus Master | I9 14900K | Corsair Vengeance 64GB | Asus TUF 3080 OC | Samsung 990 Pro | Corsair AX 860i | Noctua NH-D15


Höfundur
IM666
Græningi
Póstar: 35
Skráði sig: Fim 12. Apr 2018 20:24
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: myndvinnslu tölva

Pósturaf IM666 » Fim 12. Apr 2018 21:35

takk fyrir svörin, og já ég legg einmitt mikla áherslu á að litir séu réttir í skjá. en hvað mynduð þið segja að ég ætti að leitast eftir í tölvu/skjá ?



Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: myndvinnslu tölva

Pósturaf kiddi » Fim 12. Apr 2018 22:17

Hljómar eins og iMac sé málið fyrir þig, verst að 27" iMac byrja í 290þús en þeir eru hverrar krónu virði þó PC mönnum finnist þeir vera fáránlega dýrir. Staðreyndin er sú hinsvegar að skjáirnir í iMac eru æði og það er dásamlegt að vinna í OS X umhverfinu. T.d. þessi 27" iMac sem fæst á 290þ er með 5K IPS skjá en IPS er einmitt skilgreiningin á góðum myndvinnsluskjám sem eru góðir í lit og ná að halda contrast vel á milli sjónarhorna. Ég myndi jafnvel ráðleggja þér að kaupa notaðan 27" iMac ef 290þ er of mikið fyrir þig, þessar vélar endast og endast, og halda verðgildi sínu margfalt betur en þetta PC drasl. (Undirritaður er hardcore PC kall svo það þýðir ekkert að fleima mig fyrir að segja þetta, þetta er bara staðreynd að Makkar halda verði betur og endast að jafnaði lengur hjá fólki)




pepsico
Bannaður
Póstar: 714
Skráði sig: Mán 20. Apr 2015 17:30
Reputation: 174
Staða: Ótengdur

Re: myndvinnslu tölva

Pósturaf pepsico » Fim 12. Apr 2018 22:44

Þú ert að leita að skjá með IPS myndflöt ef þú vilt hafa litina sem besta. Svo sakar aldrei að vera með hærri upplausn en 1920x1080 t.d. 2560x1440. Sem dæmi er þessi skjár hérna mjög fínn á 49.500. https://kisildalur.is/?p=2&id=2720



Skjámynd

kubbur
/dev/null
Póstar: 1394
Skráði sig: Sun 14. Sep 2003 01:36
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: myndvinnslu tölva

Pósturaf kubbur » Fim 12. Apr 2018 22:53

pepsico skrifaði:Þú ert að leita að skjá með IPS myndflöt ef þú vilt hafa litina sem besta. Svo sakar aldrei að vera með hærri upplausn en 1920x1080 t.d. 2560x1440. Sem dæmi er þessi skjár hérna mjög fínn á 49.500. https://kisildalur.is/?p=2&id=2720

afhverju ekki oled?


Kubbur.Digital

Skjámynd

russi
FanBoy
Póstar: 726
Skráði sig: Mán 02. Maí 2011 01:28
Reputation: 175
Staðsetning: Terran Empire
Staða: Ótengdur

Re: myndvinnslu tölva

Pósturaf russi » Fim 12. Apr 2018 22:57

málið er iMac, þó hann sé dýrari. Þú nærð að selja hann aftur síðar á góðu verði ef þú villt, er ekki viss um að þessi geri það.
Sjálfur er ég að nota fyrstu kynslóðar 27" iMac enn í dag fyrir myndvinnslu, hann er 9 ára gamall og er fáranlega sprækur meðan ég held honum nokkuð clean.
Svo ef við förum í skjá pælingar, þú ert með truflað eintak af skjá í þessu, Veit ekki hvernig það er í dag, en fyrir nokkrum árum var það þannig að sambærileg vél og ég miðai við þá með sambærilegum skjá í Windows-world var mjög nálægt iMac í verði, var aðeins hærri meira að segja.
Annars er hægt að taka undir allt sem Kiddi segir, notaður iMac væri alls ekki slæm hugmynd heldur.




Höfundur
IM666
Græningi
Póstar: 35
Skráði sig: Fim 12. Apr 2018 20:24
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: myndvinnslu tölva

Pósturaf IM666 » Fim 12. Apr 2018 23:41

já ég veit að Imac væri sennilega lang best í þetta og mig hafur oft langað að fá mér þannig, en ég er ótrúlega hrædd við að skipta úr pc þar sem ég haf aldrei átt annað, og veit að t.d allar flýtileiðir í photoshop eru ekki eins í þeim, svo það væri smá vesen að skipta :P en samt ótrúelga freistandi, og líka þar sem ég verð með aðra pc tölvu og ætla mér að vinna myndir á báðar tölvurnar, þá gæti það kanski verið vesen að vera með bæði pc og mac eða hvað ?.




pepsico
Bannaður
Póstar: 714
Skráði sig: Mán 20. Apr 2015 17:30
Reputation: 174
Staða: Ótengdur

Re: myndvinnslu tölva

Pósturaf pepsico » Fim 12. Apr 2018 23:46

kubbur skrifaði:
pepsico skrifaði:Þú ert að leita að skjá með IPS myndflöt ef þú vilt hafa litina sem besta. Svo sakar aldrei að vera með hærri upplausn en 1920x1080 t.d. 2560x1440. Sem dæmi er þessi skjár hérna mjög fínn á 49.500. https://kisildalur.is/?p=2&id=2720

afhverju ekki oled?


Ég hef ekkert á móti OLED skjáum en ég veit ekki um stakt módel sem er til sölu á Íslandi, og efa að þeir séu samkeppnishæfir í verði.



Skjámynd

russi
FanBoy
Póstar: 726
Skráði sig: Mán 02. Maí 2011 01:28
Reputation: 175
Staðsetning: Terran Empire
Staða: Ótengdur

Re: myndvinnslu tölva

Pósturaf russi » Fös 13. Apr 2018 00:00

IM666 skrifaði:já ég veit að Imac væri sennilega lang best í þetta og mig hafur oft langað að fá mér þannig, en ég er ótrúlega hrædd við að skipta úr pc þar sem ég haf aldrei átt annað, og veit að t.d allar flýtileiðir í photoshop eru ekki eins í þeim, svo það væri smá vesen að skipta :P en samt ótrúelga freistandi, og líka þar sem ég verð með aðra pc tölvu og ætla mér að vinna myndir á báðar tölvurnar, þá gæti það kanski verið vesen að vera með bæði pc og mac eða hvað ?.


Flýtileiðirnar eru eins þannig séð, eru á sama stað á lyklaborðinu í nánast öllum tilfellum, CTRL í PC er Command í mac, Alt í PC er option-takkinn í mac. Takkarnir eru staðsettir á sama stað, örfá tilvik eru ekki eins og þú nærð fljót tökum á því, Vinn oftast á mac í PS og LR en hoppa stundum á PC og það er lítið að hrjá mig. Allavega að mínu mati þarftu ekki að vera hrædd og sér í lagi miðað við það sem þú færð í staðinn.

Hér er t.d Cheat-Sheet fyrir Mac
https://www.nobledesktop.com/shortcuts/ ... cc2017/mac

Svo hér fyrir PC
https://www.nobledesktop.com/shortcuts/ ... pcc2017/pc

Getur borðið þetta saman, séð svo lyklaborð fyrir mac vs pc.
Gætir jafnvel notað venjulegt lyklaborð á Makkan og þá ætti þetta að vera eins.




Höfundur
IM666
Græningi
Póstar: 35
Skráði sig: Fim 12. Apr 2018 20:24
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: myndvinnslu tölva

Pósturaf IM666 » Fös 13. Apr 2018 00:16

já ok hélt það væri mikið meiri munur á þessu, humm núna er ég bara orðin frekar spennt fyrir imac :D takk æðislega fyrir öll svörin, það hjálpar mikið, en kostar mig sennilega meiri pening hahahaha :P



Skjámynd

russi
FanBoy
Póstar: 726
Skráði sig: Mán 02. Maí 2011 01:28
Reputation: 175
Staðsetning: Terran Empire
Staða: Ótengdur

Re: myndvinnslu tölva

Pósturaf russi » Fös 13. Apr 2018 00:38

IM666 skrifaði:já ok hélt það væri mikið meiri munur á þessu, humm núna er ég bara orðin frekar spennt fyrir imac :D takk æðislega fyrir öll svörin, það hjálpar mikið, en kostar mig sennilega meiri pening hahahaha :P


Bara safna aðeins lengur, sérð að öllum líkindum ekki eftir því.

Meðan þetta er tölva ekki ætluð í tölvuleiki og slíkt er hún mjög góður kostur.



Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3838
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 265
Staða: Ótengdur

Re: myndvinnslu tölva

Pósturaf Tiger » Fös 13. Apr 2018 00:41

Ég er áhugaljósmyndari og vinn tugi þúsunda mynda suma mánuðina, er með late 2013 27" iMac (öflugasta þá) og það er ekki annað hægt að segja að hann hafi unnið fyrir kaupinu sínu og rúmlega það.

Fær mitt atkvæði 100%


Mynd


Höfundur
IM666
Græningi
Póstar: 35
Skráði sig: Fim 12. Apr 2018 20:24
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: myndvinnslu tölva

Pósturaf IM666 » Fös 13. Apr 2018 07:48

Ég er einmitt líka áhugaljósmyndari og þarf að hafa góða tölvu í myndvinnsluna




Höfundur
IM666
Græningi
Póstar: 35
Skráði sig: Fim 12. Apr 2018 20:24
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: myndvinnslu tölva

Pósturaf IM666 » Fös 13. Apr 2018 08:01

en svona afþví ég er farin að spá í Imac núna :P þá lángaði mig að spyrja ykkur sem vitið, er ég ekki að fara að lenda í neinum vandræðum með myndir á milli Imac og pc ? semsagt æj veit ekki, t.d þarf að vera að formatta flakkara og þessháttar ? ég er ferlega vittlaus í þessu, hef voða lítið notað apple tölvur , bara nánast ekki neitt



Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: myndvinnslu tölva

Pósturaf kiddi » Fös 13. Apr 2018 09:09

Ef þú formattar drif í Mac sem exFat þá á það að virka skammlaust á milli véla. (Ath. ef drifið er formattað PC megin þá þarf að passa að cluster size sé 1024 eða undir). Ég vinn sjálfstætt við kvikmyndgerð, nánar tiltekið grafík, myndvinnslu og tæknibrellur og er einnig áhugaljósmyndari, og ég vann í heilt ár með Mac og PC samhliða, Adobe leyfið gildir fyrir 2 tölvur og ég vann 50/50 á bæði þessi kerfi, Mac heima og PC á skrifstofunni, verkefnin voru meðferðis mér á flakkara allan daginn alla daga, og það var ekkert mál. iMac alla leið, jafnvel þó hann sé gamall.




Höfundur
IM666
Græningi
Póstar: 35
Skráði sig: Fim 12. Apr 2018 20:24
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: myndvinnslu tölva

Pósturaf IM666 » Fös 13. Apr 2018 09:20

kiddi skrifaði:Ef þú formattar drif í Mac sem exFat þá á það að virka skammlaust á milli véla. (Ath. ef drifið er formattað PC megin þá þarf að passa að cluster size sé 1024 eða undir). Ég vinn sjálfstætt við kvikmyndgerð, nánar tiltekið grafík, myndvinnslu og tæknibrellur og er einnig áhugaljósmyndari, og ég vann í heilt ár með Mac og PC samhliða, Adobe leyfið gildir fyrir 2 tölvur og ég vann 50/50 á bæði þessi kerfi, Mac heima og PC á skrifstofunni, verkefnin voru meðferðis mér á flakkara allan daginn alla daga, og það var ekkert mál. iMac alla leið, jafnvel þó hann sé gamall.



ok frábært :) þarf greinilega að skoða þetta, og takk kærlega fyrir svörin :)



Skjámynd

audiophile
Bara að hanga
Póstar: 1559
Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
Reputation: 125
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: myndvinnslu tölva

Pósturaf audiophile » Fös 13. Apr 2018 09:24

Ég er PC maður og hef alltaf verið en iMac eru æðislegar tölvur fyrir margmiðlunarvinnu og skjáirnir eru geggjaðir. Þú átt ekki eftir að sjá eftir að safna þér upp í iMac.


Have spacesuit. Will travel.

Skjámynd

kubbur
/dev/null
Póstar: 1394
Skráði sig: Sun 14. Sep 2003 01:36
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: myndvinnslu tölva

Pósturaf kubbur » Fös 13. Apr 2018 19:14

pepsico skrifaði:
kubbur skrifaði:
pepsico skrifaði:Þú ert að leita að skjá með IPS myndflöt ef þú vilt hafa litina sem besta. Svo sakar aldrei að vera með hærri upplausn en 1920x1080 t.d. 2560x1440. Sem dæmi er þessi skjár hérna mjög fínn á 49.500. https://kisildalur.is/?p=2&id=2720

afhverju ekki oled?


Ég hef ekkert á móti OLED skjáum en ég veit ekki um stakt módel sem er til sölu á Íslandi, og efa að þeir séu samkeppnishæfir í verði.


ég er með oled skjá, kostaði reyndar sitt, en ég elska hann meira en eistun á mér


Kubbur.Digital

Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: myndvinnslu tölva

Pósturaf kiddi » Lau 14. Apr 2018 10:23

kubbur skrifaði:ég er með oled skjá, kostaði reyndar sitt, en ég elska hann meira en eistun á mér


Hvaða skjá ertu með? Ég veit ekki til þess að það séu komnir neinir consumer OLED tölvuskjáir, bara stór rándýr sjónvörp og svo hinsvegar alvöru litgreiningaskjáir fyrir pro geirann í kvikmyndagerð, og þeir einmitt kosta á aðra milljón. Er búinn að lesa að það séu margir OLED skjáir væntanlegir en ég veit ekki hvaða skjár er fáanlegur í dag, endilega deildu með okkur hvaða skjá nákvæmlega þú ert með :)




Höfundur
IM666
Græningi
Póstar: 35
Skráði sig: Fim 12. Apr 2018 20:24
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: myndvinnslu tölva

Pósturaf IM666 » Lau 14. Apr 2018 11:28

önnur spurning :) er hægt að tengja annann skjá við imac tölvuna, þá er ég bara að tala um svona venjulegann dell skjá, ég er orðin svo vön að hafa tvo skjái að það yrði pínu erfitt að sleppa því :)



Skjámynd

reyniraron
Fiktari
Póstar: 93
Skráði sig: Þri 16. Jún 2015 17:59
Reputation: 17
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: myndvinnslu tölva

Pósturaf reyniraron » Lau 14. Apr 2018 11:34

IM666 skrifaði:önnur spurning :) er hægt að tengja annann skjá við imac tölvuna, þá er ég bara að tala um svona venjulegann dell skjá, ég er orðin svo vön að hafa tvo skjái að það yrði pínu erfitt að sleppa því :)

Það eru Thunderbolt 3 tengi á tölvunni. Það er hægt að tengja skjá við þau með því að nota USB-C í HDMI eða DisplayPort millistykki.


Reynir Aron
Svona tölvukall


Höfundur
IM666
Græningi
Póstar: 35
Skráði sig: Fim 12. Apr 2018 20:24
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: myndvinnslu tölva

Pósturaf IM666 » Lau 14. Apr 2018 12:02

reyniraron skrifaði:
IM666 skrifaði:önnur spurning :) er hægt að tengja annann skjá við imac tölvuna, þá er ég bara að tala um svona venjulegann dell skjá, ég er orðin svo vön að hafa tvo skjái að það yrði pínu erfitt að sleppa því :)

Það eru Thunderbolt 3 tengi á tölvunni. Það er hægt að tengja skjá við þau með því að nota USB-C í HDMI eða DisplayPort millistykki.


ok frábært :) takk takk




Höfundur
IM666
Græningi
Póstar: 35
Skráði sig: Fim 12. Apr 2018 20:24
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: myndvinnslu tölva

Pósturaf IM666 » Sun 15. Apr 2018 09:36

þið sem eruð í áskrift með Photoshop og Lightroom, hvar gerið þið það ? var að spá í opin kerfi, er það eitthvað sniðugt ? eða á maður að reina að leija beint að utan ? og er það ekki eitthvað vesen ?