Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir

Allt utan efnis

Höfundur
Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4168
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1301
Staða: Ótengdur

Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir

Pósturaf Klemmi » Mið 09. Ágú 2017 15:37

Sæl veriði,

síðustu vikur hef ég verið að þróa í frítímanum nýja leitarvél (líkt og Laptop.is) nema í þetta skiptið fyrir sólarlandaferðir í gegnum íslenskar ferðaskrifstofur (Sumarferðir, Heimsferðir, Úrval-Útsýn, Plúsferðir og VITA-ferðir).

www.ferdaleit.is

Ég er ekkert byrjaður að auglýsa þetta neitt, á eftir að skoða útlitið aðeins betur, setja upp Facebook síðu o.s.frv., en mér þætti vænt um ef einhverjir gæfu sér tíma til að kíkja inn á síðuna og gefa mér feedback, hvort það séu einhverjir fítusar sem þið teljið gagnlega sem eru ekki til staðar, eða ef þið lendið í einhverjum buggum :)

Hugmyndin er einföld, þú velur fjölda fullorðinna og barna, en að öðru leyti ræðurðu hvað þú skorðar ferðirnar við. Hvort sem það er lengd ferðar, áfangastaður, stjörnur á hóteli, verð, ferðatímabil o.s.frv.

Bestu kveðjur,
Klemmi



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir

Pósturaf dori » Mið 09. Ágú 2017 15:41

ferdaleit.png
ferdaleit.png (25.25 KiB) Skoðað 3921 sinnum


Fyrsta sem ég tók eftir. Held áfram að skoða.

Mjög kúl concept. Eitt sem ég tek eftir (þegar ég leitaði með "allir áfangastaðir") þá er rosalega mikið dót og infinite scroll er leiðinlegt með ef þú vilt hoppa langt. Þú þarft alltaf að bíða eftir að hver biti sé tilbúinn áður en þú getur scrollað áfram. Kannski engin góð lausn við því annað en að hafa bara vit á því að nota betri leitarskilyrði. Svo veit ég ekkert hvað þessar herbergistegundir þýða en það er bara mitt persónulega vandamál.




Höfundur
Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4168
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1301
Staða: Ótengdur

Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir

Pósturaf Klemmi » Mið 09. Ágú 2017 17:36

dori skrifaði:Mjög kúl concept. Eitt sem ég tek eftir (þegar ég leitaði með "allir áfangastaðir") þá er rosalega mikið dót og infinite scroll er leiðinlegt með ef þú vilt hoppa langt. Þú þarft alltaf að bíða eftir að hver biti sé tilbúinn áður en þú getur scrollað áfram. Kannski engin góð lausn við því annað en að hafa bara vit á því að nota betri leitarskilyrði.


Takk fyrir og mjög góður punktur :)

Ég prófaði fyrst að nota blaðsíður en kippti því aðallega út því það er plássfrekt og ljótt, auk þess sem mér fannst það ekki raunverulega færa þér neitt. Það eru viss þægindi við blaðsíðuskiptinguna að geta hoppað langt áfram í leitarniðurstöðum, en þá ertu í raun bara að fletta eftir verði og betri leið, einmitt ef fólk fattar það, að hækka lágmarksverðið.

Þegar þú nefnir þetta, þá er þó kannski ekki vitlaust að bjóða upp á aðra röðun en eftir verði, t.d. ef þú ert búinn að setja inn skorður á verð, og vilt í fljótu bragði raða eftir hótel-stjörnunum eða áfangastað, en þá kemur það aftur fram... þú gætir þurft að scrolla mjög langt til að komast á næsta áfangastað... ég þarf að hugsa þetta betur!

dori skrifaði:Svo veit ég ekkert hvað þessar herbergistegundir þýða en það er bara mitt persónulega vandamál.


Nei, þetta er bara það sem uppgefið er hjá ferðaskrifstofunum og erfitt að fá betri lýsingu. Fólk neyðist því líklega til að kíkja áfram á ferðina (með því að smella á stækkunarglerið lengst til hægri) og skoða herbergið sérstaklega.



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6773
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 934
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir

Pósturaf Viktor » Fim 10. Ágú 2017 10:20



I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir

Pósturaf dori » Fim 10. Ágú 2017 11:28

Klemmi skrifaði:Þegar þú nefnir þetta, þá er þó kannski ekki vitlaust að bjóða upp á aðra röðun en eftir verði, t.d. ef þú ert búinn að setja inn skorður á verð, og vilt í fljótu bragði raða eftir hótel-stjörnunum eða áfangastað, en þá kemur það aftur fram... þú gætir þurft að scrolla mjög langt til að komast á næsta áfangastað... ég þarf að hugsa þetta betur!
Já, það gæti verið góð lausn að leyfa þér að raða öðrum hlutum. T.d. verð hver nótt eða eitthvað. Og mögulega ef það er hægt að hafa einhvern indicator um hvert þú ert kominn í listanum (s.s. hvað þú ert búinn að sjá m.v. hversu margar niðurstöður voru).

Eitt sem mér dettur í hug væri ef þú gætir sýnt einhvernvegin (mögulega í hliðardálk) hversu margir möguleikar í ferðalengd voru (s.s. 7, 10, 14, 21 nætur) og hversu margar niðurstöður voru fyrir hvert, sama með stjörnur og mögulega verðbil. Og hafa svo möguleikann á því að geta smellt á það til að þrengja niðurstöðurnar. Svipað og Splunk leyfir þér að gera ef þú hefur notað það tól.




sxf
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 303
Skráði sig: Sun 26. Sep 2010 21:24
Reputation: 3
Staða: Tengdur

Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir

Pósturaf sxf » Fim 10. Ágú 2017 19:33

Mynd
Ég skil þennan fítus ekki alveg. Hvort er ég að velja 5 eða 13 nætur? Svo þegar ég leita þá fæ ég upp 7 nætur.



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir

Pósturaf dori » Fim 10. Ágú 2017 20:51

sxf skrifaði:Mynd
Ég skil þennan fítus ekki alveg. Hvort er ég að velja 5 eða 13 nætur? Svo þegar ég leita þá fæ ég upp 7 nætur.

Eitthvað á bilinu 5-13



Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir

Pósturaf urban » Fim 10. Ágú 2017 20:56

Stærsti kosturinn sem að ég sæi fram á að myndi breyta einhverju fyrir mig væri að geta útilokað einhverjar ferðaskrifstofur eða flugfélög.

Ég flýg t.d. ekki með Ryan Air eða Primera Air

En ekki það, ég er ekkert að fara að nota þetta svo sem, raða mínum ferðum alfarið saman sjálfur.


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6773
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 934
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir

Pósturaf Viktor » Fös 11. Ágú 2017 00:56

dori skrifaði:
sxf skrifaði:Mynd
Ég skil þennan fítus ekki alveg. Hvort er ég að velja 5 eða 13 nætur? Svo þegar ég leita þá fæ ég upp 7 nætur.

Eitthvað á bilinu 5-13


Ætti bara að vera að hægt að "skruna" hægra hjólinu :japsmile


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB


Höfundur
Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4168
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1301
Staða: Ótengdur

Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir

Pósturaf Klemmi » Fös 11. Ágú 2017 09:14

Sallarólegur skrifaði:Ætti bara að vera að hægt að "skruna" hægra hjólinu :japsmile


Ég skil ekki? :D

Held að fólk vilji geta valið ferðir frá x til y daga :P
T.d. ef ég vil minnst fara út í 10 daga en mest fara út í 14 daga :)



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6773
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 934
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir

Pósturaf Viktor » Fös 11. Ágú 2017 09:23

Klemmi skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Ætti bara að vera að hægt að "skruna" hægra hjólinu :japsmile


Ég skil ekki? :D

Held að fólk vilji geta valið ferðir frá x til y daga :P
T.d. ef ég vil minnst fara út í 10 daga en mest fara út í 14 daga :)


Ah, skil þig.


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

HalistaX
Vaktari
Póstar: 2534
Skráði sig: Fim 01. Júl 2010 13:16
Reputation: 379
Staðsetning: 800
Staða: Ótengdur

Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir

Pósturaf HalistaX » Fös 11. Ágú 2017 09:48

Hver er eiginlega að borga Klemma fyrir allar þessar vefsíður? Meikaru að henda í eina sem leitar að Íslensku klámi á internetinu? Er ekki að finna neitt með google... :lol:

Er Dohop samt ekki með sama concept eða? Eða er það bara í gegnum þá ferðaskrifstofu?


Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir

Pósturaf dori » Fös 11. Ágú 2017 10:15

HalistaX skrifaði:Er Dohop samt ekki með sama concept eða? Eða er það bara í gegnum þá ferðaskrifstofu?
Þetta leitar í pakkaferðum, dohop leitar í flugum. Hérna ertu kannski með samtals 150 þúsund möguleika yfir heilt ár á meðan það sem dohop er að vinna með er miklu stærra gagnasafn þar sem þú ert líka að setja saman mismunandi möguleika og eitthvað.




Höfundur
Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4168
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1301
Staða: Ótengdur

Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir

Pósturaf Klemmi » Fös 11. Ágú 2017 12:24

HalistaX skrifaði:Er Dohop samt ekki með sama concept eða? Eða er það bara í gegnum þá ferðaskrifstofu?


Conceptið er vissulega það sama, munurinn liggur í að hjá mér ertu með flug + gistingu + fararstjórn :)

Markhópurinn fyrir svona ferðaskrifstofuferðir er held ég helst fólk með börn og svo eldra fólk.
Eldra fólk því það er vanara þessu en að bóka sjálft, fólk með börn því að það er öryggi í að hafa fararstjórn, neyðarnúmer sem þú getur hringt í ef eitthvað kemur upp á, auk þess sem að þú getur spurt betur út í ferðirnar, hvernig sé með afþreyingu fyrir börnin á hótelinu o.s.frv.

Það sem kannski kom mér mest á óvart er hvað ferðirnar geta verið hagstæðar, þ.e. á réttu dagsetningunum og til réttu áfangastaðanna þá þarf þetta ekki að vera dýrara heldur en að bóka sjálfur flug og gistingu, sbr. að ódýrasta ferðin fyrir 2 er á innan við 50þús kall á haus með flugi og gistingu í viku :wtf




nonesenze
Kerfisstjóri
Póstar: 1217
Skráði sig: Fim 10. Des 2009 17:06
Reputation: 98
Staða: Ótengdur

Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir

Pósturaf nonesenze » Fös 11. Ágú 2017 18:55

væri fín viðbót að geta hakað í hálft fæði fullt fæði eða ekkert


CPU: Intel i9-14900KS
Móðurborð: Asus z790 apex encore
Minni: G.skill 2x16gb 7600mhz cl36
Skjákort: RTX 4090 rog strix
Turn psu: lian li o11d xl rog, Bequiet straight 1200w13xQL120
Kæling: EK CR360 direct die AIO
SSD: Samsung SSD 980 PRO 1TB
HDD: WD 12TB
Skjár: asus pg32uqr
Lyklaborð Mús heyrnatól : Corsair k100 rgb, corsair Virtuos

Skjámynd

mundivalur
Vaktari
Póstar: 2327
Skráði sig: Fim 02. Apr 2009 13:16
Reputation: 82
Staðsetning: South side
Staða: Ótengdur

Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir

Pósturaf mundivalur » Fös 11. Ágú 2017 22:47

Snilld og ég er alveg að fara panta eina late sólarferð :D




Höfundur
Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4168
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1301
Staða: Ótengdur

Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir

Pósturaf Klemmi » Fös 11. Ágú 2017 23:52

nonesenze skrifaði:væri fín viðbót að geta hakað í hálft fæði fullt fæði eða ekkert


Get því miður ekki boðið upp á að haka við, þar sem að þetta kemur í alls kyns formatti frá ferðaskrifstofunum :)

Hins vegar er þessi reitur hugsaður fyrir það, getur þá skrifað "hálft fæði" eða "fullt fæði", eða "allt innifalið"/"all inclusive"... eða bara hvað sem þú vilt :D

Capture.PNG
Capture.PNG (29.21 KiB) Skoðað 3253 sinnum



Skjámynd

HalistaX
Vaktari
Póstar: 2534
Skráði sig: Fim 01. Júl 2010 13:16
Reputation: 379
Staðsetning: 800
Staða: Ótengdur

Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir

Pósturaf HalistaX » Lau 12. Ágú 2017 01:08

Held þetta sé eitthvað gallað, ég fæ allavegana ekkert þegar ég leita að því sem ég vil hafa í herberginu mínu....

Ferðaleit Galla leit more like it..PNG
Ferðaleit Galla leit more like it..PNG (32.52 KiB) Skoðað 3233 sinnum





All joking aside samt, þá er þetta topp síða og frábært framtak! Go Klemmi! Hann ætti augljóslega að vera að fá annað hvort borgað eða borgað meira fyrir það sem hann gerir!


Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...

Skjámynd

Halli25
Bara að hanga
Póstar: 1577
Skráði sig: Fim 13. Sep 2007 12:42
Reputation: 67
Staðsetning: Hveragerði
Staða: Ótengdur

Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir

Pósturaf Halli25 » Þri 03. Okt 2017 15:47



Starfsmaður @ IOD

Skjámynd

lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3086
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Reputation: 65
Staða: Ótengdur

Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir

Pósturaf lukkuláki » Þri 03. Okt 2017 17:04

Algjörlega frábært framtak en hvar er Icelandair?
Þeir eru líka með pakkaferðir.


If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.


Höfundur
Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4168
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1301
Staða: Ótengdur

Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir

Pósturaf Klemmi » Þri 03. Okt 2017 17:29

lukkuláki skrifaði:Algjörlega frábært framtak en hvar er Icelandair?
Þeir eru líka með pakkaferðir.


Takk fyrir!

Ég hafði ekki einu sinni skoðað þá, þar sem ég hélt að VITA (sem er dótturfyrirtæki þeirra og með eins bókunarvél) byði upp á sömu ferðir og þeir.

Sólarferðirnar sem eru í boði núna með IcelandAir eru sýnist mér eingöngu til Florida, og mjög erfitt að finna nokkuð :oops:



Skjámynd

ZiRiuS
Of mikill frítími
Póstar: 1796
Skráði sig: Þri 08. Nóv 2005 15:19
Reputation: 387
Staðsetning: Við tölvuna
Staða: Ótengdur

Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir

Pósturaf ZiRiuS » Mið 08. Nóv 2017 02:48

Ef ég skrifa "hjólastólaaðgengi" eða "aðgengi" eða eitthvað þannig í herbergi flipann fæ ég ekkert upp. Eru engar þannig upplýsingar frá ferðaskrifstofunum?

Annars mjög flott síða.



Turn: Cooler Master Mastercase H500M Móðurborð: Asus ROG Maximus XI Hero
CPU: Intel Core i9-9900K 3.6GHz (Coffee Lake) GPU: EVGA GeForce RTX 2080 Super FTW3 Ultra Gaming
RAM: Corsair Vengeance LPX 32GB (4x8GB) DDR4 PC4-28800C18 3600MHz Quad Channel Kit
PSU: Corsair AX850 Titanium 80 Plus Titanium Modular SSD: Samsung 970 PRO 512GB M.2 2280 PCI-e 3.0 x4 NVMe


Höfundur
Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4168
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1301
Staða: Ótengdur

Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir

Pósturaf Klemmi » Mið 08. Nóv 2017 09:20

ZiRiuS skrifaði:Ef ég skrifa "hjólastólaaðgengi" eða "aðgengi" eða eitthvað þannig í herbergi flipann fæ ég ekkert upp. Eru engar þannig upplýsingar frá ferðaskrifstofunum?

Annars mjög flott síða.


Mjög góður punktur, án þess að þora að fullyrða um það, þá virðist það aldrei koma fram í textalýsingu á herbergi hjá ferðaskrifstofunum að um herbergi með hjólastólaaðgengi sé að ræða, sbr. að jafn vel leit að "hjól" eða "aðg" skilar engu, en leitin leitar s.s. jafn vel að broti úr orði, hvar sem er í textalýsingu herbergisins.

Hins vegar þá kemur fram á Booking.com hvort að hótelið sé með "Facilities for disabled guests". Ég gæti auðveldlega bætt því við hjá mér að hægt sé að sía út og sjá einungis þau hótel, en ég ætla fyrst að heyra í ferðaskrifstofunum og sjá hvort að það að hótel sé merkt á þennan máta á Booking.com sé jafngilt því að einstaklingur í hjólastól geti bókað sér ferð og gert ráð fyrir að lenda hvorki í vandræðum í flugi eða á hóteli :)

hotel.png
hotel.png (9.49 KiB) Skoðað 2609 sinnum



Skjámynd

ZiRiuS
Of mikill frítími
Póstar: 1796
Skráði sig: Þri 08. Nóv 2005 15:19
Reputation: 387
Staðsetning: Við tölvuna
Staða: Ótengdur

Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir

Pósturaf ZiRiuS » Mið 08. Nóv 2017 14:13

Klemmi skrifaði:
ZiRiuS skrifaði:Ef ég skrifa "hjólastólaaðgengi" eða "aðgengi" eða eitthvað þannig í herbergi flipann fæ ég ekkert upp. Eru engar þannig upplýsingar frá ferðaskrifstofunum?

Annars mjög flott síða.


Mjög góður punktur, án þess að þora að fullyrða um það, þá virðist það aldrei koma fram í textalýsingu á herbergi hjá ferðaskrifstofunum að um herbergi með hjólastólaaðgengi sé að ræða, sbr. að jafn vel leit að "hjól" eða "aðg" skilar engu, en leitin leitar s.s. jafn vel að broti úr orði, hvar sem er í textalýsingu herbergisins.

Hins vegar þá kemur fram á Booking.com hvort að hótelið sé með "Facilities for disabled guests". Ég gæti auðveldlega bætt því við hjá mér að hægt sé að sía út og sjá einungis þau hótel, en ég ætla fyrst að heyra í ferðaskrifstofunum og sjá hvort að það að hótel sé merkt á þennan máta á Booking.com sé jafngilt því að einstaklingur í hjólastól geti bókað sér ferð og gert ráð fyrir að lenda hvorki í vandræðum í flugi eða á hóteli :)

hotel.png


Geggjað, hlakka til að sjá hvað þau segja.



Turn: Cooler Master Mastercase H500M Móðurborð: Asus ROG Maximus XI Hero
CPU: Intel Core i9-9900K 3.6GHz (Coffee Lake) GPU: EVGA GeForce RTX 2080 Super FTW3 Ultra Gaming
RAM: Corsair Vengeance LPX 32GB (4x8GB) DDR4 PC4-28800C18 3600MHz Quad Channel Kit
PSU: Corsair AX850 Titanium 80 Plus Titanium Modular SSD: Samsung 970 PRO 512GB M.2 2280 PCI-e 3.0 x4 NVMe

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7013
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 986
Staða: Ótengdur

Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir

Pósturaf rapport » Mið 08. Nóv 2017 16:36

Manni bregður smá að sjá ferðaskrifstofurnar nota sömu hótelin og birta sömu verðin...