Sælir Vaktarar.
Var hjá vini mínum að reyna að opna port.
Hann langar að hafa Teamspeak server og hosta leiki fyrir félaga.
Hann er með ljósleiðara frá Vodafone, og við gátum ómögulega fengið HG-659 routerinn til að hleypa inn tengingum.
Vodafone sagði honum að þetta sé ekki hægt á ljósleiðara.
Einhver með lausnir eða tillögur ?
Opna port ? Vodafone Ljósleiðari
-
hagur
- Besserwisser
- Póstar: 3149
- Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
- Reputation: 462
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Opna port ? Vodafone Ljósleiðari
brain skrifaði:Vodafone sagði honum að þetta sé ekki hægt á ljósleiðara.
Það er nú ekki rétt. Þekki ekki þennan router, en ég er sjálfur með fullt af portum opnum á innri þjónustur hjá mér og er á ljósleiðara hjá Vodafone.
-
asgeirbjarnason
- Ofur-Nörd
- Póstar: 282
- Skráði sig: Fim 28. Apr 2016 20:17
- Reputation: 73
- Staða: Ótengdur
Re: Opna port ? Vodafone Ljósleiðari
Tek undir með hagi. Fullt af opnum þjónustum hjá mér, og meira að segja fleiri en ein IP tala með mismunandi þjónustum á á ljósleiðara frá Vodafone. Routerarnir frá internetveitunum eru hinsvegar nánast allir drasl, hef til dæmis lent í routerum sem bara einfaldlega frjósa þegar maður reynir að gera NAT portamöppun.
Re: Opna port ? Vodafone Ljósleiðari
https://community.vodafone.co.nz/t5/Mod ... d-p/117724
hér eru leiðbeiningar frá vodafone (reyndar á nýja sjálandi, en ætti að vera mjög svipað)
hér eru leiðbeiningar frá vodafone (reyndar á nýja sjálandi, en ætti að vera mjög svipað)
ASRock B650E PG-ITX WiFi AMD Ryzen 9 7950X PowerColor "Red Devil" RX 7900 XTX 24GB G.Skill Trident Z5 RGB 32GB (2 x 16GB) DDR5-6000 stýrikerfi: wd black sn850x 2TB WD RED 4TB WD RED 4TB 65" LG B8 OLED TV
-
brain
Höfundur - 1+1=10
- Póstar: 1136
- Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
- Reputation: 161
- Staða: Ótengdur
Re: Opna port ? Vodafone Ljósleiðari
Takk fyrir innlegginn.
Mér finnst við hafa sett up portforward rétt og vorum búnir að finna á netinu ágætis upplýsingar.
og routerinn tók þær uppsetningar sem við settum inn.
Málir er held ég að hann er ekki með pingable IP tölu, hann er með 89.160.141.23, og hef ég reynt að pinga hana frá mínu heimaneti og líka frá vinnuni.
Og þjónustuver Vodafone segist ekkert geta gert í því.
Mér finnst við hafa sett up portforward rétt og vorum búnir að finna á netinu ágætis upplýsingar.
og routerinn tók þær uppsetningar sem við settum inn.
Málir er held ég að hann er ekki með pingable IP tölu, hann er með 89.160.141.23, og hef ég reynt að pinga hana frá mínu heimaneti og líka frá vinnuni.
Og þjónustuver Vodafone segist ekkert geta gert í því.
-
asgeirbjarnason
- Ofur-Nörd
- Póstar: 282
- Skráði sig: Fim 28. Apr 2016 20:17
- Reputation: 73
- Staða: Ótengdur
Re: Opna port ? Vodafone Ljósleiðari
Spurning að prófa að tengja tölvu beint í Telsey boxið, auðkenna hana á skraning.gagnaveita.is síðunni og athuga hvort tölvan sé pinganleg utanfrá.
Re: Opna port ? Vodafone Ljósleiðari
brain skrifaði:Takk fyrir innlegginn.
Mér finnst við hafa sett up portforward rétt og vorum búnir að finna á netinu ágætis upplýsingar.
og routerinn tók þær uppsetningar sem við settum inn.
Málir er held ég að hann er ekki með pingable IP tölu, hann er með 89.160.141.23, og hef ég reynt að pinga hana frá mínu heimaneti og líka frá vinnuni.
Og þjónustuver Vodafone segist ekkert geta gert í því.
Í það fyrsta er ekki mjög sniðugt að deila ip tölunni sinni út á veraldarvefinn þó að það sé kannski ekki aðal málið.
Routerinn ætti í raun ekki að vera opin út hvorki fyrir ping né neinu öðru útaf öryggisástæðum, það á hinsvegar að vera hægt að opna hann út, ég get ekki sagt þér hvað vandamálið er þar, vildi bara skjóta þessu inní
-
asgeirbjarnason
- Ofur-Nörd
- Póstar: 282
- Skráði sig: Fim 28. Apr 2016 20:17
- Reputation: 73
- Staða: Ótengdur
Re: Opna port ? Vodafone Ljósleiðari
Geronto skrifaði:Í það fyrsta er ekki mjög sniðugt að deila ip tölunni sinni út á veraldarvefinn þó að það sé kannski ekki aðal málið.
Routerinn ætti í raun ekki að vera opin út hvorki fyrir ping né neinu öðru útaf öryggisástæðum, það á hinsvegar að vera hægt að opna hann út, ég get ekki sagt þér hvað vandamálið er þar, vildi bara skjóta þessu inní
Þetta eru ágæt ráð í sjálfu sér, en ég veit ekki hvort þau eigi við í fiktarasamfélagi eins og vaktinni. Annars er ég ósammála því að routerar eigi að loka fyrir ping. Finnst fátt leiðinlegra en þegar routerar eða eldveggir loka fyrir ping og traceroute. Cisco ASA gera þetta by default og það er óþarflega oft sem ég hef verið lengur að leysa vandamál en ég ætti vegna þess.
-
brain
Höfundur - 1+1=10
- Póstar: 1136
- Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
- Reputation: 161
- Staða: Ótengdur
Re: Opna port ? Vodafone Ljósleiðari
asgeirbjarnason skrifaði:Spurning að prófa að tengja tölvu beint í Telsey boxið, auðkenna hana á skraning.gagnaveita.is síðunni og athuga hvort tölvan sé pinganleg utanfrá.
Kom berlega í ljós þarna að router var vandamálið.
Hann fékk nýjan router og allt gekk upp !¨
Takk allir saman !
-
brain
Höfundur - 1+1=10
- Póstar: 1136
- Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
- Reputation: 161
- Staða: Ótengdur
Re: Opna port ? Vodafone Ljósleiðari
hagur skrifaði:Er hann nokkuð með netvarann hjá Vodafone virkan?
Neibb, góður puntur samt !
brain skrifaði:asgeirbjarnason skrifaði:Spurning að prófa að tengja tölvu beint í Telsey boxið, auðkenna hana á skraning.gagnaveita.is síðunni og athuga hvort tölvan sé pinganleg utanfrá.
Kom berlega í ljós þarna að router var vandamálið.
Hann fékk nýjan router og allt gekk upp !¨
Takk allir saman !
Re: Opna port ? Vodafone Ljósleiðari
asgeirbjarnason skrifaði:Geronto skrifaði:Í það fyrsta er ekki mjög sniðugt að deila ip tölunni sinni út á veraldarvefinn þó að það sé kannski ekki aðal málið.
Routerinn ætti í raun ekki að vera opin út hvorki fyrir ping né neinu öðru útaf öryggisástæðum, það á hinsvegar að vera hægt að opna hann út, ég get ekki sagt þér hvað vandamálið er þar, vildi bara skjóta þessu inní
Þetta eru ágæt ráð í sjálfu sér, en ég veit ekki hvort þau eigi við í fiktarasamfélagi eins og vaktinni. Annars er ég ósammála því að routerar eigi að loka fyrir ping. Finnst fátt leiðinlegra en þegar routerar eða eldveggir loka fyrir ping og traceroute. Cisco ASA gera þetta by default og það er óþarflega oft sem ég hef verið lengur að leysa vandamál en ég ætti vegna þess.
Ég var nú mest að tala um almennt þetta með ip töluna
Annað með þetta ping þá er það eða ætti almennt að vera lokað by default á router frá isp þar sem að það truflar Jón Jónsson útí bæ ekkert að hafa það lokað og það er opin gátt til isp-sins fyrir bilana greiningu, þetta er good practice þar sem að það er óþarfa security risk að hafa hann opin út á netið fyrir meðaljón
Hinsvegar er það alveg rétt hjá þér að þetta getur verið leiðinlegt hjá fikturum/nördum sem okkur
