Mamma tekur sjónvarpið úr sambandi hverja nótt...


Höfundur
Hafst1D
Nýliði
Póstar: 13
Skráði sig: Fim 25. Feb 2016 16:42
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Mamma tekur sjónvarpið úr sambandi hverja nótt...

Pósturaf Hafst1D » Fös 10. Jún 2016 11:20

Halló!
Kannski pínu óvenjuleg færsla en bara gaman af því :D Mamma tekur alltaf allt úr sambandi með því að slökkva á fjöltenginu sem sjónvarpið, myndlykillinn og heimabíómagnarinn eru tengdir í í hræðslu við að það kvikni í. Mér finnst þetta vera algjör óþarfi og hef verið að reyna að koma henni af þessari skoðun en allt kemur yfir ekki (það eina sem hún virðist treysta eru slökkviliðsmenn, pabbi er rafvirki og er á sömu skoðun og ég og ekki virðist hún treysta honum :catgotmyballs). Þegar á svo að kveikja á draslinu aftur þarf að bíða eftir "Velkomin í sjónvarp símans" skjámyndini og að heimabíóið stimpli sig inn o.s.frv. Ég sé klárlega að tækin eru hönnuð til að ganga á standby og það fari jafnvel illa með tækin að kutta svona skyndilga á allan straum? Mér finndist allt í lagi að taka allt úr sambandi þegar fjöllan er að fara eitthvert í einhverja daga en hverja einustu nótt finnst mér aðeins of :P Þetta eru allt tiltölulega nýjar græjur svo þær eru með flest öllum nýjustu stöðlum. Er einhver hér sem getur bakkað mig upp og ég svo sýnt henni að það þurfi ekki alveg að klippa á vírinn og setja sjónvarpið í baðkarið hverja nótt! Takk fyrir :)


 13" MacBook Pro Retina Early 2015


Hizzman
FanBoy
Póstar: 798
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Mamma tekur sjónvarpið úr sambandi hverja nótt...

Pósturaf Hizzman » Fös 10. Jún 2016 11:32

taktu ísskápinn úr sambandi þegar hún gerir þetta




Höfundur
Hafst1D
Nýliði
Póstar: 13
Skráði sig: Fim 25. Feb 2016 16:42
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Mamma tekur sjónvarpið úr sambandi hverja nótt...

Pósturaf Hafst1D » Fös 10. Jún 2016 11:47

Hahaha, sú yrði nú aldeilis hissa. Verst að hann er innbyggður í innréttinguna!


 13" MacBook Pro Retina Early 2015


Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Mamma tekur sjónvarpið úr sambandi hverja nótt...

Pósturaf Tbot » Fös 10. Jún 2016 11:55

Eldri sjónvarpstæki voru með rofa sem rauf straumrásina strax við inntak.

Tæki sem hafa standby möguleika eru því semi active, hluti straumrásar er því lifandi.

Það er við bilun sem eldhættan er mest og þá getur það verið mismunandi eftir framleiðendum hversu örugg tækin eru.
Ásamt því hversu mikið af eitruðum reyk myndast.

Svo þetta eru eðlileg viðbrögð hjá eldhræddu fólki að slökkva á öllu með rofa á fjöltenginu. Vona þó að rofinn sé að rjúfa fasann.


Fæstir brunar hafa verið vegna ísskápa.
Algengara að þetta séu þurrkarar og sjónvörp



Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Mamma tekur sjónvarpið úr sambandi hverja nótt...

Pósturaf kiddi » Fös 10. Jún 2016 12:08

Getur þetta ekki verið pínu catch-22? Þ.e. það er líklegra að tækin muni bila (og valda bruna) þegar það er stöðugt verið að kötta á strauminn og skella honum svo aftur á með látum, og ólíklegra að tækin bili, fái þau að vera tengd?




Höfundur
Hafst1D
Nýliði
Póstar: 13
Skráði sig: Fim 25. Feb 2016 16:42
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Mamma tekur sjónvarpið úr sambandi hverja nótt...

Pósturaf Hafst1D » Fös 10. Jún 2016 12:25

Tbot skrifaði:Fæstir brunar hafa verið vegna ísskápa. Algengara að þetta séu þurrkarar og sjónvörp

Ertu samt viss um að algengir brunavaldar séu sjónvörp? Samkvæmt skýrslu frá Mannvirkjastofnun (http://goo.gl/4ssthJ - Brunar og slys af völdum rafmagns) sem er þó frá árunum 2006-2009 segir:
Algengustu einstöku brunavaldar voru eldavélar, (35%), rafmagnstöflur og dreifkerfi, (10%), raflagnir (5%) og þvottavélar (5%). Aðrir helstu brunavaldar voru í raflögnum, töflum og dreifikerfum, kælitækjum, uppþvotta- og þvottavélum. Sjónvarpsbrunum hefur fækkað verulega frá því sem áður var.

Ég geri ráð fyrir að tækin séu nú orðin talsvert fullkomnari og því brunahættan orðin mun minni.


kiddi skrifaði:Getur þetta ekki verið pínu catch-22? Þ.e. það er líklegra að tækin muni bila (og valda bruna) þegar það er stöðugt verið að kötta á strauminn og skella honum svo aftur á með látum, og ólíklegra að tækin bili, fái þau að vera tengd?

Jú hefði einmitt haldið það.
Síðast breytt af Hafst1D á Fös 10. Jún 2016 13:21, breytt samtals 1 sinni.


 13" MacBook Pro Retina Early 2015

Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3095
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 443
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Mamma tekur sjónvarpið úr sambandi hverja nótt...

Pósturaf hagur » Fös 10. Jún 2016 12:51

Var ekki einmitt meiri eldhætta af gömlu túbusjónvörpunum? Þar sem að þau eru nánast alveg horfin er eðlilegt að brunar vegna sjónvarpa séu fátíðari.



Skjámynd

svanur08
Vaktari
Póstar: 2492
Skráði sig: Fim 18. Feb 2010 16:05
Reputation: 116
Staða: Ótengdur

Re: Mamma tekur sjónvarpið úr sambandi hverja nótt...

Pósturaf svanur08 » Fös 10. Jún 2016 13:05

Life is danger, live with it or not.


Sjónvarp: LG C3 (OLED48C3) Blu-ray spilari: SONY UBP-X800M2 Soundbar: LG S75QR


Sam
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 302
Skráði sig: Mið 03. Des 2014 18:50
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Re: Mamma tekur sjónvarpið úr sambandi hverja nótt...

Pósturaf Sam » Fös 10. Jún 2016 13:47

Eldhætta af gömlu túbusjónvörpunum stafaði að mínu viti aðalega af því að í þessum stóra kassa sem þau voru gat safnast fyrir gríðarlega mikið af ryki sem varð að lokum eins og ullarteppi yfir öllu inni í tækinu ef tækin voru aldrei blásin/rykhreinsuð.
Við þetta hitnar vélbúnaðurinn meir og meir þar til að kviknar í rykteppinu.
Það er ágæt regla finnst mér að blása rykið úr tækinu í jólahreingerninguni eins og öðrum tölvubúnaði, ég blæs nú reyndar mikið oftar en það úr tölvunum.




Höfundur
Hafst1D
Nýliði
Póstar: 13
Skráði sig: Fim 25. Feb 2016 16:42
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Mamma tekur sjónvarpið úr sambandi hverja nótt...

Pósturaf Hafst1D » Fös 10. Jún 2016 14:45

Sam skrifaði:Eldhætta af gömlu túbusjónvörpunum stafaði að mínu viti aðalega af því að í þessum stóra kassa sem þau voru gat safnast fyrir gríðarlega mikið af ryki sem varð að lokum eins og ullarteppi yfir öllu inni í tækinu ef tækin voru aldrei blásin/rykhreinsuð.
Við þetta hitnar vélbúnaðurinn meir og meir þar til að kviknar í rykteppinu.
Það er ágæt regla finnst mér að blása rykið úr tækinu í jólahreingerninguni eins og öðrum tölvubúnaði, ég blæs nú reyndar mikið oftar en það úr tölvunum.

Algjörlega :) Sjónvarpið okkar er nú ekki nema 3 ára gamalt. 46 tommu Philips Full HD og 3D klárt, man ekki nákvæmlega hvað týpa þetta er en andskoti líkt þessu. Ætti að vera safe.


 13" MacBook Pro Retina Early 2015

Skjámynd

odinnn
spjallið.is
Póstar: 473
Skráði sig: Fim 26. Sep 2002 20:37
Reputation: 8
Staðsetning: Hef ekki glóru!
Staða: Ótengdur

Re: Mamma tekur sjónvarpið úr sambandi hverja nótt...

Pósturaf odinnn » Lau 11. Jún 2016 00:59

Í viðbót við það að túbusjónvörpin höfðu mikið pláss til að safna ryki í þá notast þau við rafsegulsvið oftar en ekki draga að sér ryk. Einnig þurfti að mata túbuna með háspennu, við erum að tala um einhver kílóvolt, en það ásamt stærri þéttum eykur brunahættuna.

Hef ekki skoðað hvernig rásir eru hannaðar við inngang á svona tækjum en í standby ertu alltaf með einhvern spennubreyti í gangi og væntanlega einhvern relay. Myndi halda að ágætis framleiðandi myndi setja einhvern hlut í rásina líka til að virka sem öryggi. Ég get hinsvegar ekki séð að spennurof á hverju kvöldi hafi einhver áhrif á það.

Rafmagnstæki í standby í dag eru svolítið eins og hleðslutæki fyrir síma sem er að keyra eina ljósdíóðu og örlitla rás/microcontroller sem er að bíða eftir ákveðnum púlsum frá IR mótakara.


Desktop: i5 4670K|Asus Maximus VI Impact|EVGA GTX780SC|Adata XPG PC3-17000 16Gb
Server: C2D6600|Asus P5B deluxe Wi/Fi|GeiL PC6400 6Gb


Hizzman
FanBoy
Póstar: 798
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Mamma tekur sjónvarpið úr sambandi hverja nótt...

Pósturaf Hizzman » Mán 20. Jún 2016 11:45

Það er hægt að kaupa wattmæli sem er settur í venjulegt rafmagnstengi. kostar ekkert rosa mikið (10k ?) íhlutir eða mbr.is etv gætu verið með þetta

þá geturu mælt hversu mikið að wöttum TVið tekur og síðan reiknað kostað við standby-orku

þetta gæti svosem verið einhverjir 1000 kallar á ári



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4957
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 866
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Mamma tekur sjónvarpið úr sambandi hverja nótt...

Pósturaf jonsig » Mán 20. Jún 2016 17:50

Túbuskjáir voru verri að mörgu leiti . En aflgjafarnir fyrir flest tækin sem eru tengt við þetta fjöltengi geta öll valdið bruna og byrji eitthvað að hitna í tækinu eru þau einn stór eldsmatur og fylgir ban eitraður reykur . Auk þess er þetta óþarfa orkueyðsla þótt þetta séu bara 0.5W í standby , þá taka öll hin tengdu tækin þetta líklega líka ef ekki meira .

Svona án þess að vera leiðinlegur þá er það nú eitt ...
Rafvirki er kannski ekki sá besti að meta hættu af innviðum rafeindatækja enda ekki þeirra fag .



Skjámynd

nidur
/dev/null
Póstar: 1362
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
Reputation: 192
Staðsetning: In the forest
Staða: Ótengdur

Re: Mamma tekur sjónvarpið úr sambandi hverja nótt...

Pósturaf nidur » Mán 20. Jún 2016 18:58

Eins og hefur komið fram þá var þetta aðalega rykið sem olli íkveikju, og hægt var að kaupa sérstakan reykskynjara við sjónvarpstækin einusinni.

Það er örugglega líklegra að það kveikni í magnaranum en hinu dótinu.

En að gera þetta á hverjum degi styttir örugglega líftíma tækjanna sem eru í sambandi.



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4957
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 866
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Mamma tekur sjónvarpið úr sambandi hverja nótt...

Pósturaf jonsig » Mán 20. Jún 2016 19:00

það þarf ekkert endilega bara ryk til að kveikja í ...



Skjámynd

Minuz1
Kerfisstjóri
Póstar: 1254
Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
Reputation: 140
Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
Staða: Ótengdur

Re: Mamma tekur sjónvarpið úr sambandi hverja nótt...

Pósturaf Minuz1 » Mán 20. Jún 2016 21:07

jonsig skrifaði:það þarf ekkert endilega bara ryk til að kveikja í ...

Neisti, eldmat og súrefni.


Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það


Opes
FanBoy
Póstar: 792
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 12:02
Reputation: 22
Staða: Ótengdur

Re: Mamma tekur sjónvarpið úr sambandi hverja nótt...

Pósturaf Opes » Mán 20. Jún 2016 23:17

Minntu hana á að hafa alltaf hjálminn á þegar hún fer út. Það gæti fallið á hana loftsteinn!




arons4
vélbúnaðarpervert
Póstar: 938
Skráði sig: Mið 27. Apr 2011 20:40
Reputation: 126
Staða: Ótengdur

Re: Mamma tekur sjónvarpið úr sambandi hverja nótt...

Pósturaf arons4 » Mán 20. Jún 2016 23:42

Hizzman skrifaði:Það er hægt að kaupa wattmæli sem er settur í venjulegt rafmagnstengi. kostar ekkert rosa mikið (10k ?) íhlutir eða mbr.is etv gætu verið með þetta

þá geturu mælt hversu mikið að wöttum TVið tekur og síðan reiknað kostað við standby-orku

þetta gæti svosem verið einhverjir 1000 kallar á ári

Ef þetta tekur 0.5W (Þetta tæki tekur T.D. 0.3W, sum tæki minna en 0.1W) þá eru þetta rétt tæpar 4.5 kWh ári.
Miðað við þetta þá kostar kílówattstundin kr. 7,27 ef ég skil þessa síðu rétt.

Það gerir tæpar 33 krónur á ári.

Sennilega meiri brunahætta af fjöltenginu til lengri tíma litins ef það er alltaf verið að ýta á rofann(sérstaklega ef það er gert óvarlega, t.d með löppum).
Hef séð skemmtilega mikið kæruleysi í kringum þessi fjöltengi stundum.



Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Mamma tekur sjónvarpið úr sambandi hverja nótt...

Pósturaf urban » Þri 21. Jún 2016 16:53

Minuz1 skrifaði:
jonsig skrifaði:það þarf ekkert endilega bara ryk til að kveikja í ...

Neisti, eldmat og súrefni.

Hiti, eldmatur og súrefni
Það semsagt þarf ekkert endilega neista.


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !