GTX 970, hvaða brand?


Höfundur
bjoggi
Nörd
Póstar: 111
Skráði sig: Mið 27. Ágú 2003 20:35
Reputation: 26
Staða: Ótengdur

GTX 970, hvaða brand?

Pósturaf bjoggi » Sun 26. Apr 2015 17:44

Sælir,
nú er kominn tími á að uppfæra skjákortið. Ég fór að skoða ódýrasta verðið sem er þessi hér:
http://www.start.is/index.php?route=pro ... search=970

En svo fór ég að sjá verulegan verðmun á mismunandi brands, ég sé að það er augljóslega OC og fleira sem er í gangi, en er þetta sem ég bendi á hér að ofan eitthvað verra en eitthvað annað GTX 970 kort?

Ætla að kaupa mér kort á morgun (og spila GTA V), þannig að það væri frábært ef einhverjir hér gætu gefið mér ráð sem allra fyrst :)

Takk!

Kv.
Bjöggi



Skjámynd

nidur
Bara að hanga
Póstar: 1510
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
Reputation: 240
Staðsetning: In the forest
Staða: Ótengdur

Re: GTX 970, hvaða brand?

Pósturaf nidur » Sun 26. Apr 2015 17:45

Kaupa MSI kortið.


Everyone knows the phrases "time is money" and "money is power". That naturally concludes that time is also power. Time gives you the ability to learn how to do things, but people don't want the power in today's world. They want their time and money.


Höfundur
bjoggi
Nörd
Póstar: 111
Skráði sig: Mið 27. Ágú 2003 20:35
Reputation: 26
Staða: Ótengdur

Re: GTX 970, hvaða brand?

Pósturaf bjoggi » Sun 26. Apr 2015 18:15

Gaming kortið? (tiger)



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 5106
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 930
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: GTX 970, hvaða brand?

Pósturaf jonsig » Sun 26. Apr 2015 21:03

PNY er eina sem hefur lifað lengur en 2.5ár hjá mér . Tölvutækni eru oft með þau.

MSI voru flottir fyrst , síðan kom einhver lægð hjá þeim og núna forðast ég msi.



Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2862
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 551
Staða: Ótengdur

Re: GTX 970, hvaða brand?

Pósturaf Moldvarpan » Sun 26. Apr 2015 21:40

Þá hefuru verið sérlega óheppinn Jonsig.

Ég hef átt þó nokkur MSI kort, og öll staðið sig með sóma.

MSI 470 GTX með refrence blower, keypti það notað og seldi það.
MSI 580 GTX með Twin Frozr, keypti það notað og seldi það.
Tók mér hérna pásu á leikjaspilun.
MSI 570 GTX með refrence blower, keypti það notað og seldi það.
MSI R9 280X með Twin Frozr, keypti það notað og er enn að nota það.

Ég var mjög efins með að kaupa AMD skjákort, eftir þó nokkur nVidia kort, en ég sé alls ekki eftir því.
Stórgott kort, sem er gott sem á pari við 770 GTX.



Skjámynd

nidur
Bara að hanga
Póstar: 1510
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
Reputation: 240
Staðsetning: In the forest
Staða: Ótengdur

Re: GTX 970, hvaða brand?

Pósturaf nidur » Sun 26. Apr 2015 21:49

Ég fékk mér Msi 970 gaming,

Það var að fá bestu dómana þegar kortin voru borin saman, performaði örlítið betur, er með 1x6 pin og 1x8 pin rafmagn. Það er hægt að overclocka það. Var alveg jafn hljóðlátt og t.d. asus strix. Ekki mikill hiti og vifturnar stoppa. Annars eru þau öll mjög svipuð.


Everyone knows the phrases "time is money" and "money is power". That naturally concludes that time is also power. Time gives you the ability to learn how to do things, but people don't want the power in today's world. They want their time and money.

Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 5106
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 930
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: GTX 970, hvaða brand?

Pósturaf jonsig » Sun 26. Apr 2015 23:50

já kannski maður fari að fyrirgefa þeim , ég hef alltaf verið að kaupa dýrasta skjákortið hverju sinni eða það næst dýrasta . Og strax í upphafi var ég mikill MSI fan , en svo lenti ég á BSOD útgáfu af rándýru korti frá þeim , og tölvulistinn neitaði að taka það til baka (síðasta skipti sem ég verslaði þar) svo lenti ég á móðurborð sem þéttarnir sprungu í tætlur eftir hálft ár minnir mig .

Kannski offtopic en ég kepyti þarsíðast GTX 295 frá EVGA , það varð ekkert mikið eldra en 2.5 ára :/ smá vonbrigði. Kostaði 140k ef ég man rétt.