


http://www.dailymail.co.uk/sciencetech/article-2762212/The-wait-Apple-fans-world-finally-hands-iPhone-6-end-sold-TRIPLE-price-China.html
GuðjónR skrifaði:Æðið og hysterian í kringum þetta er örugglega að miklu leiti markaðssetninguni að þakka/kenna.
rapport skrifaði:GuðjónR skrifaði:Æðið og hysterian í kringum þetta er örugglega að miklu leiti markaðssetninguni að þakka/kenna.
Það er of auðvelt að segja að þetta sé markaðssetningunni að þakka. Ef símarnir væru lélegir og stýrikerfið óstöðugt og flókið þá væri þetta flop.
Markaðssetning er bara tool sem Apple kann að nota, en það gerir ekki hardware, software eða service eitthvað betra.
Ef varan og þjónustan stendur ekki undir því sem marketing lofar, þá verður fólk yfirleitt nokkuð pissed og vörumerkið lækkar í verði.
Apple á velegngninni að þakka að hafa stýrt öllum þessum þáttum vel og á auðveldara með það því að "apple" stýrir þeim þáttum sem skipta máli s.s. hvaða hardware er notað með þeirra OS.
Þeir blóðmjólka performance úr íhlutum sem eru ekki alveg þeir nýjustu, eru ekki alltaf að skipta um íhluti og ná því að skapa sér hellings hagnað o.þ.h.
braudrist skrifaði:Já, því allir aðrir Android símar eru illa hannaðir og virka ekki...
Tesy skrifaði:Þetta fólk er ekki að bíða í röð fyrir iPhone.. Þau eru að bíða í röð fyrir RESPECT. Þú færð ekki 100% respect nema þú sért með apple vöru. Þetta er fact.
rapport skrifaði:Tesy skrifaði:Þetta fólk er ekki að bíða í röð fyrir iPhone.. Þau eru að bíða í röð fyrir RESPECT. Þú færð ekki 100% respect nema þú sért með apple vöru. Þetta er fact.
Ef ég þyrfti apple vöru til að fá virðingu og virða sjálfan mig... þá væri ég s.s. blankur?
Þetta er hugsanlega e-h sem sálfræðingar og félagsþjónustan ættu að skoða...![]()
braudrist skrifaði:Já, því allir aðrir Android símar eru illa hannaðir og virka ekki...
elight82 skrifaði:Ég er búinn að vera að nota Apple vörur í rúmlega átta ár, eftir að hafa átt fullt af PC tölvum sem mér fannst alltaf vera jafn mikið drasl.
Ég fíla Apple af því að OS X er notendavænasta stýrikerfi fyrir einkatölvur sem til er og iOS er notendavænasta stýrikerfi fyrir snjallsíma sem til er, að mínu mati.
Á þessum átta árum hef ég farið frá því að vera almennur hugbúnaðarnotandi yfir í að vera farinn að aðlaga stýrikerfið að mínum þörfum með ýmsum viðbótum, nota skelina alltaf meira og meira og svo framvegis.
Ég er grafískur hönnuður, en er nú á þriðja ári í tölvunarfræði og enginn í þessu námi hefur meiri sveigjanleika varðandi hugbúnað og stýrikerfi en OS X notendur. Það er hægt að setja upp Windows og óteljandi flavor af Linux, án þess að kveðja þægindi OS X.
Þegar kemur að útliti eru tölvurnar eins og sérhannað listaverk. Enginn annar framleiðandi en Apple hefur efni á því að kaupa 10 þúsund CNC vélar til að skera út unibody skeljarnar úr áli. Færustu iðnhönnuðir heims sjá til að það sé gert af þvílíkri snilld að tölvurnar væri hægt að setja á listasafn.
Annar vélbúnaður er eins framarlega og best verður á kosið. Þegar kemur að sjálfu innihaldinu er vísast hægt að fá flest af þessu í PC útgáfum. Það er góð ástæða fyrir Hackintosh-samfélaginu. Vélbúnaðurinn er dýr og margir sækjast eftir hugbúnaðarumhverfinu.
En Apple er líka orðið að stöðutákni, sérstaklega eftir að iPhone sló svona vel í gegn. Gullaldartíð Apple er líklega lokið sem einhverskonar tískubylgju, og það er eins og fyrirtækið sé hætt í eiginlegri nýsköpun. En það þýðir samt ekki að Apple muni hætta að framleiða vörur sem milljónir manna munu velja framyfir aðrar.
GuðjónR skrifaði:Ætli besta samlíkingin sé ekki sú að iPhone (iOS) sé eins og vel hannaður 6 cylindra bíll með jöfnum lofþrýsingi í öllum dekkjum á móti hinum símunum (Android) sem er eins og 8 cylindra tryllitæki á fjórum loftlausum dekkjum.
iPhone er vinsæll af því er vel hannaður og virkar.
thehulk skrifaði:Er Android lélegt alls ekki? Er það illa skrifað stýrikerfi? Ég myndi segja það
Sjáum rafhlöðuendingu
http://www.phonearena.com/news/With-the ... id_id59571
HTC One M8 sem er með 12 tíma rafhlöðu þegar keyrt er í Android umhverfinu
HTC ONE M8 WP sem er með 24 tíma rafhlöðu í Windows Phone umhverfinu
Ég veit að þessi umræða snýst ekki um Android eða WP, það er samt greinagóður munur á rafhlöðuendingu á þessum 2 símum. Ég held að WP hafi stjórnina á þessu útaf lokuðu ecosystem eins og Apple eru að gera. ÞEAS... Þessir símar hafa ekki óþarfa bloatware, eins og Samsung með nokkur GB af bloatware og að auki að reyna búa til ecosystem inn í android símanum.
Kóði: Velja allt
"There's an adapter for that"
upg8 skrifaði:Apple hefur gífurleg áhrif á fjölmiðla, þeir eru ekki hlutlausir.
http://9to5mac.com/2014/08/29/seeing-through-the-illusion-understanding-apples-mastery-of-the-media/
Hvernig fór Joan Rivers að því að dásama iPhone 6 á Instagram og Facebook mörgum dögum eftir andlát hennar?. Frægt fólk er keypt úr og almenningur gleypir við því. http://www.tmz.com/2014/09/19/joan-rivers-iphone-6-facebook-instagram
Skoðum svo Beats, það eru virkilega léleg heyrnatól miðað við verð en vegna þess hversu vel þau voru auglýst og fengu gott endorsemen frá fræga fólkinu þá er fjöldi fólks í dag sem virkilega trúir því að Beats séu að framleiða bestu heyrnatólin á markaðnum.
Munum það að þegar iPhone kom á markað þá voru engin apps, ekki 3G né heldur front facing myndavél, HTC voru t.d. að gera síma með meiri upplausn og fleiri eiginleikum en Apple gera það sem þeir gera best og það er að gera ráð fyrir skakka háskólanemanum.