Plushy skrifaði:Pointið er að þá þarf ég ekki að gera mér sér ferð í einhverja vínbúð þegar ég er búinn í bónus eða hagkaup. Þá er eflaust líka hægt að kaupa á sunnudögum til átta þegar vínbúðirnar eru almennt lokaðar t.d.
En eru vínbúðinar samt ekki oftast nálægt hvort eð er? Ég er svona eina og hálfa mín á keyra í vínbúðina eftir að hafa verslað í bónus eða nettó þar sem að ég á heima. Vill frekar keyra aðeins meira heldur en að borga meira fyrir minna úrval af áfengi.
Skari skrifaði:Þetta er nú svona hérna í Noregi, ekki hægt að kaupa eftir kl 20:00 og þeir eru mjög strangir með það, skiptir ekki máli þótt þú hafir verið að bíða í röð í 5 mínutur til að komast að kassanum..
Um helgar er það svo lokað eftir 18:00 og svo eru nánast allt lokað á sunnudögum.
Get lofað þér því að þetta venst, fyrst fannst mér hallærislegt að það væri lokað allstaðar á sunnudögum og með áfengið að ekki væri hægt að kaupa eftir 20:00 þótt verslunin væri opin lengur.
Hef bara þurft að skipuleggja helgarnar þá betur og það venst.
Er þetta ekki annars alltaf svona, viljum allt NÚNA og að það kosti ENGANN pening og það að skipuleggja 1 -2 dag fram í tímann er óhugsandi.
Ég vill ekki meina að þetta sé eitthvað stórmál. Mér finnst það bara asnalegt að vilja einkavæða áfengið en setja síðan á reglur sem að þýða að þetta breytir mjög litlu.