Tölva drepur sig í ræsingu.


Höfundur
Bjosep
Geek
Póstar: 880
Skráði sig: Þri 16. Maí 2006 17:48
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Tölva drepur sig í ræsingu.

Pósturaf Bjosep » Fim 10. Júl 2014 17:49

Sælir

Mig vantar aðstoð með bilanagreiningu eða álit á hvað er í gangi með eina tölvu á heimilinu.

Þannig er mál með vexti að fyrir nokkru tók hún upp á því að drepa á sér svona um sekúndu eftir að maður ýtti á straumhnappinn til að ræsa hana. Í einfaldri leit prufaði ég að taka skjákortið úr og þá vildi hún ræsa sig en gaf frá sér eitthvað bios píp sem bentu til þess að skjákortið vantaði (skv. þessu http://www.overclockers.com/forums/show ... p?t=218664) en þegar skjákortið var sett í hana aftur þá drap hún bara á sér aftur í ræsingu eins og vanalega. Haldandi að þetta væri skjákortið skipti ég um það en nei það breytti engu.

Þá skipti ég um aflgjafa og tölvan rýkur í gang og ég hélt að málið væri leyst. Daginn eftir þegar ræsa á tölvuna þá byrjar hún aftur á því að drepa á sér í ræsingu. Ég prufa að taka skjákortið úr og það eina sem gerist er að hún snýr örgjörvaviftunni en gefur engin píp frá sér. Öll ljós kvikna á móðurborðinu.

Það sem ég hef prufað til þessa er að rífa öll vinnsluminnin úr og setja þau í aftur og augljóslega skjákortið, örgjörvann hef ég ekki snert en skyldi ætla að hann væri ekki vandamálið þar sem tölvan keyrði upp þegar ég skipti um aflgjafa, auk þess prufaði ég að rífa rafhlöðuna úr til að endurræsa bios en það hjálpaði ekkert.

Móðurborðið er Abit K8N (eitthvað)
Örgjörvinn er AMD 3800 x2 (939)
Skjákortið er Nvidia 8500 viftulaust
4x 512 MB 400 Mhz DDR vinnsluminni
Aflgjafinn er 360W Chieftec eitthvað, líklegast orðinn 10 ára gamall.

Ef einhver hefur ráðleggingar eða veit að eitthvað er ónýtt út frá lýsingunni vil ég ólmur heyra í ykkur

kv.



Skjámynd

brain
1+1=10
Póstar: 1144
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
Reputation: 161
Staða: Ótengdur

Re: Tölva drepur sig í ræsingu.

Pósturaf brain » Fim 10. Júl 2014 20:43

Hefur nokkurn tíma verið skipt út bios rafhlöðuni á móðurborðinu ?

Þar sem þetta er eldi vél, þá er alltaf möguleiki að það sé búið,

Taka úr og mæla .




Höfundur
Bjosep
Geek
Póstar: 880
Skráði sig: Þri 16. Maí 2006 17:48
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Tölva drepur sig í ræsingu.

Pósturaf Bjosep » Fim 10. Júl 2014 21:36

Ég skipti henni út og núna ræsir hún sig og keyrir :happy



Skjámynd

brain
1+1=10
Póstar: 1144
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
Reputation: 161
Staða: Ótengdur

Re: Tölva drepur sig í ræsingu.

Pósturaf brain » Fim 10. Júl 2014 22:04

flott !




Höfundur
Bjosep
Geek
Póstar: 880
Skráði sig: Þri 16. Maí 2006 17:48
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Tölva drepur sig í ræsingu.

Pósturaf Bjosep » Lau 12. Júl 2014 12:23

Og þetta er byrjað aftur. Það er hægt að ræsa tölvuna í einhvern óákveðinn tíma með því að rífa allt úr henni og setja í aftur en hún drepur síðan á sér og vill ekki fara í gang aftur.

Ónýtt móðurborð bara?

Baka það bara ? :fly




JohnnyX
/dev/null
Póstar: 1442
Skráði sig: Sun 04. Jan 2009 18:25
Reputation: 14
Staða: Ótengdur

Re: Tölva drepur sig í ræsingu.

Pósturaf JohnnyX » Lau 12. Júl 2014 23:58

Búinn að útiloka aflgjafann?



Skjámynd

brain
1+1=10
Póstar: 1144
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
Reputation: 161
Staða: Ótengdur

Re: Tölva drepur sig í ræsingu.

Pósturaf brain » Sun 13. Júl 2014 09:27

Þegar þú skiptir um rafhlöðu,og vélin fór í gang, fórstu yfir bios og settir upp ?

Notaðirðu nýja rafhlöðu ?



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8736
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1403
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Tölva drepur sig í ræsingu.

Pósturaf rapport » Sun 13. Júl 2014 17:53

Ekki gæti bios rafhlaðan verið að leiða út?

Er móðurborðið örugglega einangrað frá kassanum?



Skjámynd

beggi90
Gúrú
Póstar: 529
Skráði sig: Mið 15. Okt 2008 21:02
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Tölva drepur sig í ræsingu.

Pósturaf beggi90 » Sun 13. Júl 2014 18:03

Gamalt móðurborð, eru nokkuð þéttar farnir að leka?

http://en.wikipedia.org/wiki/Capacitor_plague




Höfundur
Bjosep
Geek
Póstar: 880
Skráði sig: Þri 16. Maí 2006 17:48
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Tölva drepur sig í ræsingu.

Pósturaf Bjosep » Sun 13. Júl 2014 22:39

Ég held að það sé alveg örugglega hægt að útiloka aflgjfann, ég skipti um hann og hún hefur keyrt sig upp á honum hvort eð er.

Þegar ég skipti um rafhlöðuna þá valdi ég load fail save defaults minnir mig að þetta heiti og hafði áður prufað optimum valkostinn þegar ég skipti um skjákortið.

Rafhlaðan var ekki glæný en spennan á henni var 3.1 V samanborið við 2.9 á gömlu rafhlöðunni.

Ég sé engin merki um að neinir þéttar séu skemmdir. Ég grandskoðaði það í gær.

Hvað varðar útleiðslu þá finnst mér það ólíklegt þar sem ekkert hefur breyst og móðurborðið er á sínum pinnum bara eins og alltaf undanfarin 4 ár og er þá tæpan cm frá kassanum.

Útleiðsla í rafhlöðu er ekki útilokuð en ég hef ekki athugað það ennþá.



Skjámynd

brain
1+1=10
Póstar: 1144
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
Reputation: 161
Staða: Ótengdur

Re: Tölva drepur sig í ræsingu.

Pósturaf brain » Mán 14. Júl 2014 00:44

Þyrftir að nota nýja rafhlöðu. maður er aldrei viss með gömlum.

En kemstu í bios núna eða slekkur hún strax á sér ?




Höfundur
Bjosep
Geek
Póstar: 880
Skráði sig: Þri 16. Maí 2006 17:48
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Tölva drepur sig í ræsingu.

Pósturaf Bjosep » Mán 14. Júl 2014 09:25

Tölvan bara drepur á sér um leið og ég ýti á hnappinn og ég kemst þar af leiðandi ekki inn í neitt.



Skjámynd

brain
1+1=10
Póstar: 1144
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
Reputation: 161
Staða: Ótengdur

Re: Tölva drepur sig í ræsingu.

Pósturaf brain » Þri 15. Júl 2014 13:19

Ef power pack er í lagi, verðuru að mæla bios rafhlöðuna.