GimliGamli skrifaði:1. lagi. ég veit ekkert hvað ég er að gera
Jæja félagi, hér kemur ein salla fín leið til að flassa BIOS (ATH: Þú ert ekki að flassa Móðurborðið heldur ertu að flassa BIOS

)
1. Fara í ískápinn og fá sér einn kaldann
2. Fara á internetið og finna
réttan BIOS
3. Finna diskling og setja hann í disklingalesarann
4. Hægri smella á drifið í My computer og velja format
5. Haka í "Create an MS-DOS startup disk" og velja síðan "start"
6. Ferð inn á disklinginn og eyðir öllum skrám nema command.com, io.sys og msdos.sys . Einnig geturðu einungis forsnítt diskling og afritað þessar þrjár skrár inn á disklinginn og þá ertu til
7. Afþjappar BIOS inn á diskettuna og endurræsir tölvuna
8. Þegar tölvan ræsir sig upp á disklingnum þá skrifarðu "amifl827 A6561SMS.170" ( með þessu er ég að vitna í BIOS v1.7 sem þú sagðir frá ) ATH! þessi lína virkar einungis fyrir MSI 745 ULTRA móðurborð.
9. Þegar það er búið þá endurræsirðu vélina og vonar það besta, ef tölvan ræsir sig ekki aftur...
THEN YOU'RE UP SHIT CREEK, SANS PADDLE!
Annars fylgja greinagóðar leiðbeiningar með BIOS skránni, ef þú hefðir bara kíkt... RTFM marr
