Afhverju er Linux svona ljótt á desktop?


hfinity
Græningi
Póstar: 34
Skráði sig: Mið 18. Jan 2012 23:17
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Afhverju er Linux svona ljótt á desktop?

Pósturaf hfinity » Fös 28. Jún 2013 19:57

Lærðu það að þú ert nú sjálfur með hausinn í rassinum og mjög lokaður.

Linux hefur alltaf verið meira erfiðara að stilla en Windows eða Mac OS og það er vegna þess að það á að vera þannig. Hugsunin í gangi hér er að fólki ACTUALLY kunni á það sem þeir eru að nota.

Þegar þú ert að nota tölvu þá þarftu að kunna á það sem þú ert að nota. Fullt af fólki í dag sem notar tölvur vita ekki neitt í hausnum á sér hvað þau eru að gera og þurfa að koma vælandi til okkar sem kunna á þetta vegna þess að þau settu einhver forrit sem innihalda fullt af spyware og malware shitti og er búið að gera tölvuna sína ónothæfa. Þegar þú notar Linux þá þarftu að fikta og læra á það sem þú ert að gera og velja út það sem þér líkar best við.

Það er engan vegin erfitt að finna góð útlit bæði fyrir Gnome og KDE og alls ekki erfitt að setja það efni inn með skelinni eða með einhverju af þeim forritum sem eru til þess að gera það automatic fyrir þig. Mörg hver notast við .deb skrár eða pakkakerfið til að gera instant install. Þú þarft bara að vita hvað þú ert að gera og leita að hjálp en ekki væla yfir því að þetta sé of erfitt. Fyrir nokkrum árum var ég með KDE með æðislega flottu útliti og notaðist við Compiz til að gera fullt af 3D stuffi. Það tók svolítinn tíma að fikta og læra en þegar ég var búinn fékk ég óendanlegt satisfaction tilfinningu yfir því að hafað klárað eitthvað challenge.

Til að notast við Linux þarftu að hafa viljann til að ráðast á challenge og ekki stoppa fyrr en þú fullkomnar það, alveg eins og í tölvuleikjum. Fólk í dag er sjálfselskt og hrokafullt og lætur alla gera allt fyrir sig, afhverju heldur þú að við Linux "gúrúarnir" séum oft svona pirraðir?

- - -

Það eru nokkrir sem eru að reyna að gera Linux útgáfur sem eru meira dumbed down og auðvelt að fikta og eyðileggja meir. En það eru mörg mörg ár ennþá í það vegna þess að fólk á bakvið Linux fá ekki nóg support.



Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 5459
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1007
Staða: Ótengdur

Re: Afhverju er Linux svona ljótt á desktop?

Pósturaf appel » Fös 28. Jún 2013 20:18

^ þessi hugsunargangur tryggir að Linux komist aldrei yfir 2% þröskuldinn á desktop markaðnum. Microsoft þarf ekki að óttast neitt held ég, viðhorf Linux-manna gulltryggir Microsoft einokun á desktop markaðnum næstu árþúsundin.

Þú ert að segja að fólk sé heimskt, Linux eigi að vera erfitt, og það er engan veginn flókið að nota Linux, en fólk er bara svo sjálfselskt og hrokafullt.

Já, "fólk", það er flókið að eiga við það. Engin furða að "Linux gúrúar" verða svona pirraðir þegar kemur að samskiptum við venjulegt fólk, sérstaklega þegar þetta venjulega fólk kemur með gagnrýnar athugasemdir um þeirra æðislegu kerfi, sem eiga að vera flókin en eru svo einföld!


*-*


hfinity
Græningi
Póstar: 34
Skráði sig: Mið 18. Jan 2012 23:17
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Afhverju er Linux svona ljótt á desktop?

Pósturaf hfinity » Fös 28. Jún 2013 20:41

Sýnir einfaldlega bara hroka í þér kallinn.

Ástæða þess að Linux kemst ekki yfir þinn precious 2% markað er allt vegna þess að Linux hefur aldrei haft gott tal í auglýsingaherferðum.
Það er mjög erfitt að fá sitt kerfi á commercial markaðinn þegar það er svona opið og svo ótrúlega margir möguleikar til á því.
Eina leiðin til að fá fólk til að fara útfyrir kassann er að auglýsa það en lengsta sem Linux hefur náð þar er Android.
*Edit * Canonical hefur náð langt en samt ekki svo langt

Hvar er orðið "heimskt" í svari mínu? Fólk velur að ekki læra hlutinn og vælir og það er vitlaust. Ég vel ekki orðið heimskingi.
Það er engan vegin flókið að nota Linux þegar þú hefur lesið þér til um hvernig þú átt að gera hlutina.
Athugasemd þín er alveg vel tekin en þú þarft samt að snúa út úr og bæta inn mörgum öðrum hlutum sem koma málinu ekkert við.

Þú varst að tala um hvernig Linux er alltaf ljótt og það er svo erfitt að laga það, en afhverju þarftu að henda inn öðru röfli á milli? Talaðu um hlutinn sem þú ert að spurja um og kannski getum við hjálpað þér.
Þegar fólk er svona lokað og reynir alltaf að snúa útúr í staðinn fyrir bara að spurja eina littla spurningu þá er fólk mest pirrað.

Ég er proud Windows notandi því ég þarf þess fyrir mína vinnu af því að það er ekki svo mikið support ennþá fyrir mína vinnu á Linux.
Ekki væli ég í fólki þegar ég er ekki sáttur heldur gef ég góða ástæðu afhverju fólk ætti líka að prófa nýja hluti.



Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2012
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Afhverju er Linux svona ljótt á desktop?

Pósturaf tdog » Lau 29. Jún 2013 00:31




Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 5459
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1007
Staða: Ótengdur

Re: Afhverju er Linux svona ljótt á desktop?

Pósturaf appel » Lau 29. Jún 2013 00:36

tdog skrifaði:http://biebian.sourceforge.net /þráður


Það eru til yfir 300 distro af Linux. Enginn alvöru commercial vendor vill búa til hugbúnað fyrir Linux. I wonder why.


*-*

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Afhverju er Linux svona ljótt á desktop?

Pósturaf dori » Lau 29. Jún 2013 02:23

Varðandi að uninstalla virkar apt-get remove til að henda pökkum. dpkg til að sýna pakka sem eru uppsettir.

Ef þú nennir ekki command line þá gerir Synaptic Package Manager sirka það sama.



Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3090
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 522
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Afhverju er Linux svona ljótt á desktop?

Pósturaf Hjaltiatla » Lau 29. Jún 2013 03:02

Eina sem ég sé að gæti fengið linux distro til að hækka markaðshlutfallið og fá forritara til að hanna hugbúnað í dag fyrir linux er vegna uppljóstrana Snowden (open source er alveg af hinu góða en það þyrfti að vera örlítið meira mainstream til þess að atvinnurekendur myndu taka distroin í sátt). Þegar á botnin er hvolft þá myndi ég persónulega ekki ef ég væri að reka fyritæki vilja þurfa að aðstoða einstaklinga á linux distro oftar vegna þess að stýrikerfið er flóknara að læra á vs það að borga leyfisgjald fyrir stýrikerfi sem er auðveldara að læra á og fólk kæmi meira í verk (þ.e almennur notandi).


Just do IT
  √


hfinity
Græningi
Póstar: 34
Skráði sig: Mið 18. Jan 2012 23:17
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Afhverju er Linux svona ljótt á desktop?

Pósturaf hfinity » Lau 29. Jún 2013 03:16

^ True. Linux hefur aldrei haft fólk í sátt um eitt allt þetta frelsi og aldrei nógu auðvelt til að hægt sé að gera eitthvað skemmtilegt.




marijuana
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 349
Skráði sig: Fim 04. Feb 2010 15:09
Reputation: 7
Staðsetning: Seltjarnarnes
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Afhverju er Linux svona ljótt á desktop?

Pósturaf marijuana » Lau 29. Jún 2013 13:52

appel skrifaði:
tdog skrifaði:http://biebian.sourceforge.net /þráður


Það eru til yfir 300 distro af Linux. Enginn alvöru commercial vendor vill búa til hugbúnað fyrir Linux. I wonder why.


Þú sagðir það sjálfur, einungis 2% markaðshlutdeild á desktop. Ef fólk myndi nota Linux, þá væri kannski eitthver alvöru commercial vendor til í að búa til forrit fyrir linux. Og öfug. ](*,)



Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2806
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 195
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: Afhverju er Linux svona ljótt á desktop?

Pósturaf CendenZ » Lau 29. Jún 2013 14:36

Mint 15 "olivia" er nú frekar fallegt og einfalt að mixa útlit á það ;)

IMO er það eina *nix distróið sem á einhvern séns í að verða windows replaceamentið.. hin eru bara of óþjál fyrir flesta.



Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 5459
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1007
Staða: Ótengdur

Re: Afhverju er Linux svona ljótt á desktop?

Pósturaf appel » Lau 29. Jún 2013 15:55

Bara útaf því að taskbarinn er niðri og svona start takki þýðir ekki að þetta eigi séns í að vera windows replacement.

Hvað er fallegt er huglægt frá einum til annars. Persónulega finnst mér Linux Mint amatörlegt. Windows 7 er glæsilegt í samanburði. Svolítið einsog að bera saman Skoda Fabia við MercedesBenz.
Einsog ég sagði, þetta er huglægt.


*-*


kthordarson
Fiktari
Póstar: 85
Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:32
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Afhverju er Linux svona ljótt á desktop?

Pósturaf kthordarson » Sun 30. Jún 2013 15:24

Er með þrjár ferðavélar á heimilinu sem allar keyra linux núna. Tvær ubuntu, ein Mint. Verð að viðurkenna að það tók smá tíma að venjast breyttu útliti. Þegar maður er búinn að gefa þessu smá tíma og fikta er enginn ástæða að fara aftur í windows.
Default útlit er dálítið klunnalegt en þegar maður er búinn að laga fonta og icon stærðir er þetta bara mjög flott. Þarft bara að gefa þessu séns og fikta í þessu.




coldcut
Vaktari
Póstar: 2192
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/random
Staða: Ótengdur

Re: Afhverju er Linux svona ljótt á desktop?

Pósturaf coldcut » Mán 01. Júl 2013 09:57

Ég setti Linux upp fyrst eftir að hafa notað Windows Vista (þá glænýtt) í u.þ.b. 5 daga og ég lenti aldrei í neinu veseni með það. Ég tweakaði það á svona 30mín og þá var ég ready to go og hef aldrei litið til baka síðan.

Ease of usability og útlit er huglægt! Spurning um að maður hendi upp Windows 7 (legg ekki í Windows 8) í VM og skrifa einn rage-þráð um það hvað það er allt erfitt og ekkert virkar eins og ég vil, ég þurfi að sækja .exe skrár fyrir öll forrit, passa dependency and so on.

[rage]
Til Windows-manna: Verið bara í Windows ef þið eruð ekki til í að eyða tíma í að læra almennilega á Linux (þið eruð búnir að eyða áratug+ í að læra á Windows)! Það er enginn að neyða ykkur að nota Linux en ef þið viljið prófa þá er alltaf hjálp að finna. En þegar þið nennið ekki að eyða meiri tíma í þetta þá er algjör óþarfi að starta einhverju OS-war því það nennir því enginn!
[/rage]

Good riddance!


P.S. Hvar fá menn 2% töluna varðandi markaðshlutdeild? Ég er 100% á að sú tala er lægri..



Skjámynd

Talmir
has spoken...
Póstar: 163
Skráði sig: Fös 27. Sep 2002 01:04
Reputation: 1
Staðsetning: RVK
Staða: Ótengdur

Re: Afhverju er Linux svona ljótt á desktop?

Pósturaf Talmir » Mán 01. Júl 2013 10:00

appel skrifaði:
tdog skrifaði:http://biebian.sourceforge.net /þráður


Það eru til yfir 300 distro af Linux. Enginn alvöru commercial vendor vill búa til hugbúnað fyrir Linux. I wonder why.


Ég vinn hjá Íslensku fyrirtæki sem býr einungis til hugbúnað fyrir Linux og lifir mjög góðu lífi :P




coldcut
Vaktari
Póstar: 2192
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/random
Staða: Ótengdur

Re: Afhverju er Linux svona ljótt á desktop?

Pósturaf coldcut » Mán 01. Júl 2013 11:37

Talmir skrifaði:
appel skrifaði:Það eru til yfir 300 distro af Linux. Enginn alvöru commercial vendor vill búa til hugbúnað fyrir Linux. I wonder why.


Ég vinn hjá Íslensku fyrirtæki sem býr einungis til hugbúnað fyrir Linux og lifir mjög góðu lífi :P


Ég nenni ekki einu sinni að byrja á að quotea rangfærslur hjá mönnum í þessum þræði en ég fagna því að þú nennir því. Sálfur hef ég nóg að gera í að administera þessum nokkur hundruð Linux-serverum sem fyrirtækið sem ég vinn hjá rekur.

Súpertölvurnar keyra á Linux. Cloudið keyrir á Linux. Stórfyrirtækja data-centerinn keyra á Linux. "Internetið" keyrir á Linux. Embedded devices keyra á Linux. Stór hluti mobile devices (smart) keyra á Linux.




Swanmark
Tölvutryllir
Póstar: 643
Skráði sig: Sun 11. Mar 2012 21:57
Reputation: 22
Staðsetning: ~/
Staða: Ótengdur

Re: Afhverju er Linux svona ljótt á desktop?

Pósturaf Swanmark » Mán 01. Júl 2013 12:07

coldcut skrifaði:Stór hluti mobile devices keyra á Linux.


Er það ekki bara allt nema windows phone? :p


Desktop
| i7 3770k @4.7GHz 1.35v | Corsair H100i | Corsair Vengeance CL9 4x4GB | MSI GeForce GTX 980 Twin Frozr V | MSI Z77A-G43 | Corsair GS 700w | Samsung 840 Evo 120GB | Seagate 5TB 7200rpm |

Server
| i7 920 @2.66GHz | Corsair Vengeance 4x4GB | Seagate 3TB 7200rpm | XFX R9 280x


coldcut
Vaktari
Póstar: 2192
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/random
Staða: Ótengdur

Re: Afhverju er Linux svona ljótt á desktop?

Pósturaf coldcut » Mán 01. Júl 2013 12:11

Swanmark skrifaði:
coldcut skrifaði:Stór hluti mobile devices keyra á Linux.


Er það ekki bara allt nema windows phone? :p


iOS er nú með ágætis market share! Og svo er Symbian ennþá inní myndinni.



Skjámynd

tlord
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Mið 30. Nóv 2011 17:28
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Afhverju er Linux svona ljótt á desktop?

Pósturaf tlord » Mán 01. Júl 2013 12:47

er ekki verið að tala um glugga-desktop? - flestir taka undir að Linux sé fínn í server

er ekki makkinn með glugga sem keyra á bsd(næstum línux) ?
það sýnir þá að þetta er mögulegt



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3812
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 140
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Afhverju er Linux svona ljótt á desktop?

Pósturaf Daz » Mán 01. Júl 2013 13:21

coldcut skrifaði:
Talmir skrifaði:
appel skrifaði:Það eru til yfir 300 distro af Linux. Enginn alvöru commercial vendor vill búa til hugbúnað fyrir Linux. I wonder why.


Ég vinn hjá Íslensku fyrirtæki sem býr einungis til hugbúnað fyrir Linux og lifir mjög góðu lífi :P

Súpertölvurnar keyra á Linux. Cloudið keyrir á Linux. Stórfyrirtækja data-centerinn keyra á Linux. "Internetið" keyrir á Linux. Embedded devices keyra á Linux. Stór hluti mobile devices (smart) keyra á Linux.

Sem kemur upphaflegu umkvörtuninni samt lítið við.

Ég er með eina vél sem keyrir nýlegt-ish desktop Ubuntu. Unity pirrar mig svo mikið að ég hef íhugað að verða mér út um annað Windows XP/7 leyfi bara til að losna við Unity. Ég er of latur til að nenna að læra nýja hluti. Við erum samt að tala um að Unity hefur fengið mig til að öskra á tölvuna, sem hefur ekki gerst síðan Championship manager var og hét.
Linux CLI/skel/??? hefur aftur á móti aldrei látið mig öskra á eitt eða neitt, því þar geri ég ráð fyrir að þurfa að læra nýja hluti. Þegar eitthvað virkar ekki þar eins og ég vil/býst við, þá þoli ég það.




coldcut
Vaktari
Póstar: 2192
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/random
Staða: Ótengdur

Re: Afhverju er Linux svona ljótt á desktop?

Pósturaf coldcut » Mán 01. Júl 2013 14:44

Þið virðist bara ekki fatta fegurðina við open-source. Frelsi til að breyta, dreifa og skoða hugbúnað auk þess að geta valið hugbúnað.

Ósáttur með Unity -> Gnome, KDE, XFCE, LXDE, MATÉ, Fluxbox, Cinnamon o.s.frv.
Vilt ekki DE -> i3, awesome, xmonad, ratpoison, qtile o.s.frv.
Vilt ekki WM -> Vinnur bara í skel

Ef amma mín og afi og tengdaforeldrar mínir (öll eru þau tækniheft) geta notað Ubuntu/Mint þá hafið þið engar afsakanir, bara sorrý.

En commentið hjá Daz summar þessu vel upp:
Ég er of latur til að nenna að læra nýja hluti.

Ég held að þetta sé bottom lineið. Það þarf tíma til að læra á nýja hluti og menn þurfa að nenna því.

Set þetta hér fyrir alla þá sem langar að prófa Linux en eru að koma úr Windows: Prófiði fyrst Zorin OS! Það er basically Ubuntu með Windows skin.



Skjámynd

tlord
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Mið 30. Nóv 2011 17:28
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Afhverju er Linux svona ljótt á desktop?

Pósturaf tlord » Mán 01. Júl 2013 14:56

sumir vilja bara nota tölvuna og eru að gera eitthvað annað sem áhugamál,

allir eru ekki eins



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3812
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 140
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Afhverju er Linux svona ljótt á desktop?

Pósturaf Daz » Mán 01. Júl 2013 15:04

tlord skrifaði:sumir vilja bara nota tölvuna og eru að gera eitthvað annað sem áhugamál,

allir eru ekki eins


Það er hinn punkturinn í þessu öllusaman, sum okkar væru til í að fá Windows replacement. Erum jafnvel að fiska eftir því með svona umræðuþráðum hvaða iso maður á að sækja ef maður vill gera sem minnst til að fá stýrikerfi sem "bara virkar".

Svo ég endurtaki það sem ég sagði áðan í stuttu máli. Setti upp ubuntu "desktop". Hárreitti mig. Setti upp ubuntu "server". Vann með það. Ég var til í að eyða tíma í server því það var nýtt fyrir mér, ég nennti ekki að eyða tíma í desktop, því desktoppið er jú bara hraðahindrun í að komast í það sem maður vill vinna með, s.s. forritin sjálf.




coldcut
Vaktari
Póstar: 2192
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/random
Staða: Ótengdur

Re: Afhverju er Linux svona ljótt á desktop?

Pósturaf coldcut » Mán 01. Júl 2013 15:27

Þetta ætti að vera safe.

Zorin OS: http://bit.ly/16U6mHx
Mint (Cinnamon): http://speglar.simnet.is/mint/iso/stabl ... -64bit.iso



Skjámynd

Swooper
1+1=10
Póstar: 1103
Skráði sig: Lau 02. Ágú 2008 22:11
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Re: Afhverju er Linux svona ljótt á desktop?

Pósturaf Swooper » Mið 03. Júl 2013 16:43

Ég er sammála þér, Appel, að Mint beint úr kassanum er ekki sérlega flott (skárra en OS X samt). En það er með innbyggðu theme-tóli sem er ekkert mál að nota til að fá aðgang að mörg hundruð mismunandi themes. Seriously, það er bara Menu > Settings > Themes > Get more online. Fjögur músarklikk til að komast í listann af þeim öllum. Þarft ekkert að grúska í neinum config fælum eða downloada einhverjum pökkum af 3rd party vefsíðum eða varla hafa neina tæknikunnáttu yfir höfuð. Ef það er of mikið fikt fyrir þig, þá er þér ekki við bjargandi :lol:

Edit: Ég er sjálfur með aðeins flóknari tweaks en það, en samt ekkert mikið, og þau tweaks eru engan vegin nauðsynleg til að gera OSið fallegt.


PC Fractal Design R4 | Intel 3770K @ 3.5GHz + NZXT Havik 140 | Asus Sabertooth Z77 | Corsair 16GB DDR3 1600MHz | Asus GeForce GTX 670 DirectCU II | Samsung 830 256GB | WD Green 2.0TB | Corsair AX 750W | 2x Dell 27" IPS S2740L | QPAD MK-80 (Cherry MX brown) | Asus RoG Gladius | Win 10 Pro 64bit
Sími OnePlus X | Oxygen OS 3.1.3 [Android 6.0.1]
Tablet Nexus 9 32GB LTE | Stock 6.0.1