Nú er ég að fara að uppfæra í ágætis tölvu og valið varðandi vinnsluminni stendur fyrst og fremst á milli þessara þriggja:
* Corsair ValueSelect pöruð 2 stk. 256MB, DDR400 184pin, PC3200, 400MHz, CL2,5, Lífstíðarábyrgð - att.is - 11.960 kr.
* PC3200 Mushkin Basic Green 256mb x2 - 9.500 kr.
* 256MB DDR400 184pin, PC3200, 400mhz x2 - att.is - 7.700
Er einhver rosalegur munur á þessum minnum í frammistöðu, eða er þetta bara merkjavaran sem ég er að kaupa? Ef ég kaupi ódýrasta noname minnið, gæti það orðið flöskuháls í uppfærslunni minni? Ég vil helst ekki taka dýrasta minnið þarna ef t.d. Mushkin eða jafnvel noname minnið skilar næstum jafn góðum árangri. Eru til einhverjar samanburðartöflur? Hvað ætti ég að gera í stöðunni? :l