Mæti í ELKO, og ekkert svakalega mikið að gera, svona miðlungs myndi ég segja. Fór í hljóðherbergið og þar voru nokkrir soundbarar. Bara einn var tengdur, sá dýrasti, hinir voru ekkert tengdir, ekki einu sinni við rafmagn. Ég vildi fá að heyra hljóminn úr þeim svona til að vita hversu öflugt þetta er, þannig að ég reyndi að leita uppi starfsmann til að tengja þá, en enginn starfsmaður gaf færi á sér, enginn kom og spyrja mig hvort hann gæti aðstoðað þótt ég hafi gónað um allt einsog hálfviti. Fór á þessa "þjónustustöð" og enginn starfsmaður þar heldur. Stóð á skiltum að það ætti að taka "númer", en hvergi var hægt að taka númer. Beið þar en augljóst að enginn starfsmaður nennti að sinna mér.
Þannig að eftir að hafa verið þarna í nærri 20 mínútur þá fór ég bara og lofaði mér að fara aldrei aftur þangað.
Til hvers í fjandanum geta þeir ekki verið með allar þessar græjur sem þeir eru að selja tengdar þannig að maður geti prófað þær sjálfur án þess að tala við starfsmann? Það er fáránlegt að neyða hugsanlega kaupendur að tala við sölumann í hvert einasta skipti sem einhver vill prófa soundbar. Öll sjónvörpin eru tengd, því jú fólk vill sjá myndgæðin, hví eru ekki allar hljómgræjur tengdar svo fólk geti prófað þær?
Doldið svona einsog að fara í IKEA og það er ekki búið að setja helminginn af húsgögnunum saman svo maður geti séð og prófað, heldur maður þurfi að tala við starfsmann sem setji húsgögnin saman í hvert skipti sem einhver vill skoða. AUÐVITAÐ ER ÞAÐ FÁRÁNLEGT.
En það sem pirrar mig mest í þessu er... jú jú auðvitað er mikið að gera og svona hjá starfsmönum og hafa ekki tíma í að sinna öllu, það er það að þegar ég kom þá var einn starfsmaður að blaðra við einhverja unglinga um hvað hin og þessi tæki væru flott, unglingar sem voru augljóslega engir kaupendur að neinu, en voru bara að chatta um hitt og þetta, var ekkert að selja þeim neitt. Hefði þessi starfsmaður ekki betur eytt tímanum sínum í að tryggja að öll tækin væru tengd? Á maður bara að kaupa þetta blint? Myndi einhver kaupa sjónvarp án þess að actually sjá myndina í því? Nei, enginn myndi heldur kaupa hljómgræjur án þess að heyra hljóminn úr þeim!
Og ég var kominn actually til að kaupa, með pening fyrir þessu öllu saman.
