Svo áskotnaðist mér nýrra móðurborð, skipti sem sagt um móðurborð, örgjörfa, minni og skjákort. En hvað gerist, allt við það sama, ég þarf að kveikja á vélinni og restarta henni svo eftir 2-3 sek til þess að skjárinn fái merki og kveiki en eftir það er allt í lagi. Er búinn að ná í nýjan driver fyrir skjákortið, setja inn driver fyrir skjáinn og uppfæra BIOS-inn en allt kemur fyrir ekki, skjárinn neitar að taka við merki fyrr en eftir restartið

Hafiði tillögur sem gætu nýst mér.
Neovo s-15v skjár
Aopen AK73 pro A móðurborð Award BIOS
Asus AGP-v3800 skjákort
1,6 gig Duron
512 sdr minni