Ákvað að gera þetta eftir "frægðar" þráðinn hans rapport. Það væri gaman að geta þekkt aðra vaktara úti á götu og byrjað vandræðalegar samræður um ekkert.
Mig rámar nú eitthvað í að svona þráður hafi verið gerður áður, enda er þetta á flestöllum forums. Ég hinsvegar gerði smá leit og fann hann ekki, hann er þá hvort sem er orðinn hundgamall og fólk á það til að breytast

Hendið nú inn einhverri almennilegri mynd af ykkur, ekki skemmir ef hún er á einhvern hátt nördaleg


Sjálfur er ég hér með Hilmari forstjóra CCP (einmitt á þessum tímapunkti voru Booka Shade að spila).
Ég þarf víst að taka fram að myndin er tekin af Pukastelpa.
Svo langar mig að biðja ykkur um að halda spjalli í eins miklu lágmarki og hægt er svo það þurfi ekki að fara í gegnum það allt til að sjá myndir.