Nei, clear CMOS er bara til þess að resetta stillingar í firmware'inu. BIOS uppfærsla update'ar firmware'ið. Ef að rafmagnið klikkar í miðri uppfærslu, þá þarftu að fara með BIOS kubbinn annað og láta laga hann. En það hefur nú aldrei komið fyrir mig að BIOS update klikkar.
En snúum okkur að sjálfri uppfærslunni;
Ég myndi búa til/nota Windows98 startup disk. Ef að þú ert með annað windows geturðu sótt þér forrit til þess að búa til Win98 Boot disk á
http://www.bootdisk.com
Síðan seturru skrárnar úr Zip file'num á sama disk, eða annan. PASSA AÐ ÞÚ SÉST MEÐ RÉTTA SKRÁ. Ef að þú flashar með rangri skrá(vitekki hvort að villumelding stoppar þig) þá þarftu að láta fix'a BIOS'inn.
En jæja, síðan startarðu upp af floppy disknum og þegar þú ert kominn inní DOS seturru hinn floppy diskinn í (eða ekki ef að þú notaðir bara einn).
Ef að það var bara ein EXE skrá í Zip file'num þá skrifarðu bara nafnið á henni og update forritið keyrist. Ef að það var EXE og t.d. BIN skrá. Þá skrifarru annaðhvort nafnið á exe skránni og síðan nafnið á bin skránni þar fyrir aftan, eða þá að þú skrifar nafnið á exe skránni og svo þegar hún startar sér þá skrifarru nafnið á bin skránni inní því.
Gangi þér vel, og endilega spurðu ef að þú lendir í meiri vandræðum.
ps. thumbs up fyrir að setja þetta vel upp, nota íslensku, og spyrja almennilega