Mig vantar ráðleggingar varðandi kaup á fjölnotaprentara, þ.e. einhverju sem getur skannað, og prentað á pappír og ljósmyndir.
Verðþakið er c.a. 20.000, nema það sé svakalega óraunhæft, þá þigg ég allar hugmyndir
Starman skrifaði:Mitt ráð er: Aldrei , aldrei kaupa bleksprautuprentara.
Rekstrarkostnaðurinn er algjört rugl, blekið þornar og hausinn stíflast. Þú kaupir kannski prentara á 20 þús. svo eftir hálft ár þarf að endurnýja öll blekhylkin (5 stk.) þá kostar það kannski 10-15 þús.
Þú ert betur settur með að kaupa laser prentara og láta fagmenn um að prenta myndirnar þínar.