Keypti mína fyrstu tölvu fyrir mjög mörgum árum...
Þetta var 486 25MHz SX(sem þýðir að CPU-inn var ekki með reikniörgjörva en það var hægt að kaupa auka kubb sem maður smellti í rauf sem leit út eins og örgjörvasocket nema aðeins minni)
Jæja, svo þegar tölvan var farin að verða dálítið hæg þá fór minn að leita að uppfærslum og fann að 486 DX2 66MHz(minnir mig) passaði 100% í borðið .....ég bara cool


Kominn heim...æstur og sveittur.....upp í herbergi og reif tölvuna í sundur....þrumaði örranum í og kveikti á tölvunni........þá fattaði ég að ég hafði troðið örgjörvanum í sockettið sem reikniörgjörvinn átti að vera í og lyktin af bráðnandi gúmmíi staðfesti það



Náði svo að nurla saman í að kaupa nýtt móðurborð en þurfti að nota gamla 25 MHz cpu-inn í tvo mánuði í viðbót.
Maður hlær auðvitað af þessu núna
