Er yfirklukkun dauð?


Höfundur
dadik
Tölvutryllir
Póstar: 609
Skráði sig: Lau 14. Sep 2002 11:21
Reputation: 103
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Er yfirklukkun dauð?

Pósturaf dadik » Fim 01. Jan 1970 00:00

Hibbs,

hér í den var ég mikill áhugamaður um yfirklukkun. Keypti P3-450 og keyrði hann á ca. 530mhz á Abit BX2.0 móðurborði. Eins var ég með Celeron 266 sem ég keyrði á 550 mhz án vandræða. Those were the days. En eins og allir vita fylgja yfirklukkun kostir og gallar. Vélin var t.d. óstöugri en á normal hraða auk þess sem í flestum tilvikum er þörf fyrir aukna kælingu.

Ástæðurnar fyrir því að ég hætti nánast alveg að pæla í þessu voru eftirfarandi:

1 - Hraðaaukningin sem sem fæst út úr yfirklukkun í dag er smávægileg. Með gömlu celeron 300 kubbunum sem var hægt að klukka í 450 mhz var þetta án efa þess virði. 50% aukning á klukkuhraða er eitthvað sem tekur því að tala um. Í dag eru menn að tala um 10-25% aukningu í flestum tilvikum sem er sosum ágætt en til þess að ná þessari aukningu þarf oft að koma til aukin kæling, sem er annar punkturinn sem ég minnist á.

2 - Til að ná verulegum árangri í yfirklukkun er oftast þörf á öflugum viftum með miklu loftflæði. Því miður fylgir miklu loftflæði oftast mikill hávaði. Jújú, menn eru misnæmir fyrir hávaða úr umhverfinu þegar þeir sitja við tölvuna, en ég fyrir mitt leyti þrái hljóðlátar tölvur þessa dagana. Eins má ekki gleyma því að góðar viftur kosta yfirleitt skildinginn.

Jæja, þetta voru svona mínir $0.02. Almennt finnst mér áhuginn á yfirklukkun hafa dalað nokkuð mikið undanfarin 3 ár og menn séu farnir að þrá stöðugar og hljóðlátar vélar. Kanski ekki besti pósturinn til að opna svona kork, en whaddahell :D

- hilsen, dk



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16258
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1983
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

góður punktur

Pósturaf GuðjónR » Fim 01. Jan 1970 00:00

Er ekki málið það að samkeppnin milli Intel og AMD er orðin svo hörð að þeir eru sjálfir búnir að yfirklukka örrana sína í botn áður en að þeir fara á markað, svo kaupum við þá og höfum ekkert meira svigrúm til yfirklukkunnar. Það er af sem áður var.
:roll:



Skjámynd

kemiztry
Gúrú
Póstar: 592
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:15
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/null
Staða: Ótengdur

Pósturaf kemiztry » Fim 01. Jan 1970 00:00

Ég hugsa að það sé málið :(


kemiztry


Buddy
Nörd
Póstar: 141
Skráði sig: Mán 23. Sep 2002 22:11
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Buddy » Fim 01. Jan 1970 00:00

Fábær korkur. Alveg eins og uppáhalds korkurinn minn, http://www.arstechnica.com :) Nema á Íslensku auðvitað. Frábært framtak. Mjög fallegur korkur.

Ég vildi bara segja að yfirklukkun hefur líklega minnkað vegna þess að fólk þarf ekki jafn mikið á þessum hraða að halda. Ég man þegar maður var að rembast við að keyra Celery 300A í 450-504MHz að þá var þetta kraftur sem maður varð að hafa til að allt keyrði eins og það átti að gera. Núna eru jafnvel glænýjir leikir ennþá að virka fínt á 500MHz vélum.

Samkeppnin við AMD hefur líka fengið Intel vel niður í verðum en Intel hefur verið að rassríða notendum sínum svolítið lengi. Þegar ég stóð í því upphaflega að yfirklukka kostuðu 450MHz örgjörfar 114þúsund krónur. Og það var í þá daga sem 114.000kr voru mikill peningur :) Núna kaupir enginn þessa örgjörfa því mjög fáir þurfa á þeim að halda þ.e.a.s Bleeding edge örgjörfarnir.

Það er ósatt að yfirklukkun dugi ekki jafn vel núna. Móðurborðin eru orðin betri og þægilegra að yfirklukka á þeim og auðvelt að yfirklukka 1,6GHz P4A upp í 2,2 - 2,4GHz.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16258
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1983
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

:)

Pósturaf GuðjónR » Fim 01. Jan 1970 00:00

Takk fyrir hólið Buddy.

Þú veist greinilega mikið um yfirklukkun, en til hvers að yfirklukka 1.6ghz þegar þú færð 2.0ghz fyrir auka 5k.?
why bother??

Plús það að kaupa þarf auka kæliviftur og tölvan verður helst að vera í örðu herbergi út af hávaða ...

Var sama vandamál með hita þegar þú varst að overclocka þinn 300mhz???



Skjámynd

Spirou
has spoken...
Póstar: 154
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:22
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Spirou » Fim 01. Jan 1970 00:00

Ég hef nú ekki mikla reynslu af yfirklukkun fyrir utan það sem ég hef lesið. Reyndar yfirklukkaði ég Athlon Classic 650 í 749Mhz sem er nú ekkert slæmt en ég held að það sem hafði staðið í vegi fyrir því að ég kæmist hærra var að ég hækkaði bus hraðann og gat ekki breytt multiplier-inum(nema fara út í töluvert vesen). Hún var fullkomlega stöðug en málið var að ég sá engan tilfinnanlegan mun. Nú er ég búinn að taka af yfirklukkunina þar sem ég þoldi ekki áhvaðann á aukakassaviftunni.
Nýlega keypti ég mér ferðatölvu þar sem viftan fer sjaldan í gang og er alls ekki hávær, og nú get ég ekki hugsað mér að nota aftur tölvu sem hljómar eins og kyrrstæður stormsveipur.
Um daginn sá ég auglýsingu hjá computer.is á uppfærslu með VIA C3 örgjörvanum og með uppfærslunni fylgdi "öflug" kælivifta. Er það ekki rétt hjá mér að C3 örgjörvinn þurfi ekki "active cooling" ? Næsta borðtölva sem ég kaupi mér verður ekki með örgjörvaviftu, svo mikið er víst.



Skjámynd

halanegri
vélbúnaðarpervert
Póstar: 955
Skráði sig: Mán 23. Sep 2002 21:17
Reputation: 0
Staðsetning: Err Vaff Ká
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf halanegri » Fim 01. Jan 1970 00:00

ööö, sko, málið er að þessir via c3 örgjörvar eru ekki nema 1ghz mest held ég en eru tiltölulega nýjir, byggðir á 0.13 mircon þannig að það er eingin furða að þeir séu kaldir fyrst þeir eru að gera miklu hægari örgjörva en intel en með svipuðu ferli



Skjámynd

halanegri
vélbúnaðarpervert
Póstar: 955
Skráði sig: Mán 23. Sep 2002 21:17
Reputation: 0
Staðsetning: Err Vaff Ká
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: :)

Pósturaf halanegri » Fim 01. Jan 1970 00:00

en til hvers að yfirklukka 1.6ghz þegar þú færð 2.0ghz fyrir auka 5k.?
why bother??

Plús það að kaupa þarf auka kæliviftur og tölvan verður helst að vera í örðu herbergi út af hávaða ...
----------------------------

hann er að meina að það er hægt að yfirklukka þessa örvjörga ásættanlega mikið á retail kælingunni



Skjámynd

Spirou
has spoken...
Póstar: 154
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:22
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Spirou » Fim 01. Jan 1970 00:00

[quote="halanegri":1yrga3uh]ööö, sko, málið er að þessir via c3 örgjörvar eru ekki nema 1ghz mest held ég en eru tiltölulega nýjir, byggðir á 0.13 mircon þannig að það er eingin furða að þeir séu kaldir fyrst þeir eru að gera miklu hægari örgjörva en intel en með svipuðu ferli[/quote:1yrga3uh]

satt en munurinn á 1ghz og 2ghz finnst bara í leikjum og mjög þungum forritum.



Skjámynd

Talmir
has spoken...
Póstar: 163
Skráði sig: Fös 27. Sep 2002 01:04
Reputation: 1
Staðsetning: RVK
Staða: Ótengdur

Overclocking?

Pósturaf Talmir » Fim 01. Jan 1970 00:00

Ég er hættur einu sinni að reyna að overclocka örrana.. finnst ég ekki vera að græða neitt á því.. en hinsvegar er ég á fullu að overclocka skjákortið mitt.. Gamla góða geforce 1.

Upprunalega náði ég 2800 3dmarks með

1800xp athlon
256mb ddr

tölvu, en síðan hækkaði ég drifið upp og er kominn rétt yfir 4000 3dmarks með því.. ekki slæmt miðað við geforce 1 :)

Heyrt að það eygi að vera hægt að overclocka GF4 svipað og ná honum í góðann hraða. Fullt af overclocking dóti til líka fyrir hann.



Skjámynd

Spirou
has spoken...
Póstar: 154
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:22
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Overclocking?

Pósturaf Spirou » Fim 01. Jan 1970 00:00

[quote="Talmir":1wbo4si6]Ég er hættur einu sinni að reyna að overclocka örrana.. finnst ég ekki vera að græða neitt á því.. en hinsvegar er ég á fullu að overclocka skjákortið mitt.. Gamla góða geforce 1.

Upprunalega náði ég 2800 3dmarks með

1800xp athlon
256mb ddr

tölvu, en síðan hækkaði ég drifið upp og er kominn rétt yfir 4000 3dmarks með því.. ekki slæmt miðað við geforce 1 :)

Heyrt að það eygi að vera hægt að overclocka GF4 svipað og ná honum í góðann hraða. Fullt af overclocking dóti til líka fyrir hann.[/quote:1wbo4si6]

Mér tókst nú aldrei að yfirklukka Geforce 256 kortið mitt en ég tók viftuna úr sambandi á því :D reyndar fann ég ekki mun fyrst og setti hana aftur í samband en svo seinna þegar ég var að færa kortið á milli kassa þá komu þessi meiriháttar hávaða hljóð frá því, svo ég tók það bara aftur úr sambandi. Fraus ekki einu sinni á einu góðu lani, sem er ekki slæmt.



Skjámynd

elv
Of mikill frítími
Póstar: 1980
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 21:53
Reputation: 19
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf elv » Sun 23. Mar 2003 22:14

C3 1ghz er ekki nema smabærilegur kannsk intel 700 kannski minna.Og málið með yfirklukka er fsb það skiptir meira máli en hraðin á örgjavanum.



Skjámynd

Atlinn
Ofur-Nörd
Póstar: 264
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 14:33
Reputation: 0
Staðsetning: Nordock Iceland
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Atlinn » Sun 23. Mar 2003 22:16

elv skrifaði:C3 1ghz er ekki nema smabærilegur kannsk intel 700 kannski minna.Og málið með yfirklukka er fsb það skiptir meira máli en hraðin á örgjavanum.

þú gerir þér grein fyrir að þú varst að vekja upp þráð sem er búinn að vera dauður í 6 mánuði


hah, Davíð í herinn og herinn burt

Skjámynd

elv
Of mikill frítími
Póstar: 1980
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 21:53
Reputation: 19
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf elv » Sun 23. Mar 2003 22:29

Var bara að skoða , lol hefði kannski átt að skoða dagsetninguna



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Sun 23. Mar 2003 22:39

Það er ekkert að því að hleypa smá meira lífi í Spjallið :D



Skjámynd

halanegri
vélbúnaðarpervert
Póstar: 955
Skráði sig: Mán 23. Sep 2002 21:17
Reputation: 0
Staðsetning: Err Vaff Ká
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf halanegri » Mán 24. Mar 2003 05:45

samkvæmt dagsetningunni sýnist mér hann hafað vakið upp 33 ára gamlan þráð :lol:




gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Mán 24. Mar 2003 08:03

Já það voru greinilega fjörugar umræður hérna á miðnætti áramótin 1969 - 1970 :lol:



Skjámynd

Jakob
Ofur-Nörd
Póstar: 272
Skráði sig: Mið 28. Ágú 2002 23:30
Reputation: 1
Staðsetning: 127.0.0.1
Staða: Ótengdur

Pósturaf Jakob » Mán 24. Mar 2003 08:54

LOL :D :D :D



Skjámynd

Voffinn
Vaktari
Póstar: 2249
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 17:41
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Voffinn » Mán 24. Mar 2003 12:31

rofl :lol:


Voffinn has left the building..

Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Mán 24. Mar 2003 14:08

hehehe, það var gaman hérna þá :)
annars hef ég líka séð þetta á huga




coel
Græningi
Póstar: 43
Skráði sig: Mið 26. Feb 2003 18:01
Reputation: 0
Staðsetning: rvk
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf coel » Þri 25. Mar 2003 14:16

jájá.. ég man nú í gamladaga þegar maður var að clocka bussinn í tætlur.. þokkalega nett marr, jájá.. náði 2MHz örranum mínum upp í 5MHz. Gegt.
....
....
....
..... hahahaha!




fONK
Nýliði
Póstar: 12
Skráði sig: Sun 27. Júl 2003 14:00
Reputation: 0
Staðsetning: Breiðholt, Rvk
Staða: Ótengdur

Pósturaf fONK » Mið 30. Júl 2003 16:50

Nú á víst að vera mjög auðvelt að overclocka nýju Intel örgjörvana, þessa sem keyra á 800MHz FSB. Alveg um 33% amk. á retail kælingu og jafnvel um 60% með einhverjum vatnskæligræjum. Og það finnst sko góður munur á þar á. Væri gaman að geta tilraunast með þetta. :D


Kveðja Reynir