Ósiðlegt move hjá Intel...


Höfundur
TechHead
Geek
Póstar: 822
Skráði sig: Þri 23. Nóv 2004 14:56
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Ósiðlegt move hjá Intel...

Pósturaf TechHead » Sun 19. Sep 2010 23:13

Intel eru farnir að selja upgrade á low end tölvur til að aflæsa læstum kjörnum á CPU...

http://www.pcgamer.com/2010/09/19/intel-selling-50-codes-to-unlock-parts-of-your-cpu/

http://retailupgrades.intel.com



Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4358
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 409
Staða: Ótengdur

Re: Ósiðlegt move hjá Intel...

Pósturaf chaplin » Sun 19. Sep 2010 23:19

Þar sem þetta er "software" að þá bíð ég bara eftir að þetta verður crackað.

OCN eru búnir að vera með skiptar skoðanir á þessu - http://www.overclock.net/hardware-news/ ... nlock.html.



Skjámynd

johnnyb
Nörd
Póstar: 100
Skráði sig: Fös 12. Jún 2009 11:49
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Ósiðlegt move hjá Intel...

Pósturaf johnnyb » Sun 19. Sep 2010 23:27

ætli komi ekki eitthvað sjóræningja forrit sem að getur reiknað út kóðan og þá þarf ekki að kaupa þessi kort.
síðan eftir einhvern tíma þá hættir intel að bjóða uppá þetta


CIO með ofvirkni

Skjámynd

Benzmann
Bara að hanga
Póstar: 1590
Skráði sig: Þri 11. Nóv 2008 14:58
Reputation: 57
Staðsetning: Breiðholt
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ósiðlegt move hjá Intel...

Pósturaf Benzmann » Sun 19. Sep 2010 23:33

allt til að græða meira, hef alltaf verið INTEL maður, en er að pæla að skipta í AMD


CPU: Intel i9 13900K | MB: Asus ROG Strix Z790-E Gaming| GPU: Asus RTX 5080 Astral OC 16gb | Case: Corsair 7000D| PSU: Corsair RM1000x 1000W | RAM: Kingston Fury 5600mhz 64gb |Storage: 1x Samsung 990Pro 4Tb (OS)1x Samsung 980Pro 2Tb| OS: Windows 11 Enterprise E5 64bit

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5986
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1094
Staða: Ótengdur

Re: Ósiðlegt move hjá Intel...

Pósturaf appel » Sun 19. Sep 2010 23:58

Veit ekki nógu mikið til að fordæma.

Er þetta betrumbæting, sem er mögulegt með því að patcha hvernig stýrikerfið schedular vinnu processa/cores á þráðum?


*-*

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17200
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2365
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ósiðlegt move hjá Intel...

Pósturaf GuðjónR » Mán 20. Sep 2010 00:21

Ef þetta er ekki lélegur fimmaurabrandari eða aprílgabb þá er þetta eitthvað það AUMASTA sem ég hef séð í tæknigeiranum og hefur maður nú séð ýmislegt. :evil:



Skjámynd

Hargo
</Snillingur>
Póstar: 1069
Skráði sig: Mið 13. Ágú 2008 02:18
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Re: Ósiðlegt move hjá Intel...

Pósturaf Hargo » Mán 20. Sep 2010 01:49

appel skrifaði:Er þetta betrumbæting, sem er mögulegt með því að patcha hvernig stýrikerfið schedular vinnu processa/cores á þráðum?


Ég spyr að því sama.... :?:



Skjámynd

emmi
Of mikill frítími
Póstar: 1903
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 10:15
Reputation: 64
Staðsetning: Reykjanesbær
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ósiðlegt move hjá Intel...

Pósturaf emmi » Mán 20. Sep 2010 08:11

Ég veit það ekki, gerir Microsoft ekki það sama með Windows, þ.a.e.s. Anytime upgrade? :)

Allt í lagi ef fólk vill kaupa ódýrari CPU, og ákveður svo seinna að það vilji meiri kraft, þá þarf það ekki að rjúka útí búð og kaupa nýjan örgjörva.

Persónulega myndi ég alveg vilja geta uppfært i7 930 í i7 980 með svona, án þess að þurfa að standa í því að þurfa að selja 930 með tilheyrandi tapi og kaupa nýjan. :)



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3617
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 146
Staða: Ótengdur

Re: Ósiðlegt move hjá Intel...

Pósturaf dori » Mán 20. Sep 2010 10:07

Intel eru aðeins að droppa í geek-credibility nýlega. Ég missti mest allt álitið sem ég hafði á þeim þegar ég keypti netbook sem var með GMA500 kubbasetti. Intel sem hafði alltaf verið svo rosalega linux vænt var allt í einu farið að spila einhvern rebranding leik með illa hannað chip/drivera til að græða aðeins meiri pening. URRR... ég verð reiður þegar ég hugsa um þetta.



Skjámynd

audiophile
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1614
Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
Reputation: 149
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ósiðlegt move hjá Intel...

Pósturaf audiophile » Mán 20. Sep 2010 15:35

Það verður líklega AMD næst hjá mér þegar Bulldozer kemur. Fíla ekki svona peningaplokk.


Have spacesuit. Will travel.

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17200
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2365
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ósiðlegt move hjá Intel...

Pósturaf GuðjónR » Mán 20. Sep 2010 17:19

emmi skrifaði:Persónulega myndi ég alveg vilja geta uppfært i7 930 í i7 980 með svona, án þess að þurfa að standa í því að þurfa að selja 930 með tilheyrandi tapi og kaupa nýjan. :)

En þú ert þá í rauninni að kaupa i7 980 sem er læstur sem i7 930 og til að fá fulla orku þá þarftu að borga meira?
Mjög líklega sami örrinn af færibandinu.

Svona lagað gerir ekkert annað en að ala á tortryggni. Næst þegar maður kaupir CPU þá veltir maður fyrir sér hvort hann performi á 50% afköstum og maður þurfi að kaupa rándýran skafmiða til að fá fulla virkni.

Mér finnst þetta er riiisaskref afturábak.




NFSMW
Nýliði
Póstar: 9
Skráði sig: Þri 07. Júl 2009 13:17
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Ósiðlegt move hjá Intel...

Pósturaf NFSMW » Mán 20. Sep 2010 17:50

Þetta er nú bara mjög sniðugt eins og sagt var hér að ofan fyrir skrifstofur og venjulegt fólk.

En Guðjón i7 980x er ekki sami chip og i7 930 annar er 45 nm og hinn er 32, held að ég fari rétt með það að Intel hafi ekki núna í seinni tíð slökkt á kjörnum og selt þannig, AMD hefur hinsvegar gert mikið af því og suma er hægt að opna aftur, þannig þeir eru heldur verri ef eitthvað er.



Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Ósiðlegt move hjá Intel...

Pósturaf Gúrú » Mán 20. Sep 2010 18:06

NFSMW skrifaði:En Guðjón i7 980x er ekki sami chip og i7 930 annar er 45 nm og hinn er 32, held að ég fari rétt með það að Intel hafi ekki núna í seinni tíð slökkt á kjörnum og selt þannig, AMD hefur hinsvegar gert mikið af því og suma er hægt að opna aftur, þannig þeir eru heldur verri ef eitthvað er.

Hahaha, rétt skal vissulega vera rétt en þú skilur pointið hans :P


Modus ponens

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8753
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1405
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ósiðlegt move hjá Intel...

Pósturaf rapport » Mán 20. Sep 2010 18:35

En er AMD ekki búið að vera gera þetta "the stupid way" með því að selja fjögura kjarna örgjörva með tveim kjörnum læstum?

Intel er að gera það sama nema bíður möguleikann að borga til að aflæsa tveim kjörnum...

Það má alveg sjá win win situation fyrir alla í þessu, sérstaklega ef kostnaðurinn við framleiðsluna liggur mikið í stopp/start kostnaði framleiðslulínunar.


Það er fræg sagan um Benetton sem framleiddi bara hvíta boli og litaði þá svo eftir pöntunum.

Í þessu tilfelli framleiðir Intel færri tegundir örgjörva en stillir þá svo í samræmi við þarfir neytenda.

Þessi strategia hjá Intel finnst mér vera algjör snilld og gæti leitt til þess að örgjörvarnir þeirra yrðu mun ódýrari, nú má AMD fara að vara sig...



Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4358
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 409
Staða: Ótengdur

Re: Ósiðlegt move hjá Intel...

Pósturaf chaplin » Mán 20. Sep 2010 18:59

rapport skrifaði:En er AMD ekki búið að vera gera þetta "the stupid way" með því að selja fjögura kjarna örgjörva með tveim kjörnum læstum?

Intel er að gera það sama nema bíður möguleikann að borga til að aflæsa tveim kjörnum...

Það má alveg sjá win win situation fyrir alla í þessu, sérstaklega ef kostnaðurinn við framleiðsluna liggur mikið í stopp/start kostnaði framleiðslulínunar.


Það er fræg sagan um Benetton sem framleiddi bara hvíta boli og litaði þá svo eftir pöntunum.

Í þessu tilfelli framleiðir Intel færri tegundir örgjörva en stillir þá svo í samræmi við þarfir neytenda.

Þessi strategia hjá Intel finnst mér vera algjör snilld og gæti leitt til þess að örgjörvarnir þeirra yrðu mun ódýrari, nú má AMD fara að vara sig...

Reyndar er þetta ekki alveg rétt þar sem ekki allir Dual core örgjörvar eru aflæsanlegir. Þessir 2 auka kjarnar eru merktir sem "gallaðir", en eru þó X miklar líkur að það sé hægt að fá þá til að virka. Sjálfur keypti ég 4 x 550 á sínum tíma til að sjá hvernig þetta virkaði í raun og veru. Náði að "aflæsa" 3 af 4 örgjörvum, 2 örgjörvar fór í ca. 3.8 GHz Quad, 1 örgjörvi fór ca. 4.1 GHz Quad á meðan sá fjórði var alvega fastur í Dual, yfirklukkaðist einnig ekki vel.

Aftur á móti, glænýr Quad @ 4.1 GHz fyrir 15.000kr var pretty god damn impressive.

Mæli með að þú lesir þessa grein, mjög fróðlega. - http://www.overclock.net/amd-cpus/53550 ... cache.html ;)



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17200
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2365
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ósiðlegt move hjá Intel...

Pósturaf GuðjónR » Mán 20. Sep 2010 19:01

Gúrú skrifaði:
NFSMW skrifaði:En Guðjón i7 980x er ekki sami chip og i7 930 annar er 45 nm og hinn er 32, held að ég fari rétt með það að Intel hafi ekki núna í seinni tíð slökkt á kjörnum og selt þannig, AMD hefur hinsvegar gert mikið af því og suma er hægt að opna aftur, þannig þeir eru heldur verri ef eitthvað er.

Hahaha, rétt skal vissulega vera rétt en þú skilur pointið hans :P


Ég held hann hafi eitthvað misskilið mig, eða tekið "of" bókstaflega. :cry: