JohnnyX skrifaði:Skeinir þú þér með 5þúsund köllum!?
Annars flottur kassi og til hamingju
Kemur stundum fyrir þegar klósetpappírinn klárast
Gilmore skrifaði:Þetta eru skemmtilegustu þræðirnir sem maður les hérna á spjallinu.
Varstu ekki sáttur með 932 kassann? Þetta er svaka dýrt upgrade, sérstaklega af því að 932 kassinn er nú ekkert slor, og svo varstu búinn að mála hann líka. Ætlarðu að selja hann?
Ég hefði kannski keypt Haf X kassann ef ég væri ekki nýbúinn að versla 932.....en well kaupi bara Haf Triple-X eða eitthvað svoleiðis eftir 10 ár.....hehe.
Ánægjulegt að þú skemmtir þér
HAF 932 var, og er, mjög fínn kassi. Lagði mikla vinnu í að breyta honum nákvæmlega eins og ég vildi hafa hann. En X-inn virtist henta mér bara betur með mín 2 stóru skjákort og H50 kerfi + Hot swap bay. Hugmyndin er að bæta við einu PhysX korti á nýtt móðurborð í framtíðinni, og plássið er nóg í þessum kassa allavega
Og já... Gamli kassinn fer í sölu á vaktinni innan skamms. Þarf bara að þrífa hann fyrst og lappa aðeins uppá hann.
13700K | Asus Z790 Prime| 32GB DDR5 | Zotac 4080 | 2TB 960 Pro m.2 | Corsair AX1200i | Fractal North | LG 34GN850-B
Synology DS1817+ | 20TB
USG | US-8-60W | nanoHD | Flex Mini