Að stilla skjá


Höfundur
Manager1
Tölvutryllir
Póstar: 662
Skráði sig: Þri 16. Mar 2004 21:28
Reputation: 98
Staða: Ótengdur

Að stilla skjá

Pósturaf Manager1 » Mið 04. Feb 2009 19:45

Sælir.

Ég ætlaði að vera voða duglegur og stilla skjáinn minn um daginn. Það tókst ekki betur en svo að núna er hann snarvitlaus og ég get ekki lagað hann, sama hvernig ég fikta. Er til eitthvað einfalt og frítt forrit til að stilla skjáinn eða þarf ég að borga fyrir forrit eins og Spyder 2?




coldcut
Vaktari
Póstar: 2192
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/random
Staða: Ótengdur

Re: Að stilla skjá

Pósturaf coldcut » Mið 04. Feb 2009 21:06

fyrst væri nú best að segja okkur hvernig skjá þú ert með...en annars þá hlýturðu að geta stillt allt eins og það var.

Þolinmæðin þrautir vinnur allar ;)




Höfundur
Manager1
Tölvutryllir
Póstar: 662
Skráði sig: Þri 16. Mar 2004 21:28
Reputation: 98
Staða: Ótengdur

Re: Að stilla skjá

Pósturaf Manager1 » Mið 04. Feb 2009 21:23

Ahh það gleymdist :D

22" Samsung 2253BW skjár.

Það fylgdi með honum forrit sem heitir MagicTune Premium. Í color flipanum í forritinu er calibration wizard sem ég notaði til að stilla skjáinn. Næ honum bara ekki eins aftur þó ég telji mig vera að stilla allt rétt eftir leiðbeiningunum.

Svo notaði ég líka "display optimatization wizard" í Nvidia control panel-num en það er eins með hann, get ekki fengið skjáinn réttan aftur.