Pósturaf DoofuZ » Fös 19. Sep 2008 01:24
Ja, það fer eftir því hvort skjákortið í vélinni er innbyggt eða ekki. Og það eru því miður frekar góðar líkur á því að það sé innbyggt hjá þér eins og er hjá flestum og þá er ekki hægt að skipta um kort. Gætir annars svosem prófað bara að taka tölvuna aðeins í sundur til að skoða það, gætir þá líka séð hvort að það sé eitthvað annað að orsaka þetta eins og t.d. ef kæliviftan er full af ryki. Ég myndi samt ekki veðja á rykið þar sem þú myndir þá líklega heyra í viftunni fara á fullt með látum, nema viftan sé eitthvað biluð

Það allavega sakar ekki að opna hana og skoða ástandið

Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]