Á síminn að virka þegar maður er á netinu með PS3?

Skjámynd

Höfundur
Heliowin
FanBoy
Póstar: 706
Skráði sig: Fös 11. Nóv 2005 11:33
Reputation: 2
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Á síminn að virka þegar maður er á netinu með PS3?

Pósturaf Heliowin » Sun 27. Jan 2008 17:00

Ég er að pirra mig á því að það sé alltaf á tali hjá bróður mínum þegar ég hringi í heimasíma hans. Þegar ég spurði hann hvernig stæði á því þá sagði hann að hann væri á netinu með Playstation 3 eða hlaða niður eða eitthvað. Mér finnst þetta skrítið þó ég þekki þetta reyndar ekki.

Þess vegna spyr ég ykkur hvort þetta geti verið tilfellið, að síminn virki ekki þegar maður er á netinu með Playstation 3. Er kannski hægt að hafa það öðruvísi?

Hann segist vera með þetta tengt við router.




Xyron
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 389
Skráði sig: Sun 09. Okt 2005 23:36
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Staða: Ótengdur

Pósturaf Xyron » Sun 27. Jan 2008 17:10

Nei, það breytir engu hvort hann sé í ps3 eða ekki...



Skjámynd

Höfundur
Heliowin
FanBoy
Póstar: 706
Skráði sig: Fös 11. Nóv 2005 11:33
Reputation: 2
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Heliowin » Sun 27. Jan 2008 17:18

Einmitt, takk fyrir nú fær hann að heyra það.

Update:þetta er mjög sennilega vandamál hjá mér sjálfum. Því þegar ég hringi tilbaka til bróðurs míns með því að kalla upp númerið sem hann hringdi úr þá er alltaf á tali en ekki ef ég vel númerið manually. Ég er með símann tengdann við router.