X360 og PS3 grafískur samanburður


Höfundur
DoRi-
</Snillingur>
Póstar: 1023
Skráði sig: Mið 20. Okt 2004 19:18
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

X360 og PS3 grafískur samanburður

Pósturaf DoRi- » Mið 11. Apr 2007 08:39

Mér fannst þetta frábært, samanburður á graíkinni á þessum tvem vélum í sama leiknum
segir sig sjálft :)




ÓmarSmith
Vaktari
Póstar: 2539
Skráði sig: Fim 13. Júl 2006 19:30
Reputation: 43
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Pósturaf ÓmarSmith » Mið 11. Apr 2007 08:49

Þarna sést klárlega hvar XBOX360 hefur vinninginn enda með mun betri skjástýringu frá ATI en PS3 vélin.

Þetta er bara alveg þokkalega mikill munur myndi ég segja ( með fullri virðingu fyrir ps3 ) En hún er bara ekkert það flott ennþá. Ekki einu sinni Restistance leikurinn er eitthvað Grafík undur í henni.

Ég varð mjög svekktur akkúrat með þann leik. Hélt alveg að hann myndi toppa GOW en vá nei .... langt í frá.


Það eina flotta sem maður sá frá PS3 voru fyrirfram Renderuð skot úr leikjum sem sýna akkúrat ekkert.


En það er spurning hvernig MGS4 á eftir að looka ..


Gigabyte Aorus Elite V2 * Ryzen 5 5600x * Nvidia RTX3080 * 16Gb Corsair LPX CL16 3600 * Corsair RM850x * Acer Predator X34 34" 100hz * Corsair Carbite 400D * Sennheiser HD560s

Skjámynd

ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Reputation: 0
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Pósturaf ManiO » Mið 11. Apr 2007 11:19

Ekki gleyma samt að það er verið að bera saman eina tölvu sem er búinn að vera í um ár á markaðinum og þar af leiðandi framleiðendur orðnir frekar vanir, en hins vegar vél sem var í raun bara að koma út, og þar af leiðandi eru framleiðendurnir enn að venjast að framleiða leiki á PS3, og ekki hjálpar að fáir eru hrifnir af SDKinu fyrir PS3. Verður athyglisvert að sjá leikjasamanburð eftir um ár eða svo.


"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."


ÓmarSmith
Vaktari
Póstar: 2539
Skráði sig: Fim 13. Júl 2006 19:30
Reputation: 43
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Pósturaf ÓmarSmith » Mið 11. Apr 2007 12:50

Skjákortið í PS3 vélinni verður ekkert betra á næsta ári ;)

Ekki gleyma að ps3 var tilbúin eflaust á sama eða svipuðum tíma og Xbox360 en markaðslega séð drulluðu Sony upp á bak með að koma henni úr framleiðislu í sölu.

Biðin fólst líka í BluRay spilurunum.

Útgefið Hardware í báðum þessum vélum var tilbúið minnir mig á afar svipuðum tíma og Þar hafa Xbox klárlega vinning hvað skjákort varðar en Ps3 hvað örgjörva varðar ( Þó hann nýtist ekkert sem skildi amk enn sem komið er )


Gigabyte Aorus Elite V2 * Ryzen 5 5600x * Nvidia RTX3080 * 16Gb Corsair LPX CL16 3600 * Corsair RM850x * Acer Predator X34 34" 100hz * Corsair Carbite 400D * Sennheiser HD560s

Skjámynd

ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Reputation: 0
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Pósturaf ManiO » Mið 11. Apr 2007 13:03

ÓmarSmith skrifaði:Skjákortið í PS3 vélinni verður ekkert betra á næsta ári ;)


Útúrsnúningur :wink: Berðu t.d. saman leiki sem eru nýjir á 360 og svo þá sem komu út um það leyti sem hún komu út, eða svipað fyrir PS2, PSX, PSP og sennilega mun fleiri. Staðreyndin er sú að leikir sem koma seinna út á leikjatölvur eru oftast mun flottari en þeir sem koma snemma út.

Gott dæmi er GT3 í samanburði við GT4, eða GTA 3 og svo GTA:VC og svo GTA:SA.


"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,

wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."


ÓmarSmith
Vaktari
Póstar: 2539
Skráði sig: Fim 13. Júl 2006 19:30
Reputation: 43
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Pósturaf ÓmarSmith » Mið 11. Apr 2007 14:30

Jájá vissulega er þetta rétt hjá þér en Staðreyndin er samt sem áður sú að skjákortið í Xbox vélinni er mun öflugra en í PS3 og ræður við betri og fullkomnari Grafík en Ps3 vélin.

Eina sem PS3 vélin gæti toppað hana í er Physix, sem er jú auðvitað frábært og verður gaman að sjá þegar það sparkar inn í leiki.

Alveg destructable environments og fleira..


Gigabyte Aorus Elite V2 * Ryzen 5 5600x * Nvidia RTX3080 * 16Gb Corsair LPX CL16 3600 * Corsair RM850x * Acer Predator X34 34" 100hz * Corsair Carbite 400D * Sennheiser HD560s


Tjobbi
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 366
Skráði sig: Fös 07. Apr 2006 19:25
Reputation: 0
Staðsetning: Gbr
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Tjobbi » Mið 11. Apr 2007 14:57

ÓmarSmith skrifaði:Jájá vissulega er þetta rétt hjá þér en Staðreyndin er samt sem áður sú að skjákortið í Xbox vélinni er mun öflugra en í PS3 og ræður við betri og fullkomnari Grafík en Ps3 vélin.

Eina sem PS3 vélin gæti toppað hana í er Physix, sem er jú auðvitað frábært og verður gaman að sjá þegar það sparkar inn í leiki.

Alveg destructable environments og fleira..


Á kortið í PS3 vélinni ekki að vera eitthvað svipað og 7800gtx í performance?


- asus a8n-sli - amd 3700@2.7ghz - watercooled - sparkle 7800gtx - g-skill 2x1gb ddr500 cl3 - 250gb - 22" acer -


ÓmarSmith
Vaktari
Póstar: 2539
Skráði sig: Fim 13. Júl 2006 19:30
Reputation: 43
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Pósturaf ÓmarSmith » Mið 11. Apr 2007 15:18

Ekki hugmynd.

Það styður amk ekki HDR og FSAA á sama tíma.


Gigabyte Aorus Elite V2 * Ryzen 5 5600x * Nvidia RTX3080 * 16Gb Corsair LPX CL16 3600 * Corsair RM850x * Acer Predator X34 34" 100hz * Corsair Carbite 400D * Sennheiser HD560s

Skjámynd

ICM
Vaktari
Póstar: 2383
Skráði sig: Lau 25. Jan 2003 19:36
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf ICM » Mið 11. Apr 2007 18:18

Það er engin afsökun fyrir Sony að þeir kunni ekki að gera nothæf SDK og að flestir framleiðendur gagnrýni þá harðlega fyrir það :roll: Veit ekki hverskonar vörn það á að vera hjá þér 4x0n.

Eina sem það þýðir er það er miklu auðveldara að gera leiki á Xbox og auðvelt að fá aðgang að krafti vélarinnar samanborið við PS3 sem flestir framleiðendur eiga gífurlega erfitt með. Það gerir það að verkum að flestir leikir eru hannaðir fyrir Xbox og síðan portaðir yfir á PS3, yfirleitt með lakari grafík en Xbox 360 útgáfan.

Þú lætur einnig eins og Xbox 360 leikir eigi ekki eftir að skána grafíklega meðan PS3 mun halda áfram að þróast -sem er tóm steypa.
Microsoft veita Ubi Soft mikla tæknilega aðstoð (senda sérfrðinga til þeirra og aðstoða með kóðan og Ubi Soft leitar mikið til þeirra) meðan Sony segja basicly "screw you." Microsoft með superior SDK og mikinn vekfræðilegan stuðning frá sérfrðingum sem flestir leikjaframleiðendur hafa aðgang að. Platform sem henntar mikið betur fyrir leiki, finnst fólki það virkilega óvenjulegt að PS3 útgáfurnar séu yfirleitt óæðri? Það er ekki eingöngu vegna þess að PS3 sé nýrri vél.

4x0n útskýrðu leiki eins og Fight Night Round 3 þar sem vinnan var byrjuð á PS3 útgáfunni mörgum mánuðum áður en Xbox útgáfan? Síðan var hann gefinn út næstum ári seinna á PS3 með örfáum viðbótum, lighting effectarnir eru flottari á 360 útgáfunni og grafíkin sú sama. Ridge Racer 6 á 360 var með skýrari textures en Ridge Racer 7 á PS3 og sama á við um Full Auto á Xbox 360 og Full Autio 2 á PS3, samt höfðu þeir MARGA mánuði til að fínpússa kóðan á PS3.

Vélarnar eru mjög svipaðar í heildina litið ég viðurkenni það, skjákortið og minnið nýtist betur á 360 einnig sem örgjörvin nýtist betur í venjulega hluti eins og A.I. en PS3 hentar betur fyrir physics og þessháttar. Það er þó eitt sem skilur vélarnar, að mér finnst. Báðar vélarnar mælast til þess að notað sé viss API til að hafa samskipti við vélarnar, en Microsoft veitir þeim framleiðendum sem gerast svo djarfir beinan aðgang að vélinni (þótt það sé virkilega risky) Þá er þetta advantage sem mun líklega nýtast í framtíðinni þar sem PS3 býður bara uppá samskipti í gegnum vissan layer.


Cross platform leikir eins og Colin Mc'Rae Rally munu yfirleitt koma nokkrum mánuðum fyrr á 360 og vera með skárri eða sömu grafík og PS3 útgáfan.

Nenni ekki að eyða meira púðri í þig 4x0n þú ættir að lesa meira um vélarnar það eru ýtarleg specifications á netinu og svo einfaldaðar útgáfur á síðum eins og Ars Technica, annars ætti þér að duga að flestir virtustu forritarar vesturlandanna hafa lýst yfir hversu superior 360 er, menn eins og John Carmack.




ÓmarSmith
Vaktari
Póstar: 2539
Skráði sig: Fim 13. Júl 2006 19:30
Reputation: 43
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Pósturaf ÓmarSmith » Fim 12. Apr 2007 08:06

=D>

Haleluja.



Sony menn ættu að troða þessu í pípu og reykja ;)


Gigabyte Aorus Elite V2 * Ryzen 5 5600x * Nvidia RTX3080 * 16Gb Corsair LPX CL16 3600 * Corsair RM850x * Acer Predator X34 34" 100hz * Corsair Carbite 400D * Sennheiser HD560s


Arkidas
Tölvutryllir
Póstar: 668
Skráði sig: Fös 04. Feb 2005 23:03
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Arkidas » Fim 12. Apr 2007 19:11

Tölvurnar hafa sínar sterku og veiku hliðar, t.d. er örgjörvi PS3 mun öflugri.

PlayStation 3 er með 22.4GHz og 204 gigaflops 3.2GHz
Xbox 360 er með 9.6Ghz og 115.2 gigaflops 3.2GHz

Sá að þetta hafði ekki komið fram og ákvða að skella því inn. :)




Höfundur
DoRi-
</Snillingur>
Póstar: 1023
Skráði sig: Mið 20. Okt 2004 19:18
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf DoRi- » Fim 12. Apr 2007 21:05

4x0n skrifaði:GTA:VC og svo GTA:SA.


ég sá lítinn sem engann mun á þeim tvemur, örlítið uppfærð lýsing er ekki mikil breyting




ÓmarSmith
Vaktari
Póstar: 2539
Skráði sig: Fim 13. Júl 2006 19:30
Reputation: 43
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Pósturaf ÓmarSmith » Fim 12. Apr 2007 21:06

Rétt en þeir nýta þetta ekkert, og efast ég um að þeir eigi nokkurntímann eftir að fullnýta þetta.

Meðan að skjákortið og minnið er ekki betra í vélinni þá sé ég ekki hvenær þessi ofur örri á að sparka svona rosalega inn.

Jú, ef þeir koma með e-a svakalega leiki með fáránlega miklu physix þá svínvirkar hann eflaust.


Gigabyte Aorus Elite V2 * Ryzen 5 5600x * Nvidia RTX3080 * 16Gb Corsair LPX CL16 3600 * Corsair RM850x * Acer Predator X34 34" 100hz * Corsair Carbite 400D * Sennheiser HD560s


ronnachai
Nýliði
Póstar: 7
Skráði sig: Fim 12. Apr 2007 21:05
Reputation: 0
Staðsetning: dalvik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Made For Tv

Pósturaf ronnachai » Fim 12. Apr 2007 21:29

Skjákortið (GPU) í PS3 er gert af Nvidia og er byggt á Geforce 7 línunni, það er ekki alveg jafn háþróað og restin að PS3 og lítur út fyrir að sony hafi einbeitt sér aðeins of mikið að örgjövanum og einhvernvegin ákveðið að sleppa því að gera eitthvað háþróað skjákort.
Skjákortið í Xbox 360 er hinsvegar mjög vel gert. Það er byggt á Ati Radeon R600 kortinu, sem er svar Ati við Geforce 8800. Ati hafa ekki sagt hvort að skjákortið í xbox 360 muni notast við directX 10, en núna notar það við eitthvað á milli DirectX 9 og 10.




Alcatraz
Nörd
Póstar: 131
Skráði sig: Mán 17. Apr 2006 16:50
Reputation: 6
Staðsetning: Hér og þar
Staða: Ótengdur

Pósturaf Alcatraz » Fim 12. Apr 2007 22:51

Ég veit bara að ég myndi ekki eyða 70.000 kr. í PS3 núna :? Ég kaupi Xbox360 eða PS3 samt sem áður! Ég ætla bara að bíða og sjá hvernig þeta þróast.



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6424
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 285
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Fös 13. Apr 2007 01:50

Arkidas skrifaði:Tölvurnar hafa sínar sterku og veiku hliðar, t.d. er örgjörvi PS3 mun öflugri.

PlayStation 3 er með 22.4GHz og 204 gigaflops 3.2GHz
Xbox 360 er með 9.6Ghz og 115.2 gigaflops 3.2GHz

Sá að þetta hafði ekki komið fram og ákvða að skella því inn. :)


uhh.. Vélarnar eru báðar 3.2GHz. Maður margfaldar ekki klukkuhraða með kjarnafjölda! punktur! Fyrir utan það að örgjörfinn í 360 er með 3 general purpose kjarna með HyperThreading á meðan PS3 er með 1 General Purpose og svo 7 SPE unit.


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

ICM
Vaktari
Póstar: 2383
Skráði sig: Lau 25. Jan 2003 19:36
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf ICM » Fös 13. Apr 2007 03:06

Floating Points hafa líitð með afköst á leikjum að gera, eins og áður var tekið fram :roll:

Örgjörvin í PS3 hentar best í hluti eins og Folding@Home sem vélin er að standa sig vel í, þá er það aðalega skortur á minni sem gerir hana ekki eins hentuga fyirr flókna vísindalega útreikninga. Eða streaming aðgerðir... Þessir SPE kjarnar á Cell eru svo dumbed down að þeir gagnast mjög illa í tölvuleiki og er gífurlega erfitt að notfæra þá almennilega meðan Xbox er með 3 "hyper threaded" kjarna sem styðja hefðbundnar reikniaðgerðir og branch prediction sem hentar betur í tölvuleiki og gervi-greind.

Man ekki betur en að PS2 hafi verið með meiri reiknigetu en Xbox 1.0 en samt var hún með mun verri grafík og hentaði ekki eins vel fyrir leiki og Xbox, hvað architecture varðar...




ÓmarSmith
Vaktari
Póstar: 2539
Skráði sig: Fim 13. Júl 2006 19:30
Reputation: 43
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Pósturaf ÓmarSmith » Fös 13. Apr 2007 09:49

oleeeeoleeeoleeeoleeeeeee ;)


Gigabyte Aorus Elite V2 * Ryzen 5 5600x * Nvidia RTX3080 * 16Gb Corsair LPX CL16 3600 * Corsair RM850x * Acer Predator X34 34" 100hz * Corsair Carbite 400D * Sennheiser HD560s


Alcatraz
Nörd
Póstar: 131
Skráði sig: Mán 17. Apr 2006 16:50
Reputation: 6
Staðsetning: Hér og þar
Staða: Ótengdur

Pósturaf Alcatraz » Fös 13. Apr 2007 10:34

Svo er það ekki bara kraftur tölvunnar sem skiptir máli! Leikirnir eru líka mikilvægir :8)




ronnachai
Nýliði
Póstar: 7
Skráði sig: Fim 12. Apr 2007 21:05
Reputation: 0
Staðsetning: dalvik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Swing Swing

Pósturaf ronnachai » Fös 13. Apr 2007 16:52

Ég á X360 Hún er bara geðveik en stundum langar mér í ps3 bara út af SingStar. X360 er svona meira af alvöru skotleikjum. Það er ein vandamál hjá PS3 Þegar maður fyllir HDD :roll: hvað gerir maður þá ? Það er nefnilega hægt að skipta HDD á X360 :D Ég heyrði líka að það væri hægt að setja HDD fyrir PC tölvur í ps3! hmmm! þarf kannski að taka vélin í sundur? ég nenni það ekkert!



Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3755
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 121
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Swing Swing

Pósturaf Pandemic » Fös 13. Apr 2007 19:40

ronnachai skrifaði: Ég heyrði líka að það væri hægt að setja HDD fyrir PC tölvur í ps3! hmmm! þarf kannski að taka vélin í sundur? ég nenni það ekkert!


Það er hægt á Xbox360.




andribja
Nörd
Póstar: 100
Skráði sig: Sun 11. Jún 2006 18:44
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Swing Swing

Pósturaf andribja » Fös 13. Apr 2007 21:23

Pandemic skrifaði:
ronnachai skrifaði: Ég heyrði líka að það væri hægt að setja HDD fyrir PC tölvur í ps3! hmmm! þarf kannski að taka vélin í sundur? ég nenni það ekkert!


Það er hægt á Xbox360.


Nei, það er ekki hægt en það er auðveldlega hægt að skipta um HDD í PS3 án þess að taka hana í sundur.




hakkarin
Staða: Ótengdur

Re: Swing Swing

Pósturaf hakkarin » Fös 13. Apr 2007 23:14

Hvað er þessi svo kallaði umsjónamaður gamall? Getur ekki verið mjög gamall úr því að hann lætur nokkrar myndir sanfæra sig um að xbox 360 mali ps3 í grafík setur svo broskall á eftir. Segir ekkert um getu ps3. Svo er hvorug tölvan með BETRI grafík bara fer eftir leiknum og hvernig
leikurinn notfærir kraft tölvunar.




Arkidas
Tölvutryllir
Póstar: 668
Skráði sig: Fös 04. Feb 2005 23:03
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Arkidas » Fös 13. Apr 2007 23:33

Þetta er ekta console war þráður, hvers vegna erum við að þessu? Þeir sem kjósa PS3 eða Xbox 360 munu ekki breyta skoðunum sínum hvað sem á gengur.



Skjámynd

ICM
Vaktari
Póstar: 2383
Skráði sig: Lau 25. Jan 2003 19:36
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf ICM » Fös 13. Apr 2007 23:40

hakkarin það hefur ekkert með aldur að gera :roll: Það er engin að láta þessar myndir sannfæra sig, ef þú lest þér vel um þá ættu þessi screenshot ekki að koma á óvart. Sony eiga þetta umtal skilið eftir að ljúga stöðugt til um afkasta getur þeirra.