Síða 1 af 1

Ríkisstarfsmenn og embættismenn sem gera ekkert gagn

Sent: Fös 20. Jún 2025 13:39
af rapport
Við þekkjum öll að ríkið getur verið lengi að afgreiða mál, mál sem eru borðliggjandi og einföld geta verið að flækjast um í kerfinu milli Pontíusar og Pílatusar því allir vita hver sé rétt ákvörðun en enginn þorir að taka ábyrgðina, hvort sem ábyrgðin er pólitísk, fjárhagsleg eða á skjön við siðferði eða vilja almennings í landinu.

Svona málþóf pirrar mig svakalega því hver dagur sem fer í þetta kostar tugi ef ekki hundruði milljóna án þess að framleiða neitt fyrir ríkið.

Málþófið gengur bara upp því að kjörtímabil er "tími" og með því að sóa tíma, fresta ákvörðunum þá getur þingið tekið færri ákvarðanir á kjörtímabilinu.

Lausnin á þessu er í raun mjög einföld og tryggir betri nýtingu á almannafé. Launin er að þingið sé í raun virkt stjórnvald 24/7 * 365 eins og Hagkaup í Skeifunni. Ef þingmaður sér sér ekki fært að mæta þá taki varaþingmaður við eða varavaraþingmaður.

Þingflokkurinn sé í raun rekinn sem lítið fyrirtæki sem ber svo alfarið ábyrgð á að skipuleggja vaktir/vinnutíma orlof starfsmanna o.s.frv. án þess að það bitni á starfsemi Alþingis.

Í svona tilfellum getur þingið starfað 24/7 og almenningur fær meira fyrir peninginn sem fer í alla þessa varaþingmenn o.þ.h. + þetta vald deilist á fleiri persónur sem þurfa þá að tala meira saman og vera sammála um hlutina innan síns þingflokks.

Tilefni þessa innleggs...
https://www.visir.is/g/20252741493d/-he ... allt-sumar

Að Alþingisfólk væli undan því að þurfa vinna vinnuna sína er hlægilegt og í raun væri best að greitt væri skv. mætingu og unnar klst. þá bæði fyrir þingfundi og nefndarstörf EN aðal atriðið væri að það væri í góðu lagi að Alþingi starfaði 24/7*365 og þingflokkarnir bæru ábyrgð á að skipuleggja störf síns flokks, hvort sem þau vildu láta örfáa vinna vinnuna og fá þá himinhá laun eða virkja alla sem voru á framboðslista og deila þannig verkefnum á fleiri.

Með einhverju svona fyrirkomu lagi þá kæmist Alþingi yfir öll sín verkefni og vvonadni meira.