Ónýt aðkoma að sorpgeymslum

Hér gilda almennar reglur, og virðing er skilyrði. Þræðir birtast ekki í Virkum umræðum.
Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 5780
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1078
Staða: Ótengdur

Ónýt aðkoma að sorpgeymslum

Pósturaf appel » Þri 10. Jún 2025 23:38

https://www.dv.is/frettir/2025/6/10/adg ... da-slaemt/

Þetta er áhugavert og eitthvað sem ég hef hugsað um, haha. En ég bjó á stað þar sem voru einmitt svona tröppur og aðgengi að sorpgeymslum alveg hrikalegt, sérstaklega á veturnar. Svo til að taka sorptunnurnar út úr geymslunni þurfti að draga þær yfir svona 20 cm þröskuld og draga alveg 100 metra því engin aðkoma var fyrir sorpbíla. Þetta var hús í hverfi hannað kringum 1960. Og svona er þetta víða. Algjört bölæði að starfa í þessu, væntanlega hljóta þessir menn að blóta mikið eða vera voðalega þolinmóðir sem starfa í þessu.

En ég skil ekki hví það er ekki komið upp fleiri svona sorpsöfnunarstöðum inni í hverfum, götum, og fólk látið fara með pappír og plast þangað. Það myndi spara heilmikið í sorphirðu.

Allavega held ég að það þurfi að endurhugsa þetta eitthvað hve auðvelt er að safna sorpi. Þetta á ekki að vera svona mikið basl, á ekki að þurfa mannskap til að fara inn í öll skúmaskot, niður tröppur, inn í læstar geymslur, o.s.frv. Held að það eigi að stefna að því að aðeins trukkur með bílstjóra geti sinnt þessu einn.

Ég held að með aukinni flokkun sorps að það þurfi að fjölga verulega svona söfnunarstöðum, svo þeir séu í göngufæri fyrir flesta, kannski innan 300 metra radíus.
Síðast breytt af appel á Þri 10. Jún 2025 23:40, breytt samtals 1 sinni.


*-*

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ónýt aðkoma að sorpgeymslum

Pósturaf rapport » Mið 11. Jún 2025 18:22

Þegar ég heimsótti Novi Sad þá var þetta eitt af kúltúrsjokkunum, að það var bara flokkað í plast og svo "allt annað".... og að það voru bara djúpgámar úti á næsta götuhorni sem allir í götunni þurftu að nota.

Þessir tveir svörtu undir trjánnum

Svona er þetta í löndum þar sem það er ekki klöpp þegar grafið er niður 25cm...