Það er svo sorglegt að fylgjast með þróun mála í USA og það ótrúlegasta af öllu er að verstu og heimskulegustu spár handritshöfunda eru að rætast...
Ef fer sem horfir þá er efnahagur USA að fara detta í einhverskonar óstöðugleikatímabil þar sem ástandið verður án efa líkara Íslandi, gengisveiflur, brask og erfiðleikar fyrir neytendur en endalaus tækifæri fyrir fólk með mikla peninga.
Það er galið að segja það en kapítalisminn virðist vera virka á "peak performance" nánast allstaðar nema í Bandaríkjunum.
Líklega er það vegna þess að fókið er að fatta að það hefur sáralítil réttindi í samanburði við t.d. Kínverja, sem njóta betri og ódýrari heilbrigðisþjónustu og menntunar frá hinu opinbera en fólk í USA.
Þegar ég lærði að í sumum fylkjum USA geti vinnuveitandi neitað að samþykkja uppsögn og farið fram á bætur ef þú hættir að mæta... það hljómaði bara eins og þrælahald. Að spítalar neiti að hjálpa slösuðu fólki því þeir muni ekki fá borgað fyrir það... er klikkað
BNA eru held ég að fara ganga í gegnum nokkra áratugi af "leiðréttingu" þar sem þessi almennu mannréttindi verða ofaná, eða þau verða undir og landið verður einhverskonar útgáfa af Sovíetríkjunum og Norður Kóreu, einhverskonar 1984 stjórnarhættir.
Þetta er skelfilegt og þetta mun án efa þýða að lífsgæði í heiminum verða minni og sérstaklega hjá þeim löndum sem ætla að vera hrædd við Kína.
Heimurinn þróast líklega áfram á skala og ég ímynda mér að á sitt hvorum ásnum séu:
1) Vinstramegin á skalanum "samvinna, inngilding og blöndun menningarheima"
2) Hægramegin á skalanum "sundrung og stríð, yfirtaka á löndum og skilyrt ofbeldisfull siðaskipti".
Í dag eru Rússar að nota aðferðina hægramegin, ráðast á Úkraínu til að taka yfir landsvæði og munu stráfella eldra fólk, flytja inn nýtt fólk og ala fólk á svæðinu upp á sinni menningu og sínum gildum = Þjóðarhreinsun
Leið 1 er líklega enginn að gera hömlulaust, en Ísland tekur á móti fólki, kynnir íslensk gildi og tungumálið en er ekki með mikla áherslu á að ala menningu fólks úr því EN gefur ekki afslátt af lögum og reglum á Íslandi. Og við þurfum að vera hörð á því. Á Íslandi gilda íslensk lög sem rammi um alla inngildingu.
En eftir 100-200 ár er spáð að 95%+ jarðarbúa verði af afrískum eða asískum uppruna og það fólk mun án efa ekki líta til baka og hugsa fallega til fólks eins og Trump sem elur á sundrung og skaðar samfélag fólks í BNA og samfélag þjóða í UN.
En þvílík botnslausa heimska í BNA núna að halda að friður náist án þess að hlusta á raddir fólksins, að það verði friður ef þær verði barðar niður og troðið sokk upp í þær.
Útlendingur með útlenskan fána að stunda uppreisn í BNA.
Kannski sjá einhverjir hippa með friðarblóm og hvaðeina.
Aðrir sjá innrásarher sem væri lögmætt að skjóta á.
Evrópa er öll einsog þú vilt hafa hana, en getur ekki gert rassgat til að bjarga Úkraínu, algjörlega getulaus þessi Evrópa. Þú vilt tilheyra getulausri hjörð sem getur ekkert varið, bara haldið fundi, fundi, fundi, og ráðstefnur og talað fallega.
Frakklandsforseti að ferðast til Grænlands, til hvers? Fá sér ísmola? Enginn tilgangur. Helduru að Frakkland ætli í stríð við BNA yfir Grænland?
Fólk sem talar fallega en gerir ekkert er algjörlega tilgangslaust.
Við höfum verið að sjá "þögla" innrás víða á Vesturlöndum með samþykki stjórnmálamanna en í óþökk innfæddra. Þetta er bara að afhjúpa það sem allir vissu í USA. Við innrásum þarf að bregðast við með festu og það er það sem Trump er að gera í USA.
Re: Bandaríki Trumps
Sent: Þri 10. Jún 2025 19:05
af rapport
falcon1 skrifaði:Við höfum verið að sjá "þögla" innrás víða á Vesturlöndum með samþykki stjórnmálamanna en í óþökk innfæddra. Þetta er bara að afhjúpa það sem allir vissu í USA. Við innrásum þarf að bregðast við með festu og það er það sem Trump er að gera í USA.
Það er ekki vottur af festu í TACO nálgun Trump.
Þetta er ekki þögul innrás þetta er bara eðlileg og náttúruleg þróun og algjörlega það sem Bandaríkin standa fyrir "The american dream".
Það eru allar aðrar manneskjur jafn miklar manneskjur og þú, þú ert ekkert betri en við hin.
Lífið er alls ekki núllsummuleikur... aldrei nokkurntíman.
Að styðja við annað fólk, að gefa af sér og byggja betri og réttlátari heim er göfugt og gefandi.
Bandaríkin "stálu" landi innfæddra og hafa notað innflutt vinnuafl, þá bæði þræla og farandverkafólk frá upphafi. Kínverja í að leggja lestarteinana og blökkumenn í landbúnaðinn. Og auðvitað héldu Bandaríkin bara áfram að nota ódýrt vinnuafl erlendis þegar velmegun í heimalandinu óx.
Re: Bandaríki Trumps
Sent: Þri 10. Jún 2025 23:06
af appel
Ég held þetta snúist bara að fara eftir lögum.
Kalifornía hefur í langan tíma komist upp með að hunsa alríkislög hvað ólöglega innflytjendur varðar. Þetta eru landslög, og þau hunsuð í Kaliforníu.
Spurningin er hvort einstök ríki geti sett sína eigin landamærastefnu eða hvort það sé hlutverk alríkisins. Það er hlutverk alríkisins að setja þau lög og framfylgja þeim, ekki einstakra ríkja.
Í raun snýst þetta um það, geta einstök ríki þvert á vilja landsins alls mótað sína eigin stefnu í þessum málum eða ekki.
Þarna er ráðist á alríkislögreglumenn sem eru að framfylgja lögum landsins, og þú ert með ríkisstjóra kaliforníu og borgarstjóra LA sem vilja ekki gera neitt til að verja þessa alríkislögreglumenn. Trump tilneyddur til að grípa inn í þetta ástand.
Það eru ákveðnir þættir sem alríkið sér um, varnir landsins, utanríkismál, landamærin, o.s.frv. Það er ekki upp á einstök ríki komið að móta sína eigin utanríkisstefnur né annað.
Re: Bandaríki Trumps
Sent: Mið 11. Jún 2025 00:10
af falcon1
Þú hefur engan rétt á "ameríska drauminum" ef þú kemur til landsins ólöglega, getur bara farið í röðina eins og allir aðrir og farið löglegu leiðina.
Og nei, streymi ólöglegra innflytjenda til vestrænna landa hefur ekki verið eðlilegt með neinu móti síðustu ár. Afleiðingarnar munu verða skelfilegar.
Re: Bandaríki Trumps
Sent: Mið 11. Jún 2025 10:00
af ekkert
Kalla þau dýr, segja að þau éti gæludýr
Senda þau í fangelsi í öðru landi án þess að kanna hvort þau hafi rétt á að vera í bandaríkjunum
Hlægja þegar kemur í ljós að brúnn bandarískur ríkisborgari var sendur í fangelsi í öðru landi
Trump er að henda 100 billion dollurum af skatttekjum í ruslið, líklega meiru en DOGE sparaði + skapa atvinnurekendum vanda við að finna fólk.
Það hefði verið svo easy að bjóða einhverja mellow lausn fyrir fólk sem væri í landinu, væri að borga skatta að græja einhverja leið fyrir það að verða ríkisborgarar...
En nei... það er ekki hægt að gera neitt af viti, bara dröslast áfram á frekju og yfirgangi...
rapport skrifaði:https://www.mbl.is/frettir/erlent/2025/06/14/rikisthingmadur_minnesota_skotinn_til_bana/
Það er ekki nýtt á nálinni að ráðist sé á stjórnmálamenn í BNA, og reyndar allsstaðar í heiminum. En það er rangt að ráðast á stjórnmálamenn, alveg sama hverrar flokks þeir eru eða hvaða skoðun maður hefur á þeim. Þetta eru bara hryðjuverkamenn sem gera það, eru í stríði gegn lýðræðinu.
Re: Bandaríki Trumps
Sent: Lau 14. Jún 2025 19:06
af rapport
appel skrifaði:

Sýnir kannski hverslags innræting er í gangi hjá MAGA
Re: Bandaríki Trumps
Sent: Lau 14. Jún 2025 19:25
af appel
rapport skrifaði:

"í gangi hjá MAGA"? MAGA varð nú ekki til fyrr en 2016. Skulum nú ekki gleyma að Trump hefur lifað af tvær morðtilraunir, ef ekki fleiri.
En það væri kannski aðeins of mikils ætlast af mér að halda að þú myndir ekki skella skuldinni á Trump eða MAGA kannski. hvað var ég að halda eiginlega lol.
Re: Bandaríki Trumps
Sent: Sun 15. Jún 2025 10:15

Það er ekki eins og MAGA sé að fara í felur með þessar ofbeldisfullu skoðanir og aðferðir sem reynt er að innræta fólki.
Ekki skjóta sendiboðann, þetta eru bara staðreyndir málsins. Spurðu bara einhverja gervigreindina ef þú treystir ekki mínum orðum.