Síða 1 af 1
Nú á að eyðileggja Breiðholtið
Sent: Fös 30. Maí 2025 12:30
af falcon1
Hafandi búið í Breiðholtinu þegar ég var ungur að þá verð ég að segja að það er eitt best skipulagða hverfi borgarinnar en nú á að breyta hverfinu og fórna því á altari þéttingarköltsins.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025 ... kynningar/
Re: Nú á að eyðileggja Breiðholtið
Sent: Lau 31. Maí 2025 12:38
af rapport
Sammála, þetta er of mikið chaoz + almennt stupid
Re: Nú á að eyðileggja Breiðholtið
Sent: Þri 03. Jún 2025 13:28
af falcon1
rapport skrifaði:Sammála, þetta er of mikið chaoz + almennt stupid
Jæja, við urðum loksins sammála um eitthvað haha...

Re: Nú á að eyðileggja Breiðholtið
Sent: Þri 03. Jún 2025 14:25
af rapport
falcon1 skrifaði:rapport skrifaði:Sammála, þetta er of mikið chaoz + almennt stupid
Jæja, við urðum loksins sammála um eitthvað haha...

Það má.
Þessi þéttingarstefna er ekki hugsuð rétt, það ætti að byggja ofaná eldri hús eða rífa gömul hús og byggja hærri... en ekki fórna hverjum einasta græna fermetra undir nýbyggingu.
Túnið sem var á Horninu Háaleitisbraut/Miklabraut... hefði verið tilvalið í einhverja snyrtilega byggingu en þarna er verið að byggja alveg ofaní gangstéttina og nýta hvern einasta möguelagn rúmmetra asem hægt er að byggja.
Og ég sá aldrei grafið þarna ofaní djúpann grunn.... af hverju í anskotanum er ekki bílakjallari á þessum stað? Af hverju var ekki litla ljóta verslanamiðstöðin rifin í leiðinni og byggt einhverskonar stærra og flottara complex á svæðinu...
Borgin er ekki með þetta. Hef heyrt að hjá skipulags- og byggingarfulltrúa sé gríðarleg starfsmannavelta vegna pólitískra afskipta (sel það ekki dýrara en ég keypti það)...
Re: Nú á að eyðileggja Breiðholtið
Sent: Þri 03. Jún 2025 15:56
af falcon1
rapport skrifaði:falcon1 skrifaði:rapport skrifaði:Sammála, þetta er of mikið chaoz + almennt stupid
Jæja, við urðum loksins sammála um eitthvað haha...

Það má.
Þessi þéttingarstefna er ekki hugsuð rétt, það ætti að byggja ofaná eldri hús eða rífa gömul hús og byggja hærri... en ekki fórna hverjum einasta græna fermetra undir nýbyggingu.
Túnið sem var á Horninu Háaleitisbraut/Miklabraut... hefði verið tilvalið í einhverja snyrtilega byggingu en þarna er verið að byggja alveg ofaní gangstéttina og nýta hvern einasta möguelagn rúmmetra asem hægt er að byggja.
Og ég sá aldrei grafið þarna ofaní djúpann grunn.... af hverju í anskotanum er ekki bílakjallari á þessum stað? Af hverju var ekki litla ljóta verslanamiðstöðin rifin í leiðinni og byggt einhverskonar stærra og flottara complex á svæðinu...
Borgin er ekki með þetta. Hef heyrt að hjá skipulags- og byggingarfulltrúa sé gríðarleg starfsmannavelta vegna pólitískra afskipta (sel það ekki dýrara en ég keypti það)...
Algjörlega sammála. Það versta er að þetta er búið að smitast yfir í Reykjanesbæ og nú á að taka slatta af grænum svæðum og breyta þeim í ljóta kassa. Meðal annars að þrengja að nýja skólanum, Stapaskóla. Ég t.d. keypti mína íbúð vegna þess að það er grænt svæði nálægt og ég hef útsýni þangað, nú á að breyta því steinsteypu. Ég skoðaði skipulagið áður en ég keypti en núna á bara að breyta því eftir hentugleika. Kalla það bara vörusvik.
Í Reykjavík er auðvitað fáránlegt að gera bara ráð fyrir hvað 0,5 eða 0,7 stæðum á íbúð enda varla komandi lengur í Reykjavíkina, það er gjörsamlega búið að rústa mörgu þar á bænum.
Það á að byggja bílakjallara og byggja hærra eins og þú segir til að nýta byggingarlandið betur án þess að skerða möguleika á grænum svæðum sem stuðla að heilbrigði og betra andrúmslofti. Það er fátt meira niðurdrepandi en endalausar kubbabyggingar.
Re: Nú á að eyðileggja Breiðholtið
Sent: Þri 03. Jún 2025 16:09
af rapport
falcon1 skrifaði:rapport skrifaði:falcon1 skrifaði:rapport skrifaði:Sammála, þetta er of mikið chaoz + almennt stupid

Íbúasamtökin í hverfinu hjá mér náðu að bjarga þessu, þetta átti að fara í "léttan iðnað" -
viewtopic.php?t=85714Það er ekkert komið á þetta svæði þó að skipulagið hafi verið tilbúið 2007. Borgin er bara ekki að þora að byggja mislægu gatnamótin sem var lofað frá Úlfarsfelli yfir að Korpúlfsstöðum, líklega því að Borgarlínan þarf að planast inn í þá byggingarpælingar.
En uppbyggingin í Reykjanesbæ er svakalega hröð og betra skipulag á henni.
Veit að verið er að vinna nauðsynlegu skriffinskuna til að reist verði önnur heilsugæslustöð í Reykjanesbæ og maður var akkúrat að vona að hún yrði á þessum auðu svæðum í nálægð við Stapaskóla. Það er eitthvað kjánalegt að "default" heilsugæslustöðin sem á að þjóna þessu svæði sé við Courtyard.
Re: Nú á að eyðileggja Breiðholtið
Sent: Mið 04. Jún 2025 22:41
af ekkert
Það er eflaust farið allt of geyst í þéttingu en mér finnst þetta ekki allt glatað. Það er fer afskaplega mikið land undir bílaplön sem eru mörg hver orðin ansi lúin hér í Breiðholtinu mínu og bílunum þykir ekki verra að fá þak yfir sig í frosti. Þetta hverfi er sniðugt að því leiti að það er hægt að labba langt án þess að þvera bílgötu, en það eru afskaplega fáir hérna sem nýta sér það og keyra helst út úr hverfinu til að fara í matvörubúð þó svo að það taki 10 mínútur að labba innan um græna garða yfir í bónus.
Sé ekki fyrir mér að þessar breytingar sem greint er frá í fréttinni geri Breiðholt verra að neinu leiti. Það á líka að byggja á "fótboltavelli" hér við suðurhóla og mikið grátið yfir því, en ég bæði keyri framhjá og geng framhjá þessum velli nánast daglega og get sagt að ég hef ekki einu sinni séð krakka í boltaleik þarna. Bara gæsir á beit og einstaka sinnum hund og eiganda.
Re: Nú á að eyðileggja Breiðholtið
Sent: Fös 06. Jún 2025 23:26
af appel
Öfgaheimskan í Reykjavík hefur gengið of langt. Var að hugsa um að kaupa íbúð í Austurbergi fyrir langa löngu en hætti við, sem betur fer kannski. Flutt í Kópavoginn og fíla það langbest, enda minn bær sem ég ólst upp í.
Græna gímaldið er bara eitt dæmi um heimskuna.
En einsog hefur verið bent á þá er framkvæmdin við Miklubraut/Háleitisbraut við hlið "Miðbær" algjörlega heimskasta drasl sem ég hef séð, húsin ofan í götunni, og það er mikið sagt eftir að hafa séð hvernig var byggt meðfram bústaðavegi, þ.e. Furugerði.
Vogabyggð eitt misheppnaðasta svæði landsins, ásamt auðvitað uppbyggingunni í kringum Hörpu/Landsbanka og því svæði, draugabær.
Enn menn halda áfram þrátt fyrir augljós mistök. Heimskan er svo gígantísk að það þarf að grípa inn í þetta allt saman.