Enginn að spjalla þvì Trump er óverjandi vitlaus
Sent: Lau 05. Apr 2025 12:24
Prove me wrong 

Tölvu og tækniáhuga samfélagið.
https://spjall.vaktin.is/
rapport skrifaði:https://youtu.be/zicGxU5MfwE?si=oJe1AuZoBDqgeus4
Þetta tollabrölt er í raun jafn vitlaus lausn á slæmum efnahag og að sprauta sig með klóri til að losna við covid
appel skrifaði:Við skulum nú muna hver var í hvíta húsinu, Biden, maður sem var bara "farinn". Það er að koma í ljós massívt "cover up" á því hve mikið honum hafði hnignað í embætti, menn hljóta að ræða afhverju hann var ekki fjarlægður. Hver stjórnaði eiginlega? Ekkert samsæri, raunverulegt og allir urðu vitni að þessu í forsetakappræðunum. Þegar þú ert forseti BNA þá áttu ekki "good days and bad days", það eiga alzheimer sjúklingar.

https://nypost.com/2025/04/05/us-news/r ... n-oconnor/
https://www.newsweek.com/doj-asked-inve ... nt-2040641
Veit ekki hvort tollarnir eigi eftir að virka hjá Trump, þetta virðist drastískt. Sem betur fer sleppa íslendingar vel, en ég skil alveg hvatann á bakvið þetta. Það er alveg ljóst BNA geta ekki haldið óbreyttu ástandi áfram, hnignun iðnaðarframleiðslu ásamt eilífum ríkishalla og massívum viðskiptahalla. Ef þetta væri ísland þá væri landið gjaldþrota, en BNA hafa haft dollarann sem hefur haldið þeim á floti. En þegar ballið er búið og björgunarflotið springur þá sekkur BNA einsog steinn í óðaverðbólgu. Gæti gerst núna, hver veit. Fundamentals taka alltaf við á endanum.
appel skrifaði:Vestræni heimur er búinn að gelda sjálfan sig hvað framleiðslu varðar. Það er eitt lítið álver í Bretlandi, hugsanlega verður því lokað. Stálframleiðsla nær engin, undirstöður iðnaðarframleiðslu eru að rotna, búið að flytja þetta allt til Kína meira og minna. Orkuverum verið lokað í nafni umhverfisverndar, iðnaðarframleiðslu hætt, allt flutt inn, getum ekki framleit neitt sjálf.
Haldi þetta áfram er alveg ljóst hver mun drottna yfir heiminum, það er stærsta iðnveldið, sem er Kína. Á meðan Bandaríkin framleiða eitt skip þá framleiðir Kína 1000 skip. Þannig er staðan í dag. Einu kaupendur að skipum í BNA er bandaríski sjóherinn.
Þessa iðnaðargetu má auðveldlega snúa upp í að framleiða hergögn. Þessi hergögn verða senda til landa sem eru ekkert vinveitt vesturlöndum.
Kína hefur t.d. verið að styðja Rússland, og Íran, í stríði gegn Úkraínu, gegn Evrópu og BNA.
Ég hefði haldið að menn myndu styðja það að flytja framleiðslu frá Kína, hversu erfitt það gæti verið, en þessi iðnaðargeta var flutt til Kína nýverið, hún getur verið flutt aftur til baka.
Tel ég reyndar að fríverslun eigi að vera á milli BNA og Evrópu, en setja eigi himinháa á svona lönd einsog Kína, hætta innflutningi frá Kína alfarið eiginlega. Ef ekki, þá verður hinn frjálsi vestræni heimur algjörlega undirgefinn kínverjum um allt.
Mönnum getur mislíkað við Trump og allt það, og ekki verið sammála, sérstaklega ekki aðferðum, en hann er þó að reyna taka á þessum grundvallaratriðum varðandi orkuframleiðslu og iðnaðarframleiðslu, hún verði að vera fyrir hendi í BNA, ekki eingöngu í Kína.