Síða 1 af 1

Guðrún Hafsteinsdóttir nýr formaður xD

Sent: Sun 02. Mar 2025 13:24
af falcon1
Vinnur kosninguna með 50,11% atkvæða. Gerist nú varla tæpara en þetta. :)

Re: Guðrún Hafsteinsdóttir nýr formaður xD

Sent: Sun 02. Mar 2025 13:58
af GuðjónR
Væri ekki hagræðing í að sameina Samtök atvinnulífsins og Sjálfstæðisflokkinn?

Sömu stefnumál, sömu hagsmunir og sama fólkið.
Hafa ekki flestir eða allir formenn xD verið virkir í atvinnulífinu?

Re: Guðrún Hafsteinsdóttir nýr formaður xD

Sent: Sun 02. Mar 2025 14:08
af rapport
falcon1 skrifaði:Vinnur kosninguna með 50,11% atkvæða. Gerist nú varla tæpara en þetta. :)


En það var tvítalið og farið vel yfir allt og svona virkar lýðræðið þegar það verður að velja á milli tveggja valkosta.

Finnst ótrúlegt að xD sé með það miklar valdablokkir að úrval frambjóðenda hafi ekki verið breiðara.

Re: Guðrún Hafsteinsdóttir nýr formaður xD

Sent: Sun 02. Mar 2025 14:36
af falcon1
rapport skrifaði:
falcon1 skrifaði:Vinnur kosninguna með 50,11% atkvæða. Gerist nú varla tæpara en þetta. :)


En það var tvítalið og farið vel yfir allt og svona virkar lýðræðið þegar það verður að velja á milli tveggja valkosta.

Finnst ótrúlegt að xD sé með það miklar valdablokkir að úrval frambjóðenda hafi ekki verið breiðara.

Já, ég er ekkert að efast um niðurstöður kosningarinnar. Finnst bara áhugavert að það skuli hafa verið svona svakalega mjótt á mununum. Ég á engan hest í þessu hlaupi. :D

Re: Guðrún Hafsteinsdóttir nýr formaður xD

Sent: Sun 02. Mar 2025 14:56
af Stuffz
Ég spáði þessu almennt á síðasta ári :-k :catgotmyballs :megasmile
https://vm.tiktok.com/ZNdJWeDNg/

Þetta er Kvennasveiflu ár

Annars sértækt, Guðrún koma betur út í silfrinu á mánudaginn, nóg til að maður veðjaði á hana í vinnunni.

Svo kemur Kvenmaður eftir Trump og pússar samskiptin við Evrópu per handritið, tja nema skelli 3já heimstyrjöldin :roll:

Re: Guðrún Hafsteinsdóttir nýr formaður xD

Sent: Sun 02. Mar 2025 20:37
af appel
Þörf á Karlaflokkinum?
Bara framsókn og miðflokkurinn enn með kalla? Hve lengi endist það?

Re: Guðrún Hafsteinsdóttir nýr formaður xD

Sent: Sun 02. Mar 2025 22:19
af GuðjónR
Ætli það sé ennþá þannig að ef ríkið auglýsir stöðu þar sem fjórir karlar og ein kona sækja um, þá verði það málsókn ef konan fær ekki starfið, óháð hæfi eða vanhæfi?

Re: Guðrún Hafsteinsdóttir nýr formaður xD

Sent: Sun 02. Mar 2025 22:46
af falcon1
GuðjónR skrifaði:Ætli það sé ennþá þannig að ef ríkið auglýsir stöðu þar sem fjórir karlar og ein kona sækja um, þá verði það málsókn ef konan fær ekki starfið, óháð hæfi eða vanhæfi?

Það er örugglega mikið verk eftir óunnið og feðraveldið ennþá að trufla "jafnréttið". Það er engin hætta á öðru en konur haldi áfram að spila út fórnarlambsspilinu.

Re: Guðrún Hafsteinsdóttir nýr formaður xD

Sent: Mán 03. Mar 2025 01:22
af Stuffz
Mér finnst þetta fróðlegt, gott að fá reynslu á svona sveiflum/breytingum, við erum oft leiðandi í svona efnum þrátt fyrir að vera lítil þjóð.

Svo er þetta líka skilt kvennaverkfallinu fyrir 50 árum, svo enn meiri áhersla.

Re: Guðrún Hafsteinsdóttir nýr formaður xD

Sent: Þri 04. Mar 2025 08:23
af rapport
falcon1 skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Ætli það sé ennþá þannig að ef ríkið auglýsir stöðu þar sem fjórir karlar og ein kona sækja um, þá verði það málsókn ef konan fær ekki starfið, óháð hæfi eða vanhæfi?

Það er örugglega mikið verk eftir óunnið og feðraveldið ennþá að trufla "jafnréttið". Það er engin hætta á öðru en konur haldi áfram að spila út fórnarlambsspilinu.


Finnst þessi innlegg vera meira væl yfir "ástandinu" en ég hef heyrt frá konunum í kringum mig.

Aldrei hef ég heyrt konu, samstarfskonu eða vinkonu eða maka vina minna væla yfir að einhver karl hafi verið ráðinn í starf sem þær sóttust eftir.