Síða 1 af 1

Höfrungahlaupið að byrja?

Sent: Lau 01. Mar 2025 14:16
af falcon1
Það var svo sem við því að búast að Sólveig Anna yrði fyrst til þess að koma af stað höfrungarhlaupinu títtnefnda eftir að kjarasamningar kennara voru undirritaðir. Henni er skítsama um þá staðreynd að með þeim er aðeins verið að uppfylla löngu gefin loforð þegar kennarar sömdu frá sér lífeyrisréttindi árið 2016 í staðinn fyrir launahækkun sem þó kom aldrei, fyrr en núna sýnist mér. Sem sagt kennarar eru í raun að fá sömu hækkanir og aðrir þegar tekið er tillit til þessa.
Hún vill með þessu útspili að verðbólgan éti upp kjarabætur launafólks í landinu.

Re: Höfrungahlaupið að byrja?

Sent: Sun 02. Mar 2025 11:03
af rapport
Ertu að tala um þessa uppsögn?

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025 ... samningum/

Ég þekki ágætlega til þessa geira, var heimalingur á Hrafnistu og Droplaugarstöðum því mamma vann þar + hef svo sjálfur unnið og vinn í heilbrigðisgeiranum í 12+ ár.

Ég vil í raun hrósa þessari baráttu hjá Eflingu.

Með því að færa þetta til betri vegar þá verður betur tryggð viðeigandi mönnun á hjúkrunarheimilum.

Það gengur ekki að þegar 4 af 8 mæta í vinnuna og þessi 4 sem mæta fái ekkert aukalega fyrir að bera þá ábyrgð og vinna þá vinnu sem 8 manns áttu að vinna. Jafnvel með það aðstandendur æpandi og öskrandi yfir lélegri þjónustu.

Þá er þetta það sem fólk á hjúkrunarheimilum er að broga fyrir og á skilið að fá, þau borga feitar summur af tekjunum sínum til hjúkrunarheimilisins og eiga að sjálfsögðu að fá topp þjónustu.

Þá er þetta mikið öryggis- og gæðamál sem verður að færa til betri vegar.

Áherslan er því ekki á launaskrið heldur að vinnuveitendur hafa ekki staðið við gefin loforð um að koma af stað þeirri vinnu sem lofað var að yrði unnin, sem átti að koma með lausnir á þessu vandamáli.

Það er verið að greiða arð frá þessum félögum sem eru að reka þessi heimili (sem á held ég að vera bannað), þau eiga að fjárfesta öllum hagnaði í sinni starfsemi.

Það er því mjög margt í þessum geira sem er skrítið og þarf að vinna í, sem er mikið samfélagsmál og snýst bara um að aldraðir fái viðeigandi umönnun og séu ekki bara hafðir að féþúfu.

Það má gagnrýna hana fyrir mjög margt en akkúrat þetta er ekki eitt af því... þetta er ekki "bara af því bara" og höfrungahlaup, þetta held ég að sé gert af hugsjón og eldmóð fyrir starfsfólkið og skjólstæðingana.

Re: Höfrungahlaupið að byrja?

Sent: Sun 02. Mar 2025 12:03
af falcon1
Það er engin tilviljun að þessi tímasetning var valin. Þetta er svo augljóst að það hálfa væri nóg.

Re: Höfrungahlaupið að byrja?

Sent: Sun 02. Mar 2025 15:36
af rapport
falcon1 skrifaði:Það er engin tilviljun að þessi tímasetning var valin. Þetta er svo augljóst að það hálfa væri nóg.


Vinnuhópurinn sem átti að skila einhverjum raunverulegum niðurstöðum skilaði bara minnisblaði - 18.febrúar... og þetta gerist í kjölfarið.

Í fréttum um samninginn þegar hann var gerður þá endurspeglast þessi áhersla... þetta ætti ekki að koma á óvart að þetta hafi verið viðbrögðin.

https://www.visir.is/g/20242635664d/sam ... m-thykktur

Þetta er ekki eitthvað sem ráðherra sjálfur garfast í líklega hafa stjórnarskiptin orðið til þess að athyglin fór af því að koma þessu verkefni almennilega í framkvæmd.

Þetta er örugglega að einhverju leiti PR stunt líka, en þetta er ekki sviðsett atburðarás, þetta er mál sem er búið að vera í gangi lengi.