Síða 1 af 1

Ríkisstjórnin brýtur stjórnarskrá?

Sent: Fim 27. Feb 2025 14:59
af falcon1
Nú er ég ekki mikið inní þessu máli en það er mjög fróðlegt ef að ríkisstjórn sem er varla byrjuð hefur leikinn á því að koma með frumvarp sem hugsanlega brýtur stjórnarskránna. Sama hvað manni finnst um málið að þá hlýtur framkvæmda- og löggjafavaldið að þurfa að fara eftir stjórnarskránni. Dáldil Trump-lykt af þessari hegðun ríkisstjórnarinnar. :megasmile :megasmile :megasmile

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025 ... kra-437576

Re: Ríkisstjórnin brýtur stjórnarskrá?

Sent: Fim 27. Feb 2025 15:58
af rapport
falcon1 skrifaði:Nú er ég ekki mikið inní þessu máli en það er mjög fróðlegt ef að ríkisstjórn sem er varla byrjuð hefur leikinn á því að koma með frumvarp sem hugsanlega brýtur stjórnarskránna. Sama hvað manni finnst um málið að þá hlýtur framkvæmda- og löggjafavaldið að þurfa að fara eftir stjórnarskránni. Dáldil Trump-lykt af þessari hegðun ríkisstjórnarinnar. :megasmile :megasmile :megasmile

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025 ... kra-437576


Held að þetta standi fólki því að þarna var verið að fylgja EU regluverki sem stangaðist á við lög og dómstólar dæmdu eftir lögunum.

Að reyna að breyta lögunum til samræmis er málefnalegt og eðlilegt, í samræmi við það sem Ísland hefur lofað að gera sem aðili að EES.

En virkjanaleyfið var ógilt á einhverjum forsendum og nú er fólkið sem vill virkja að fara leita annarra leiða til að fá virkjanaleyfið samþykkt á öðrum og meira viðeigandi forsendum.