rapport skrifaði:appel skrifaði:rapport skrifaði:Þetta er það sem Trump er að krefjast að lönd í Evrópu verji sig sjálf.
Þetta er sniðugt... og sanngjarnt... og eðlilegt...
Það er bara stupid að útvista þessu til annarra landa sem eru með her, sérstaklega landa sem segjast hugsanlega ekki ætla standa við gerða samninga sbr. USA/Trump og 5.gr NATO.
Ef við getum ekki treyst USA, hverjum getum við treyst.
Nató er enn gilt, þetta er lögformlegur treaty sem þing landanna eru búin að samþykkja, og löndin þá "treaty bound" skv honum. Svo náttúrulega er spurning þegar á hólminn er komið hvort lönd komi hvort öðru til bjargar, þau gætu svikið það vegna eigin ástæðna.
En Ísland er búið að njóta verndar BNA frá seinna stríði, en mjög margir sem kunna ekki að vera þakklátir fyrir það, finnst það bara liggur við mannréttindi að BNA haldi áfram að verja Ísland og allir bölsótast út í Trump. Finnst það vera bara hroki, vanþakklæti og svona "entitlement" hugsunarháttur. BNA byggðu þetta land upp nánast, komu því inn í nútímann, en mjög fáir í dag þakka fyrir það eða kunna að meta það.
BNA notaði nú líka Ísland sér til framdráttar og hagsmunir beggja fóru saman.
En æðsti yfirmaður herafla USA er búinn að gefa öðrum í NATO tilefni til að efast um að hægt sé að treysta á USA þegar neyð ber að garði.
Ísland fékk svakalegt á móti, miklu meira en margir geta ímyndað sér. Saga viðveru bandaríkjahers hér frá seinni heimsstyrjöld, í gegnum kaldastríðið og svo að því loknu, er alveg verðugt rannsóknarefni og væri áhugavert ef RÚV myndi taka þetta saman, hverskonar breytingar á samfélaginu urðu með komu bandaríkjahers hér. Eiginlega alveg sama hvar er stigið niður fætinum, bandaríkjaher kom að því.
Flugið
Flugvöllurinn í Keflavík, og bygging Leifsstöðvar sem var gjöf Bandaríkjanna til íslendinga.
Auk þess að veita okkur heimildir til að fljúga til Bandaríkjanna, láta okkur í té flugvélar, og þjálfa flugmenn. Bandaríkin komu með flugið til Íslands.
Þó bretar hafi lagt reykjavíkurflugvöll upphaflega þá voru það bandaríkjamenn sem tóku við honum og breyttu í betri flugvöll, t.d. með steinsteyptum flugbrautum. Svo auðvitað að byggja keflavíkurflugvöll.
Vega og brúarsmíði. Þeir áttu t.d. þátt í viðhaldi brúarinnar yfir Ölfusá og öðrum lykilbrúm.
Ásamt því að byggja upp og bæta hafnir á Suðurnesjum og víðar fyrir skip og birgðaflutninga.
Svo jú uppbygging raforkuinnviða á suðurnesjum.
Svo lagði bandaríkjaher ljósleiðarastrenginn sem liggur hringinn í kringum landið.
Svo hjálpuðu bandaríkin íslenskum bændum að tæknivæðast, með traktorum og ýmislegum nútímalegri landbúnaðarvélum, ásamt bætta fóðurframleiðslu og öðrum háttum. Bændur svo sendir til bandaríkjanna í skóla að læra á þetta allt saman.
Svo jú fyrstu útvarpsútsendingar hér með tónlist og slíku, sem leiddi til þrýstings um stofnun RÚV og íslenskra útvarpssendinga.
Alveg sama liggur við hvar er stigið niður í fætinum í sögu íslendinga frá seinni heimsstyrjöld, hér hefði lítið gerst nema fyrir framlag bandaríkjanna til að ýta hlutunum áfram.
Allan þann tíma sem BNA voru hér þá streymdu bandaríkjadollarar, gjaldeyrir, inn í landið sem var gríðarlega mikil búbót fyrir landið. Þegar herinn fór 2005 þá misstum við líklega 100 milljón dollara inn í landið í gjaldeyri á hverju ári, en sem betur fer var búið að byggja upp útflutningsgreinar hér einsog áliðnað.