Ekki stilla þessu upp eins og að "undocumented immigrants" í BNA séu allir hælisleitendur, það er allt allt annað mál og fer í allt annað ferli.
Skatttekjur af óskráðum innflytjendum voru 75,6 milljarðar dollara 2022 -
https://www.americanimmigrationcouncil. ... tributionsTrump er að krefjast aðgerða skv. regluverki sem enginn hefur framfylgt áratugum saman og þessi ár hafa flestir forsetar verið repulican -
https://www.americanimmigrationcouncil. ... immigrantsFólk sem greiðir skatta á að sjálfsögðu skilað fá opinbera þjónustu, heilbrigðisþjónustu o.þ.h. EN í USA greiðir fólk sjálft fyrir þær tryggingar og þjónustu... þannig að ekki hefur þetta fólk verið mikill baggi á samfélaginu.
Þau eru um 1/20 (4,5%) öllu vinnuafli í USA.
Það eru gríðarlegir hagsmunir í húfi og ég þori að fullyrða að án innflytjenda og þeirrar fjölmenningar sem fylgir, þá væri Ísland í djúpum skít efnahagslega.
Sama hvar ég hef unnið undanfarin 25 ár þá eru þar innflytjendur að vinna störf sem Íslendingar vilja ekki vinna en ef þau eru ekki unnin þá takmarkast framleiðslugeta samfélagsins.
Í dag eru það innflytjendur sem koma og elda matinn á veitingastöðum um allt land á sumrin, þeir keyra rútur, strætó, sinna hjúkurn og starfa sem læknar, verkefnastjórnun í UT er orðin fáránlega flókin og mikil því það eru allir að nota offshore forritara og hönnuði... því þekkingin er bara ekki til á Íslandi.
Þannig að störf sem þurfa bara vöðvaafl = útlendingar og sérfræðistörf sem hægt er að vinna remote = útlendingar.
Ég skil ekki þessa andúð á fólki af öðrum uppruna...
Jú, það eru crazyfucks inn á milli en mestmegnis er þetta allt yndislegt fólk, bara eins og fólk er.
Það er óskiljanlegt að einhver leyfir sér að líka illa við einhvern sem hann þekkir ekki og opnar ekki á að kynnast fólki bara sem manneskjum.
Ég vinn náið með fólki frá Kólumbíu, Póllandi, Litháen (og ég er örugglega að gleyma einhverjum), á nágranna frá Sýrlandi, Póllandi, Úkraínu, Filipseyjum (og örugglega fleirum).
Ég hef lengi unnið sem stjórnandi í vinnunni og er ítrekað formaður húsfélagins og þarf oft að eiga í flóknum og erfiðum samskiptum í fáránlegustu mál.
Maður verður vitni af fordómum fólks alla daga og ég hef oft séð og sé hvernig þetta nístir fólkið sem fyrir þeim verður.
Aldrei vil ég vera sá sem veldur fólki vanlíðan með því að koma illa fram við það, bara því ég lærði eitthvað slæmt um einhvern sem kom frá sama landi.
Væri það ekki ógeðlega vitlaust að koma illa fram við einhvern af þeirri ástæðu?
Er ekki álíka vitlaust að koma ilal fram við einhvern af þeirri ástæðu að hann tilheyrir einhverju úrtaki eða er í einhverri aðstöðu sem hann vill ekkert vera í ?