Síða 1 af 1

Áhugavert viðtal um ástandið í Úkraínu

Sent: Sun 23. Feb 2025 12:33
af GuðjónR
Ef einhver hefur áhuga þá er hér nýlegt viðtal þar sem Tucker Carlson ræðir við Bob Amsterdam um Úkraínu.


Re: Áhugavert viðtal um ástandið í Úkraínu

Sent: Sun 23. Feb 2025 13:04
af rapport
Hvað var áhugavert í þessu viðtali?

Ég upplifði þetta sem mjög undarlegt spjall tveggja manna sem leggjast mjög lágt til að rægja fólk sem þeir virðast fyrirlíta.

Hvað var málefnalegt og trúverðugt?

Að Selenskí sé á dópi því TC hefur persónulega reynslu af því úr fortíðinni?

Eða að gera það eitthvað gruggugt sð kirkjan í Úkraínu hafi slitið sig frá þeirri rússnesku?

Stjórnvöld í Úkraínu virðast á margan hátt haga sér með lýðræðislegri hætti en stjórnvöld í USA, minna ofstæki þar þrátt fyrir stríð.

Blessunarlega stefnir í að Evrópa muni þétta raðirnar til að standa þetta af sér.

Re: Áhugavert viðtal um ástandið í Úkraínu

Sent: Sun 23. Feb 2025 14:22
af GuðjónR
Mér finnst Bob Amsterdam trúverðugur. Googlaðu hans og skoðaðu ferilinn sem spannar 40-45 ár. Hef enga ástæðu til þess að trúa að þetta séu samsæriskenningar. Enda er hann ekki númer 1. á vinsældalista Pútíns.
But then again...hvað veit maður. Er bara orðinn þreyttur á einhliða áróðri fjölmiðla.

Re: Áhugavert viðtal um ástandið í Úkraínu

Sent: Sun 23. Feb 2025 15:37
af rapport
GuðjónR skrifaði:Mér finnst Bob Amsterdam trúverðugur. Googlaðu hans og skoðaðu ferilinn sem spannar 40-45 ár. Hef enga ástæðu til þess að trúa að þetta séu samsæriskenningar. Enda er hann ekki númer 1. á vinsældalista Pútíns.
But then again...hvað veit maður. Er bara orðinn þreyttur á einhliða áróðri fjölmiðla.


Hér er síðan hans https://robertamsterdam.com/

Það er ekkert sem mér finnst geta réttlætt að Rússar hafi tekið þetta land af Úkraínu og hafið þessar innrásir 2014 og svo 2022.

Hræðsla þeirra við NATO finnst mér vera yfirklór.

Ef meim fannst Euromaidan eitthvað sem hefði átt að rannsaka, þá hefði átt að rannsaka það.

En innrásir og fjöldamorð, ill meðferð og dráp á POW... Skipulagður brottflutningu barna...

Margt sem hefur verið algjörlega "nasistalegt" og hreinn viðbjóður.

Úkraína hefur ekki bara dansað á rósum en hafa unnið með alþjóðastofnunum að rannsóknum og verið "opnari bók".

Re: Áhugavert viðtal um ástandið í Úkraínu

Sent: Sun 23. Feb 2025 17:46
af BudIcer
Er kominn á þriðju mínútu og þarf varla að fara lengra. Fyrir utan það að tucker er ræfill sem ekki er vert að hlusta á þá er þessi gæji að koma með annaðhvort lygar eða viljandi mistúlkun á hlutum, sem er auðvitað standard fyrir kremlin áróður. Ef ykkur langar í eins óháðan fréttamiðil og hægt er að finna þá er Associated Press málið.

Re: Áhugavert viðtal um ástandið í Úkraínu

Sent: Sun 23. Feb 2025 19:01
af Baldurmar
Tucker Carlson er orðin 80% rússa- 20% nýnasista áróðursmaskína.

Re: Áhugavert viðtal um ástandið í Úkraínu

Sent: Sun 23. Feb 2025 19:30
af rapport
BudIcer skrifaði:Er kominn á þriðju mínútu og þarf varla að fara lengra. Fyrir utan það að tucker er ræfill sem ekki er vert að hlusta á þá er þessi gæji að koma með annaðhvort lygar eða viljandi mistúlkun á hlutum, sem er auðvitað standard fyrir kremlin áróður. Ef ykkur langar í eins óháðan fréttamiðil og hægt er að finna þá er Associated Press málið.


dw.com fínir lika

Re: Áhugavert viðtal um ástandið í Úkraínu

Sent: Sun 23. Feb 2025 19:38
af rapport
GuðjónR skrifaði: Er bara orðinn þreyttur á einhliða áróðri fjölmiðla.


Fór að hugsa. Getur verið að þú hafir eitthvað breyst en ekki forsendur stríðsins?

Þetta stríð er jafn einhliða núna og í febrúar 2022.

Hvað hefðir þú viljað sjá fréttaveiturnar gera öðruvísi?
Gefa ríkisreknum fjölmiðlum rússa meira pláss?

Er einhver frétt sem ætti að hafa skipt máli sem hefur ekki verið flutt í Evrópskum miðlum?

Re: Áhugavert viðtal um ástandið í Úkraínu

Sent: Sun 23. Feb 2025 22:09
af Stuffz
er ekki þessi tucker ex+fox news aka talking head fyrir republican party

Re: Áhugavert viðtal um ástandið í Úkraínu

Sent: Fim 27. Feb 2025 15:45
af rapport
Vil bara kommenta til að geta verið seinasti kommentar á öllum umræðum í stjórnmálaspjallinu :guy