kjartanbj skrifaði:
Það má reyndar alveg vera með aukaljós, bara takmörk fyrir því. tildæmis á vörubílum má vera með 4 kastara sem auka háljós en það þarf að tengja þá samt á sér rofa og vera hægt að hafa kveikt á sitthvoru parinu í einu.
Ég tók þetta bara sem dæmi, en nei. Þessum lögum var breytt núna 1. jan sjá
hér Ég er einmitt með takka á viðbótarljósi
Þar sem ég er á litlum pikka og með
viðbótarljós heldur sérljós slepp ég. En ef þú ættir kannski heima, ég veit ekki annarstaðar en í höfuðborginni, þá væri mjög líklegt að þú værir með flood niður til hliða, kastara áfram og sumir með flood aftan á OG margir með annað hvort á stuðara eða á toppnum. Þarna eru menn bara staddir á stað þar sem ljósastaurar eru ekki til staðar.
Ég þekki fólk sem hefur reynt allt sem það getur til að stoppa þetta, fólk sem er úr Framsókn, mamma þeirra og pabbi voru í Framsókn osfr. Þetta fólk býr á Vestfjörðum þar sem það sést ekkert, og ég meina ekkert. Það reyndir að tala vitinu fyrir öllum þarna en það var ekkert hlustað, bara áfram gakk þetta eru ESB reglur og við látum bara þýða þær
Þetta er auðvitað stórkostlega flókið fyrirbæri og samið af þvílíku bákni að það er í raun hlægilegt, því hverjir eiga svo að framfylgja þessum doðranti ? Þetta er btw einungis kaflinn um ljós, pældu í ruglinu 187 bls
Það eru bifvélarvirkjar á skoðunarstöðvum, sérðu þetta fyrir þér að gangi í praxís ? eh nei.
Það besta er að þetta á í raun við stórborgir, þar sem vandinn er að stemma stigu við "rice-un" á bílum, og Sigurður lætur bara þetta yfir sig ganga.
edit:
Þetta er náttúrulega

stórkostlega

off topic, en þetta lýsir í raun hverskonar stjórnmálasamband við eigum við EU/USA/NATO
Það verður ekkert gert annað en samþykkt það sem hinir í partýinu eru að gera