Síða 1 af 3
Nýr Meirihluti í Borgarstjórn?
Sent: Lau 08. Feb 2025 04:05
af Stuffz
Meirihluta samstarfinu sagt sturtað niður útaf flugvellinum?
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025 ... id_atyllu/Spurning hvort frekari áform um lífsgæða rýrnandi þéttingu byggðar verði endurskoðuð samhliða stefnu breytingu flugvallarins.
Mál Nr.8 á síðasta fundi 4 feb varðandi meiri umræðu um holdgerving þéttingar byggðar Stálgrindarhúsið/Græna gímaldið var frestað til næsta fundar vegna tafar á dagskrá, verður fróðlegt að sjá ef verður viðsnúningur hjá eitthverjum flokkanna í því máli á næsta fundi væntanlega 18 Febrúar 12:00
https://youtube.com/@reykjavik_city?si=RvuWsBv6SNdEn3Tl..hef verið að fylgjast með á Þriðjudögum, fúlt samt þegar streymið frís
https://www.youtube.com/watch?v=R0IthXUkH3U
Re: Nýr Meirihluti í Borgarstjórn?
Sent: Lau 08. Feb 2025 16:14
af rapport
Borgin er ekki að fara í neina kleinu, það er enginn að fara Trumpast þarna.
En fyrri meirihluti virtist hreinlega hafa sofnað.
Var það í alvöru Dagur sem hélt fúttinu gangandi í þessu liði?
Re: Nýr Meirihluti í Borgarstjórn?
Sent: Lau 08. Feb 2025 16:52
af Stuffz
rapport skrifaði:Borgin er ekki að fara í neina kleinu, það er enginn að fara Trumpast þarna.
En fyrri meirihluti virtist hreinlega hafa sofnað.
Var það í alvöru Dagur sem hélt fúttinu gangandi í þessu liði?
Já það virðist allavegana Dagur og Nótt munur fyrir og eftir að hann fór..

Nema kannski Frægasta bygging á landinu hafi haft eitthver áhrif á framvindu mála líka, og flugvöllurinn ekki beint nýjasta nýtt ágreiningsefnið.
Re: Nýr Meirihluti í Borgarstjórn?
Sent: Lau 08. Feb 2025 17:18
af rapport
Stuffz skrifaði:rapport skrifaði:Borgin er ekki að fara í neina kleinu, það er enginn að fara Trumpast þarna.
En fyrri meirihluti virtist hreinlega hafa sofnað.
Var það í alvöru Dagur sem hélt fúttinu gangandi í þessu liði?
Já það virðist allavegana Dagur og Nótt munur fyrir og eftir að hann fór..

Nema kannski Frægasta bygging á landinu hafi haft eitthver áhrif á framvindu mála líka, og flugvöllurinn ekki beint nýjasta nýtt ágreiningsefnið.
Þessi bygging er samt ekki pólitískt mál, bara eðlilegar afgreiðslur smærri mála hjá byggingarfulltrúa um breytingar á byggingarleyfum... sem söfnuðust upp í að verða stórmál.
Búseti bað sérstaklega um að fá að hafa sín hús nær lóðamörkum og virðist ekki hafa pælt í hvaða hús væri að fara rísa þarna.
Fólk keypti og flutti inn án þess að pæla í þessu...
Þetta er mestallt opið í Borgarvefsjá og í fundargerðum...
Persónulega þykir mér pólitíkin engin áhrif geta haft á þetta mál enda ekki þeirra að skipta sér af einstaka stjórnsýsluákvörðunum.
Ábyrgðin finnst mér nær alfarið vera hjá Búseta að byggja þessar blokkir þarna ofaní lóðamörkum sem þeir hefðu átt að vita að yrðu við vegg á stóru stálgrindarhúsi.
Re: Nýr Meirihluti í Borgarstjórn?
Sent: Lau 08. Feb 2025 18:33
af rapport
P.s. var með "barnaafmæli" í dag og gestirnir voru lúmskt spenntir yfir þessu en enginn gat sagt eða útskýrt af hverju, bara að Einar væri aumur borgarstjóri og borgin væri að skíta upp á bak við að höndla basic þjónustu sbr. leikskóla og grunnskóla.
Re: Nýr Meirihluti í Borgarstjórn?
Sent: Lau 08. Feb 2025 22:49
af GuðjónR
Þarf ekki að kjósa upp á nýtt?
Re: Nýr Meirihluti í Borgarstjórn?
Sent: Lau 08. Feb 2025 23:05
af einarhr
GuðjónR skrifaði:Þarf ekki að kjósa upp á nýtt?
Nei, það hefur alskonar skrípaleikur verið í gangi áður, td Villa Vill og Ólafur F. Magnússon gerðu svona leikirt án þess að það var kosið aftur.
Það má kjósa aftur mín vegna, ég hef á tilfinningunni að xB fái ekki mikið úr þeirri kostningu.
https://www.mannlif.is/frettir/olafur-f ... inn-thinn/https://www.visir.is/g/2007227490d/ogon ... rgarstjora
Re: Nýr Meirihluti í Borgarstjórn?
Sent: Lau 08. Feb 2025 23:14
af rapport
GuðjónR skrifaði:Þarf ekki að kjósa upp á nýtt?
Það er held ég ekki hægt í sveitastjórnum að boða til nýrra kosninga við stjórbarslit.
Re: Nýr Meirihluti í Borgarstjórn?
Sent: Lau 08. Feb 2025 23:38
af littli-Jake
GuðjónR skrifaði:Þarf ekki að kjósa upp á nýtt?
Ég er nokkuð viss um að það sé ekki kosið aftur í sveitarstjórn þó meirihluti falli. Það þarf þá bara að reyna að mynda nýjan meirihluta eða keyra á minnihluta stjórn.
Re: Nýr Meirihluti í Borgarstjórn?
Sent: Sun 09. Feb 2025 00:26
af beatmaster
Það er ekki kosið aftur, næstu kosningar eru eftir rúmt ár.
Hver man ekki eftir Villa Vill/Óla F/Hönnu Birnu fíaskóinu og þegar að við fengum nýja borgarstjórn liggur við á mánaðarfresti...

Re: Nýr Meirihluti í Borgarstjórn?
Sent: Þri 11. Feb 2025 23:59
af falcon1
Er virkilega engin varnagli í lögum um sveitastjórnir að hægt sé að losna við svona algjörlega vanhæft fólk eins og situr í borgarstjórn Reykjavíkur með kosningum áður en kjörtímabili lýkur? Sitja borgarbúar virkilega bara uppi með þetta lið í 15 mánuði í viðbót á ofurlaunum?
Það náttúrulega dettur engum af þessa siðlausa liði að segja af sér eftir öll klúðrin í borginni.
Re: Nýr Meirihluti í Borgarstjórn?
Sent: Mið 12. Feb 2025 01:04
af einarhr
falcon1 skrifaði:Er virkilega engin varnagli í lögum um sveitastjórnir að hægt sé að losna við svona algjörlega vanhæft fólk eins og situr í borgarstjórn Reykjavíkur með kosningum áður en kjörtímabili lýkur? Sitja borgarbúar virkilega bara uppi með þetta lið í 15 mánuði í viðbót á ofurlaunum?
Það náttúrulega dettur engum af þessa siðlausa liði að segja af sér eftir öll klúðrin í borginni.
Lestu bara þráðinn, þettta er ekkert nýtt dæmi! Vili Vill og Hanna Birna léku sama leikl. Svo þegar Hanna Birna fór í ríkisstjórn .........
Re: Nýr Meirihluti í Borgarstjórn?
Sent: Mið 12. Feb 2025 16:04
af rapport
https://www.visir.is/g/20252687989d/-kr ... gt-sam-talEr þetta vænlegt til árangurs?
Ég er smá efins en gæti alveg séð þetta ganga upp, en þá þarf að setja smá fútt í hlutina.
Re: Nýr Meirihluti í Borgarstjórn?
Sent: Mið 12. Feb 2025 20:37
af GuðjónR
Hvar er jafnréttið?
Re: Nýr Meirihluti í Borgarstjórn?
Sent: Mið 12. Feb 2025 22:30
af falcon1
Re: Nýr Meirihluti í Borgarstjórn?
Sent: Mið 12. Feb 2025 22:55
af rostungurinn77
rapport skrifaði:https://www.visir.is/g/20252687989d/-kryddpiur-i-form-legt-sam-tal
Er þetta vænlegt til árangurs?
Ég er smá efins en gæti alveg séð þetta ganga upp, en þá þarf að setja smá fútt í hlutina.
Vænlegt til árangurs. Líklega ekki.
Vænlegt fyrir hina flokkana sem verða í minnihluta. Líklegra en ekki.
Re: Nýr Meirihluti í Borgarstjórn?
Sent: Mið 12. Feb 2025 23:00
af einarhr
GuðjónR skrifaði:Hvar er jafnréttið?
Það eru 15 af 23 borgarfulltúum konur, karlmenn 8 þar af 5 í xD eða xB, er það eitthvað skrítið að þær/þeir sem eru í efstu sætunum hafi völdin?
Re: Nýr Meirihluti í Borgarstjórn?
Sent: Mið 12. Feb 2025 23:03
af Orri
GuðjónR skrifaði:Hvar er jafnréttið?
Þurfum við karlarnir ekki bara að fara að rífa okkur í gang?
Þekki þetta svosem ekki í borginni, en karlarnir sem voru í boði í forystusætum í Alþingiskosningunum nýliðnum voru nú ekki beint merkilegir kostir (Sigmundur Davíð, Bjarni Ben, og Sigurður Ingi).
Re: Nýr Meirihluti í Borgarstjórn?
Sent: Mið 12. Feb 2025 23:09
af falcon1
Við gefum þeim bara tækifæri, því hefur verið haldið fram að konur gætu stjórnað þessu landi miklu betur en karlarnir. Núna fáum við bara að sjá það svart á hvítu hvort það sé raunin eða ekki.
Miðað við Silfrið um daginn þá lofar það ekki góðu í borginni allavegana.
Re: Nýr Meirihluti í Borgarstjórn?
Sent: Mið 12. Feb 2025 23:30
af rapport
einarhr skrifaði:GuðjónR skrifaði:Hvar er jafnréttið?
Það eru 15 af 23 borgarfulltúum konur, karlmenn 8 þar af 5 í xD eða xB, er það eitthvað skrítið að þær/þeir sem eru í efstu sætunum hafi völdin?
Verður ekki jafnrétti náð þegar meirihluti kvenna hafa stýrt öllu í c.a. 80 ár?
En þetta er ekki eitthvað skelfilegt, þær geta ekki orðið jafn slæmar og Trump
Re: Nýr Meirihluti í Borgarstjórn?
Sent: Fim 13. Feb 2025 00:44
af appel
rapport skrifaði:einarhr skrifaði:GuðjónR skrifaði:Hvar er jafnréttið?
Það eru 15 af 23 borgarfulltúum konur, karlmenn 8 þar af 5 í xD eða xB, er það eitthvað skrítið að þær/þeir sem eru í efstu sætunum hafi völdin?
Verður ekki jafnrétti náð þegar meirihluti kvenna hafa stýrt öllu í c.a. 80 ár?
En þetta er ekki eitthvað skelfilegt, þær geta ekki orðið jafn slæmar og Trump
Kallast "payback", eða "hefnd". Ekki jafnrétti, fyrirgefning, samstaða, né neitt, bara sturlungaöld.
Spurning hvort þurfi að stofna Karlalistann?
Re: Nýr Meirihluti í Borgarstjórn?
Sent: Fim 13. Feb 2025 00:49
af falcon1
rapport skrifaði:
Verður ekki jafnrétti náð þegar meirihluti kvenna hafa stýrt öllu í c.a. 80 ár?
Ertu að djóka?
Re: Nýr Meirihluti í Borgarstjórn?
Sent: Fim 13. Feb 2025 08:03
af rapport
falcon1 skrifaði:rapport skrifaði:
Verður ekki jafnrétti náð þegar meirihluti kvenna hafa stýrt öllu í c.a. 80 ár?
Ertu að djóka?
Þetta var djók, en ég djókaði til að undirstrika alvarleikann við eitt og eitt kjörtímabil þar sem konur eru í yfirgnæfandi meirihluta...
There is none
Re: Nýr Meirihluti í Borgarstjórn?
Sent: Fim 13. Feb 2025 08:05
af rapport
appel skrifaði:rapport skrifaði:einarhr skrifaði:GuðjónR skrifaði:Hvar er jafnréttið?
Það eru 15 af 23 borgarfulltúum konur, karlmenn 8 þar af 5 í xD eða xB, er það eitthvað skrítið að þær/þeir sem eru í efstu sætunum hafi völdin?
Verður ekki jafnrétti náð þegar meirihluti kvenna hafa stýrt öllu í c.a. 80 ár?
En þetta er ekki eitthvað skelfilegt, þær geta ekki orðið jafn slæmar og Trump
Kallast "payback", eða "hefnd". Ekki jafnrétti, fyrirgefning, samstaða, né neitt, bara sturlungaöld.
Spurning hvort þurfi að stofna Karlalistann?
Það eitt að það séu konur að stjórna er ekki "payback".
Ef þær færu að gera eins og sumir forsetar, að afnema réttindi ákveðins hóps og taka sér aukin völd með vafasömum aðferðum... þá væri hægt að kalla það payback.
Ef að þær virða öll lög og reglur og stjórna af skynsemi, þá skiptir engu máli þó að þær séu ekki með typpi.
Re: Nýr Meirihluti í Borgarstjórn?
Sent: Fim 13. Feb 2025 09:06
af nidur
rapport skrifaði:þær geta ekki orðið jafn slæmar og Trump
Minnist á trump í öðrum hverjum pósti hérna, er þetta það sem þeir kalla Trump derangement syndrome (TDS)?
