rapport skrifaði:Núna er Trump að hóta Íran "Ef þið drepið mótmælendur þá ráðumst við á ykkur"....
Á sama tíma í USA er ICE að skjóta 37 ára þriggja barna móður í höfuðið fyrir framan hóp af fólki og morðinginn fer svo bara af vettvangi áður en lögreglan mætir á svæðið... og stjórnvöld styðja opinberlega við það sem hann gerði.
Veit það ekki, ég horfði á þetta vídjó og það er greinilegt að þessi kona reyndi að keyra yfir vopnaðan lögreglumann, sem skaut hana þá í gegnum framrúðuna. Konan getur kennt sjálfri sér um, þegar þú ert með vopnaða lögreglu sem gefur þér skipanir en þú kýst að hunsa það og reyna keyra yfir lögreglumann þá er það alveg ljóst hvað gerist, konan framdi sjálfsmorð með eigin heimsku.
Það eru mörg tilfelli í BNA, og Evrópu, þar sem farartæki einsog þungir bílar sem hafa verið notaðir til að fremja hryðjuverk með að keyra inn í hrúgu af fólki til að drepa. Það er standandi stefna hjá lögreglunn í BNA að allar slíkar tilraunir skuli stöðva strax, og flokkist sem hryðjuverk.
Að bera þetta saman við öryggissveitir í Íran sem skjóta af handahófi inn í hóp af fólki er náttúrulega bara bull.