Fyrir þá sem vilja hætta að versla við USA

Hér gilda almennar reglur, og virðing er skilyrði. Þræðir birtast ekki í Virkum umræðum.
Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fyrir þá sem vilja hætta að versla við USA

Pósturaf rapport » Sun 09. Mar 2025 22:44

appel skrifaði:
Bandaríkin kjósa núna að styðja ekki við Úkraínu. Var það einhvernveginn réttur Úkraínu að njóta stuðnings BNA? Bara veruleikinn þó manni finnst hann súr.


https://en.m.wikisource.org/wiki/Ukrain ... Assurances

BNA á stórann þátt í því hvernig er komið fyrir Úkraínu.

Kína hefur söguleg tengsl við þetta líka en hafa hagað sér og styðja alla aðila með viðskiptum en hafa ekki gefið neitt.

Það voru líklega mestu vonbrigði Pútíns að fá ekki Kínverja með sér í þetta stríð.

En þú vilt s.s. ekki að Úkraína verði áfram til og það sé OK að alþjóðasamfélagið horfi framhjá glæpum Rússa í þessu stríði og geri hvað?

Hvernig sérðu það ganga upp?



Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fyrir þá sem vilja hætta að versla við USA

Pósturaf rapport » Sun 09. Mar 2025 22:46

appel skrifaði:
Henjo skrifaði:
appel skrifaði:
Henjo skrifaði:
appel skrifaði:Enginn heimtaði boycott á BNA hérna þegar Ísraelar tortímdu Gaza með vopnum frá BNA. Þ.e. þegar Biden demókrataforseti var við völd, sendi þeim hellings af vopnum sem fjöldamyrtu Gaza búa og heimtaði lítið sem ekkert í staðinn.

En svo þegar Trump repúblikanaforseti vill enda þessi stríð, m.a. Gaza, og þá aðallega Úkraínustríðið, já þá standa menn upp á afturfæturnar, berja hnefanum í borðið og heimta boycott!

Er þetta Twilight Zone? Black Mirror? Vitiði hvað þið eruð að segja? Hafiði hugsað þetta til enda?

En skora á menn að byrja boycottið án tafar, hætta að nota allt frá Google, Apple, og svo auðvitað Microsoft. Vonandi heyrist þá ekkert meira af svona vitleysu :)


Misstirðu af partinum þegar Trump ætlar í tollastríð við allt og alla? Og er með allskonar hótanir ef hann fær ekki að taka yfir heilu löndin eins og Grænland?

Heldurðu það í alvörunni að fólk vilji hætta að nota Amerískar vörur því Trump vill enda stríð?


Eigum við ekki bara að láta stjórnvöld sjá um þetta. Held svona virtue signaling boycott séu bara kjánalegt rugl.


Uhm, nei. Fólk má gera það sem það vill, ef það vill boycota BNA þá er það akkúrat það sem þá má gera. Alveg eins og fullt af fólki forðast vörur frá Ísreal.

Fyndið því ég bjóst við að svona pro-trump manneskja myndi standa fyrir það að fólk hugsi fyrir sjalfan sig smá og láti ekki ríkið gera allt. Ég hélt að það væri kommúnismi eða eitthvað þegar "Eigum við ekki bara að láta stjórnvöld sjá um þetta"

Hálfvitaleikurinn er auðvitað sá að ef þú vilt virkilega boycotta vörur (og þjónustu) frá BNA þá þarftu doldið að fara lifa einsog Amish. Ég meina þessir menn sem hvetja til boycotts eru örugglega að nota Windows tölvur. Come on. Gerið betur.


Er það ekki bara mitt mál hvernig ég útfæri mitt boycott?

Voðaleg afskiptasemi er þetta...



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5780
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1078
Staða: Ótengdur

Re: Fyrir þá sem vilja hætta að versla við USA

Pósturaf appel » Sun 09. Mar 2025 23:29

rapport skrifaði:
appel skrifaði:
Bandaríkin kjósa núna að styðja ekki við Úkraínu. Var það einhvernveginn réttur Úkraínu að njóta stuðnings BNA? Bara veruleikinn þó manni finnst hann súr.


https://en.m.wikisource.org/wiki/Ukrain ... Assurances

BNA á stórann þátt í því hvernig er komið fyrir Úkraínu.

Kína hefur söguleg tengsl við þetta líka en hafa hagað sér og styðja alla aðila með viðskiptum en hafa ekki gefið neitt.

Það voru líklega mestu vonbrigði Pútíns að fá ekki Kínverja með sér í þetta stríð.

En þú vilt s.s. ekki að Úkraína verði áfram til og það sé OK að alþjóðasamfélagið horfi framhjá glæpum Rússa í þessu stríði og geri hvað?

Hvernig sérðu það ganga upp?


Hvað vil ég? Ágætt að þú spurðir.

Ég vil auðvitað að Pútín verði steypt af stóli og allt hans pakk sett í fangelsi, og Rússlandi refsað fyrir þetta.
Ég hef aldrei haldið með rússlandi eða pútín, þú þó kannski skiljir það sem svo.

Ég hef reyndar viljað að NATÓ hefði farið inn í Úkraínu og aðallega komið upp verndarhring í kringum höfuðborgina sem fyrst. Að skilagreina ákveðnar bardagalínur sem rússar geta ekki farið yfir.

Hefði viljað sjá hersveitum stillt upp gegn Kalínígrad og Belarús, til að hóta þeim innrás, og stilla upp stórskotaliði gegn St. Pétursborg.

En hvenær verður WW3 þá? Ef ég fengi að ráða væri WW3 núna :D

En Úkraína hefur fengið stuðning í 3 ár núna og vissulega staðið sig vel, en það virðist sem einræðisríki hafi betri vilja til að halda svona áfram en frjáls lýðræðisríki. Evrópa virðist ekki haft vilja til að færa neinar fórnir. BNA gert miklu meira en þau þurftu að gera.

Eitthvað memorandum hefur enga þýðingu þegar á reynir.

https://en.wikipedia.org/wiki/Molotov%E ... ntrop_Pact
ekki entist það lengi. Sóvétríkin jafn sek um ww2 og hitler segi ég.


*-*

Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fyrir þá sem vilja hætta að versla við USA

Pósturaf rapport » Mán 10. Mar 2025 00:17

Ég vil frekar styðja Úkraínu í að klára þetta og draga sem fæst lönd í bein átök, forða ww3.

En USA komu heldur betur á óvart, gáfust bara upp sem "superpower".

Nú vil ég sjá Kína koma á frekari lýðræðisumbötum hjá sér og fylla í þetta skarð sem BNA skildu eftir.

Áður en Rússar eða Indverjar fá einhverjar grillur.

Ef Brasilía hefði meiri burði þá hefðu þeir verið kandídatar.

En eini tilgangur hers USA var að sendast um heiminn í samráði við aðra...

Nú nennir þeim enginn og því liggur í loftinu að öll Evrópulöbd fylki sèr á bakvið eitt land sem virðist ætla að verða Frakkland eða Pólland. Þjóðverjar hafa ekki áhuga á slíku hlutverki með sína sögu.

En USA er Gaius Baltar í þessari sögu sem er skrifuð þessa dagana...

EDIT: USA að mála sig út í horn, að gera viðskipt við USA erfiðari er að valda því að það er þróað framhjá þeim

https://www.scmp.com/tech/big-tech/arti ... ency-drive

https://www.scmp.com/tech/tech-trends/a ... orld-tasks
Síðast breytt af rapport á Mán 10. Mar 2025 13:05, breytt samtals 1 sinni.