rapport skrifaði:https://www.aljazeera.com/video/talk-to-al-jazeera/2025/6/19/iaea-chief-no-evidence-iran-is-building-a-nuclear-weapon
Trúðu því bara sem þú vilt trúa, ekki einsog það skipti máli lengur í dag. Staðan bara orðin önnur.
Ég tel að Íran sé með það markmið að framleiða kjarnorkusprengjur ásamt ICBMs til að drífa til Evrópu og BNA. Öll þau skref sem Íran hefur tekið gefur það til kynna, lokaskrefið í þessu ferli öllu er auðvitað samsetning á kjarnorkusprengju. Þegar einhver embættismaður alþjóðlegrar stofnunar segir "engar vísbendingar um smíði kjarnorkusprengju" þá ranghvolfi ég augunum því vísbendingarnar eru allsstaðar, bara þessi uppbygging á kjarnorkuinnviðum Írana ætti að vera næg vísbending, ásamt því hefur IAEA sagt að Íran sé að brjóta NPT, og sé búið að augða umfram það sem leyfilegt er, og eftirlitsmenn hafi ekki aðgang að öllum stöðum og viti ekki hvar mikið af auðguðu úrani er niðurkomið. Fullt af þannig vísbendingum sem hann kýs að horfa framhjá.
Bíddu bara, það mun líklega gerast að Íran sprengi kjarnorkusprengju, væntanlega neðanjarðar til að auglýsa það, og svo kemur þú fram og segir að það sé auðvitað Ísrael að kenna, "þeim að kenna að hafa þvingað íran til að gera það". Kaldi raunveruleikinn er sá að Íran er að marsera í átt að kjarnorkuvopnum og hefur verið að stefna að þeim lengi, þeir eignast þau ekki fyrir mistök, það þarf mikinn vilja yfir langt tímabil.
Ef Íran vildi bara framleiða rafmagn með kjarnorkuverum þá eru til aðrar leiðir sem eru fool-proof friðsamlegar, en íranir vilja annað. Nota bene þá framleiða þeir eiginlega ekkert rafmagn með þessum kjarnorkuverum sínum þrátt fyrir langa uppbyggingu. Hví að eyða svona miklu púðri í þetta þegar þú framleiðir ekkert rafmagn þó það sé yfirlýst markmið?
Það er helling af löndum sem eru með kjarnorkuver sem framleiða rafmagn með fool-proof NPT compliant og í friðsamlegum tilgangi án þess að hægt sé hægt að nota til framleiðslu kjarnorkuvopna. Íran er ekki þar.
En ég sagði að allt þetta skipti ekki lengur máli, þessi spurning hvort þeir séu að koma sér upp kjarnorkuvopnum eða ekki er bara úreld spurning, því ég tel að staðan sem er NÚNA uppi er orðin mjög krítísk og það eru aðrar spurningar sem skipta meira máli.
Ísrael getur í raun ekki stöðvað þetta stríð, þeir þurfa að halda áfram, þeir eru orðnir "all in" að tortíma kjarnorkuáætlun Írana og líklega klerkastjórninni. Það verður ekki aftur snúið, nema stærri veldin stígi inn í þetta og höggvi á hnúta.
Ísraelar vita að af þeir bara hætta að ráðast á skotmörk í Íran þá mun klerkastjórnin ná vopnum sínum aftur og hún mun verða enn einbeittari að tortíma Ísrael. Það er aðeins ein leið svo hægt að fá Ísrael til að hætta að ráðast á Íran og það er að kjarnorkuáætlun Írana verði annaðhvort eyðilögð eða lögð af.
Nota bene, Ísrael mun aldrei hætta fyrr en búið er að tortíma kjarnorkuáætlun Írana, þeir megi það ekki, því þeir vita að þá verði þeim útrýmt.