Atvinnulausum hent á götuna?

Hér gilda almennar reglur, og virðing er skilyrði. Þræðir birtast ekki í Virkum umræðum.

Höfundur
falcon1
vélbúnaðarpervert
Póstar: 911
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 110
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Atvinnulausum hent á götuna?

Pósturaf falcon1 » Þri 08. Apr 2025 16:17

Þetta er nú með því vitlausara. Tryggingagjaldið hlýtur að þurfa að lækka á móti. Þetta er réttur sem fólk vinnur sér inn. Ég hélt að þessi ríkisstjórn ætlaði að vinna fyrir bágstadda í samfélaginu.

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025 ... tti-441057



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Atvinnulausum hent á götuna?

Pósturaf rapport » Þri 08. Apr 2025 17:41

Markmið fyrirhugaðra breytinga á atvinnuleysistryggingakerfinu er, samkvæmt tilkynningunni, að grípa fólk fyrr en áður og stuðla að aukinni virkni hjá þeim sem útsett eru fyrir langtímaatvinnuleysi. Áhersla verði lögð á endurhæfingu og samvinnu þjónustukerfa til að koma í veg fyrir að fólk falli á milli kerfa.


Nei, held að markmiðið sé að koma fólki í vinnu eða önnur úrræði hraðar og betur.

30 mánuðir 2,5 ár á atvinnuleysisbótum er allt of langur tími og VMST er illgjörn stofnun, var sjálfur atvinnulaus í nokkra mánuði og það var ömurleg upplifun að þurfa að díla við VMST og reyna að skapa sér einhverjar tekjur og verkefni sjálfstætt, þau hreinlega kepptust við að drepa allt frumkvæði niður og ég endaði á að þurfa greiða þeim til baka 850þ. því ég opnaði VSK númer í 10 daga.




Höfundur
falcon1
vélbúnaðarpervert
Póstar: 911
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 110
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Atvinnulausum hent á götuna?

Pósturaf falcon1 » Fim 10. Apr 2025 14:19

Reynsla mín af VMST þegar ég var atvinnulaus var ekki alveg svona slæm eins og hjá þér, ég gat farið á námsamning á meðan ég var að sækja um vinnur út um allt og eftir að ég fékk vinnu gat ég haldið áfram náminu með vinnu. Það geta komið upp tilfelli þar sem fólk einfaldlega fær ekki vinnu innan 18 mánaða (skilst að það verði viðmiðið hjá stjórninni). Ekki út af einhverri leti heldur bara lélegrar framkomu vinnuveitenda sem margir hverjir svara ekki einu sinni umsóknum.
Það vill engin vera svona lengi á atvinnuleysisbótum, nær varla upp í nös á ketti þessi upphæð.



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Atvinnulausum hent á götuna?

Pósturaf rapport » Fim 10. Apr 2025 16:53

falcon1 skrifaði:Reynsla mín af VMST þegar ég var atvinnulaus var ekki alveg svona slæm eins og hjá þér, ég gat farið á námsamning á meðan ég var að sækja um vinnur út um allt og eftir að ég fékk vinnu gat ég haldið áfram náminu með vinnu. Það geta komið upp tilfelli þar sem fólk einfaldlega fær ekki vinnu innan 18 mánaða (skilst að það verði viðmiðið hjá stjórninni). Ekki út af einhverri leti heldur bara lélegrar framkomu vinnuveitenda sem margir hverjir svara ekki einu sinni umsóknum.
Það vill engin vera svona lengi á atvinnuleysisbótum, nær varla upp í nös á ketti þessi upphæð.


Held að hugmyndin sé svolítið að setja meiri pressu á VMST að vera þjónustustofnun en ekki afgreiðslustofnun.

t.d. þá hefði VMST átt að benda mér að allt sem ég vildi gera hefði rúmast innan marka - https://island.is/frumkvaedi

Það var ekki fyrr en ég var boðaður á eitthvað námskeið/kynningu hjá þeim að einhvar annar sem mætti sagði mér frá þessum möguleika.




Höfundur
falcon1
vélbúnaðarpervert
Póstar: 911
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 110
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Atvinnulausum hent á götuna?

Pósturaf falcon1 » Mán 14. Apr 2025 00:09

rapport skrifaði:Held að hugmyndin sé svolítið að setja meiri pressu á VMST að vera þjónustustofnun en ekki afgreiðslustofnun.

t.d. þá hefði VMST átt að benda mér að allt sem ég vildi gera hefði rúmast innan marka - https://island.is/frumkvaedi

Það var ekki fyrr en ég var boðaður á eitthvað námskeið/kynningu hjá þeim að einhvar annar sem mætti sagði mér frá þessum möguleika.

Þetta er sniðugur möguleiki. Mér var reyndar ekki bent á þetta.