Er global warming 4realz?

Hér gilda almennar reglur, og virðing er skilyrði. Þræðir birtast ekki í Virkum umræðum.
Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Er global warming 4realz?

Pósturaf rapport » Mán 03. Mar 2025 12:19



Síðast breytt af rapport á Mán 03. Mar 2025 12:21, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5780
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1078
Staða: Ótengdur

Re: Er global warming 4realz?

Pósturaf appel » Mán 03. Mar 2025 12:52



*-*

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5780
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1078
Staða: Ótengdur

Re: Er global warming 4realz?

Pósturaf appel » Mán 03. Mar 2025 13:00

~0.04%
og þú vissir það ekki fyrr en nú.
ástæðan => heilaþvottur
þú getur ekki heilaþvegið fólk með 0.04% tölu í brennidepli
Síðast breytt af appel á Mán 03. Mar 2025 13:00, breytt samtals 1 sinni.


*-*


falcon1
vélbúnaðarpervert
Póstar: 911
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 110
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er global warming 4realz?

Pósturaf falcon1 » Mán 03. Mar 2025 14:30

Þetta hefur nú ekkert með global warming að gera. :) Ég bjó lengi þarna og það gerðist á einhverra ára fresti að það færi yfir varnargarðanna steinar og allskonar drasl. Það sem virðist hafa gerst þarna er að garðurinn hefur gefið sig illa. Reyndar er búið að byggja frekar nálægt görðunum núna (ég myndi segja of nálægt) og því meiri hætta á tjóni vegna þessa en var hér á árum áður.



Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er global warming 4realz?

Pósturaf rapport » Mán 03. Mar 2025 15:05

appel skrifaði:~0.04%
og þú vissir það ekki fyrr en nú.
ástæðan => heilaþvottur
þú getur ekki heilaþvegið fólk með 0.04% tölu í brennidepli




Það segir sig sjálft að meira CO2 = meiri hitamyndun...

Í raun er verra að CO2 er bara 0,04% því að þá þarf mannkynið að framleiða minna af CO2 til að magna áhrifin upp... bara 0,01% í viðbót yrði 25% aukning...

Þannig að þegar fólk segir "þetta er svo lágt hlutfall" þá er eðlilegt að það að draga þá ályktun að virknin sé mikil og hún magnar svo upp aðra virkni sbr. eykur rakastig í andrúmsloftinu.

Við getum ekki stjórnað vatnsmagninu í loftinu því yfirborð jarðar er mestmegnis vatn... en við getum reynt og ættum að reyna að lágmarka koltvísýring og metan.

Þessi einfalda tilraun hér að ofan er eitthvað sem þú getur prófað heima hjá þér ef þú trúir ekki á "global warming".

Persónulega þá finnst mér auðveldara að trúa þessum vísindum en mörgu öðru og er sammála Carl Sagan að m.v. hverjar afleðingarnar geta orðið, þó þær séu ólíklegar... þá ættum við að reyna hvað við getum til að afstýra þeim.



Skjámynd

ekkert
Ofur-Nörd
Póstar: 209
Skráði sig: Mán 05. Apr 2021 11:23
Reputation: 101
Staða: Ótengdur

Re: Er global warming 4realz?

Pósturaf ekkert » Mán 03. Mar 2025 18:15

Auðvitað hefur hlutfall CO2 í andrúmsloftinu okkar áhrif á hitastig lofthjúpsins, án þess og annara gróðurhúsalofttegunda væri ekkert nema frost um alla jörðu. Oftast er einingin ppm (parts per million) notuð en það er um 424 núna sem gerir 0.0424%. Það var um 345 ppm þegar ég fæddist.

Yfirborð sjávar er ekki fullkomlega hringlaga vegna snúning jarðar og ójafna dreifingu á massa. Grænlandsjökull og ís á norðurpólnum eru töluvert massívir og toga í hafið svo yfirborð hækkar aðeins, nógu mikið til að við þurfum ekki að búast við hækkun á sjávaryfirborði ef þeir bráðna. Yfirborðið hækkar mun meira sunnar á hnettinum.


AMDip boii
Jarðeldsneytis- og koníaklaust Ísland 2030


axyne
Of mikill frítími
Póstar: 1816
Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
Reputation: 87
Staðsetning: DK
Staða: Ótengdur

Re: Er global warming 4realz?

Pósturaf axyne » Mán 03. Mar 2025 20:30

appel skrifaði:~0.04%
og þú vissir það ekki fyrr en nú.
ástæðan => heilaþvottur
þú getur ekki heilaþvegið fólk með 0.04% tölu í brennidepli

Hvað finnst þér þá vera of mikið ?
Fundarherbergi byrja að verða óþæginleg 1000+ ppm og það er ekki "nema" 0,1%
Yfir 0,5% og það er bókstaflega hættulegt fyrir heilsuna.

þótt hlutfallið er lítið, þýðir það ekki að það sé vandamál.


Electronic and Computer Engineer

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17029
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er global warming 4realz?

Pósturaf GuðjónR » Mán 03. Mar 2025 21:02

Hlýnun jarðar. Ertu að spyrja hvort hún sé af mannavöldum? Ef svo er, þá er augljósa svarið nei.

Auðvitað eru sveiflur, hvort sem það eru 20 ára tímabil, 120 ára tímabil eða 2000 ára tímabil. Allskonar tímabil.

Það hafa verið ísaldir og einnig steikjandi hiti. Eitt sinn var Sahara græn, steingervingar hafa sannað það.

En hvort við eigum einn eða tvo heimilisbíla hefur ekkert með hlýnun eða kólnun að gera. Sólin sér um það.

Grænir skattar breyta ekki veðrinu frekar en kílómetragjaldið fækkar holum.



Skjámynd

ekkert
Ofur-Nörd
Póstar: 209
Skráði sig: Mán 05. Apr 2021 11:23
Reputation: 101
Staða: Ótengdur

Re: Er global warming 4realz?

Pósturaf ekkert » Mán 03. Mar 2025 22:41

Við erum að auka magn CO2 í andrúmsloftinu með því að pumpa upp olíu úr jörðinni og brenna hana. Þetta breytir því hve mikið af sólarljósinu (og sérstaklega innrauða sviðið) verður að hita áður en það geislast aftur út frá lofthjúpi jarðar sem þýðir að meðal hitastig lofthjúpsins hækkar og hefur þar af leiðandi áhrif á loftslag. Þetta eru ekki stjórnmál, þetta er raunveruleikinn. Það vísindafólk sem stúderar þetta eru ekki bjánar og ekki að ljúga að heiminum.

Hvort eða hvernig á að taka á þessu hinsvegar, það eru stjórnmál. Það skiptir engu máli að jakkafatapakk með $$ í augasteinum getir ekki útskýrt neitt í yfirheirslu eða að stjórnmálabjúrókratar leggi til græna skatta, það breytir engu til um raunveruleikann. Þótt CO2% andrúmsloftsins hafi sveiflast til í sögu jarðar og loftslagið með þýðir ekki að við höfum engin áhrif þegar við loftum út CO2 eins og aldrei fyrr. Heiminum er alveg sama um hvaða stjórnmál þú aðhyllist, við breytum lofthjúpnum og tökum afleiðingunum, rétt eins og ef þú byggir húsið þitt of nærri ströndinni þá færðu grjót og þara inn um hurðina annað slagið.

Þessir varnargarðar eru klárlega ekki nóg og byggt of nálægt sjó. En það er spurning hvort er ódýrara, að stækka varnargarðanna eða takast á við afleiðingarnar á nokkura ára fresti. Nú eru 1-in-1000 years weather events farið að gerast á tíu ára fresti og stefnan er bara að pólitískt bruðl og afneitun á raunveruleikanum. Fólk flokkar plast í plast tunnur sem síðan er sent til Svíþjóðar í brennslu og þarf síðan að fara í ferð til tene. Enginn segir stopp við að pumpa upp olíu, eina rót vandans.
Síðast breytt af ekkert á Mán 03. Mar 2025 22:43, breytt samtals 1 sinni.


AMDip boii
Jarðeldsneytis- og koníaklaust Ísland 2030

Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er global warming 4realz?

Pósturaf rapport » Þri 04. Mar 2025 17:23