Síða 1 af 1
Dauður háhyrningur á Kjalarnesi
Sent: Fim 12. Jún 2025 17:34
af GuðjónR
Þessi er á Kjalarnesi núna, ætli þetta sé sá sami og var bjargað í gær? Það er eins og hann sé með þrjú göt á sér eftir byssukúlur.
Re: Dauður háhyrningur á Kjalarnesi
Sent: Fim 12. Jún 2025 17:43
af Semboy
Ég skil ekki afhverju fólk hefur áhuga að skjóta svona fallegt fyrirbæri
](./images/smilies/eusa_wall.gif)
Re: Dauður háhyrningur á Kjalarnesi
Sent: Fim 12. Jún 2025 17:46
af GuðjónR
Héld hann sé hérna. Það þyrfti að láta lögregluna vita.
Re: Dauður háhyrningur á Kjalarnesi
Sent: Fim 12. Jún 2025 19:32
af Moldvarpan
Þessi dýr eru oftast nær veik og að deyja. Þau þurfa að anda, þannig ef þau geta ekki haldið sér á floti þá drukkna þau.
Það að skjóta dýrið í hausinn er eflaust það "mannúðlegasta" sem hægt er að gera.
Re: Dauður háhyrningur á Kjalarnesi
Sent: Fim 12. Jún 2025 23:11
af TheAdder
Re: Dauður háhyrningur á Kjalarnesi
Sent: Lau 14. Jún 2025 00:56
af appel
Þetta er áhugavert pattern, svolítið einsog Predator patternið. En sammála, einsog þetta sé eftir stungusár enda kemur blóð þaðan út sem þýðir að það var stungið þegar það var á lífi...hmmm..svona gerist ekki af sjálfum sér.
edit: kannski er myndin eftir að það var skotið til þess að aflífa það.
Re: Dauður háhyrningur á Kjalarnesi
Sent: Lau 14. Jún 2025 08:57
af Sinnumtveir
Semboy skrifaði:Ég skil ekki afhverju fólk hefur áhuga að skjóta svona fallegt fyrirbæri
](./images/smilies/eusa_wall.gif)
Ég stórefast um að nokkur hafi haft sérstakan áhuga á að skjóta þetta dýr.
Þessum háhyrningi var "bjargað" úr strandi í Grafarvogi, komið á haf út ... og svo nokkru síðar var hann strandaður í annarri fjöru.
Svona "hegðun" hvala sem vart verður við endrum og sinnum er óútskýrð, Eftir ítrekuð strönd og bjarganir er aflífun á að giska snyrtilegasta lausnin.
Re: Dauður háhyrningur á Kjalarnesi
Sent: Lau 14. Jún 2025 10:02
af TheAdder
Aflífun er valin í tilvikum eins og þessum af miskunarsemi. Þegar dýrin stranda er það kvalafullur og langdreginn dauðdagi. Eins og @Sinnumtveir minntist á hér að ofan, þá skiljum við ekki þessa sjálfs eyðingar hegðun, sem við höfum séð áður í hvölum.
Re: Dauður háhyrningur á Kjalarnesi
Sent: Lau 14. Jún 2025 10:08
af CendenZ
Lítur út eins og buck haglaskotsár, mögulega stærð 000 eða gæti verið 00
ég veiddi sel þegar það mátti veiða þá, skaut með rifflum og með 00 og var sárið aðeins öðruvísi en samt svona svipað.
Re: Dauður háhyrningur á Kjalarnesi
Sent: Lau 14. Jún 2025 19:00
af Stuffz
Krufning á maga innihaldi