Síða 1 af 1
Gera upp þvóttahús
Sent: Sun 08. Jún 2025 12:59
af Semboy
1. Mig langar að fara í framkvæmd og mig langar að gera þetta allt sjálfur. Þar sem eldhús framkvæmd gekk mjög vel hjá mér.
Þvóttahúsið er með frárennsli á golfinu, hvað þarf maður að hafa í huga til að reyna ná réttan halla á golfinu? Ég ætla flísa þetta.
2. Ég mun heilspasla allan veggin (Kannski fæ ég aðstoð með það)
3. varðandi þvóttavél og þúrkara. Haldiði það sé hægt að fá vélar sem geta verið innbyggt eins og uppþvóttavél?
Ég er búinn að heyra að það sé ekki sniðugt að hafa þá innbyggt.
4. Vatnslagnir á veggjum og frárennsli ég þarf að færa þá aðeins til hliðar (Þessu ætla ég ekki koma nálægt)
Ég hef nokkuð góða hugmynd hvernig final lookið verður, vitiði um eithvað forrit sem getur aðstoðað mig með það?
Annað en ikea forritið.
Re: Gera upp þvóttahús
Sent: Sun 08. Jún 2025 14:18
af Viktor
Re: Gera upp þvóttahús
Sent: Sun 08. Jún 2025 15:30
af Dúlli
Vilt ekki hafa þetta innbyggt, þegar vélarnar eru ekki í notkun þá viltu hafa hurðina opna upp á loftun að gera.
Re: Gera upp þvóttahús
Sent: Sun 08. Jún 2025 16:19
af Hausinn
Væri sniðugt að setja inn myndir til þess að fólk fái betri hugmynd um uppsetninguna.
Re: Gera upp þvóttahús
Sent: Sun 08. Jún 2025 23:57
af T-bone
Hvaða gólfefni er á þvottahúsinu núna?
Ef það er bara máluð steypa eða flísar þá er líklega vatnshallinn nokkuð réttur og getuir flísað beint á steypuna (þá þegar þú ert búinn að týna gömlu flísarnar upp ef þær eru til staðar)
Í kringum niðurfallið er örlítið meira mál, en fer eftir því hvernig það hittir inn í flís, en yfirleitt er aðeins meiri halli akúrat í kringum niðurfallið en á restinni af gólfinu.
Mæli með því að fara í flísabúðina og kaupa skurðarskífu fyrir flísar í slípirokk. Sérstaklega ef þú ætlar að kaupa nokkuð harðar og góðar flísar. Mun auðveldara að skera flísarnar með svona skífu heldur en flísasög ef þú kannt að fara með slípirokk. Passa bara að hita flísarnar ekki mikið. Skera rólega og jafnvel taka smá pásur til að leyfa draslinu að kólna aðeins ef þetta eru stórar flísar.
Að heilspartla vegg er ekkert rosalegt mál. Vertu bara með eins stóran spaða og þú mögulega getur til að bera það á, og sama á við þegar þú pússar yfir það. Með sem stærstan flöt til að pússa eru minnstar líkur á því að búa til mishæðir.
Myndi aldrei hafa þetta innbyggt, sem sagt með frontum eða skáphurðum sem er hægt að loka fyrir vélarnar.
Hins vegar er ekkert mál að útbúa þetta þannig að það séu hliðar sitthvoru megin við vélarnar og borðplata ofan á því, ef þú ert að meina þannig.
Passaðu bara að það sé gott pláss til hliðanna við vélarnar og pláss á milli þeirra, og að það séu nokkrir sentimetrar fyrir ofan vélarnar að borðplötunni svo að það lofti vel, og það sé auðveldara að koma þeim inn í innréttinguna.
Ef þú nærð að hafa vatnslagnirnar á bakvið vélarnar inn í innréttingunni án þess að færa þær mæli ég mikið með því. Getur verið mjög leiðinlegt að eiga við gamlar lagnir, sérstaklega ef þú ert í blokk og ekki á efstu hæð. Mjög misjafnt hvernig er gengið frá þessu öllu saman.
Vona að ég hafi gert mig skiljanlegan með þessari ræðu.
Kv. Anton
Re: Gera upp þvóttahús
Sent: Mán 09. Jún 2025 13:09
af Semboy
T-bone Takk æðislega. Hjálpar helling
Re: Gera upp þvóttahús
Sent: Mán 09. Jún 2025 15:02
af T-bone
Semboy skrifaði:T-bone Takk æðislega. Hjálpar helling
Minnsta mál.
Mátt líka alveg senda mér skilaboð ef það er eitthvað. Ég er ekki sérfræðingur í þessu en er vélfræðingur og kann ýmislegt og er þar að auki nýbúinn að taka íbúð gjörsamlega í nefið. Gerði hana basically fokhelda og byggði upp aftur.