Síða 1 af 1

Einstaklega illa skipulagt og hættulegt peningaplokk

Sent: Sun 01. Jún 2025 08:54
af rapport
https://www.visir.is/g/20252733584d/thr ... um-fm95blo

Þetta er i raun glæpsamlegt að gera þetta svona illa og stefna öllu þessu fólki í hættu.

Hefði viljað sjá lögreglu grípa inn í og tryggja öryggi fólks.

Re: Einstaklega illa skipulagt og hættulegt peningaplokk

Sent: Sun 01. Jún 2025 09:58
af russi
Þetta er mjög sérstakt.

Það hefur oft verið uppselt í höllina, reynslan við takast á við fulla höll er til og hefur verið það lengi.

Það eru samt breytur sem þarf að taka tillit til. Þegar húsið opnar var þá þegar kominn slatti inn, var ekki opnað í salinn á sama tíma?
Var of mörgum hleypt inn, sem skrifast þá á reynsluleysi hjá gæslu. Voru of margir miðar seldir? Voru of fáir útgangar þegar þeim lauk? Var skortur af starfsfólki? Eða einfaldlega eru fylgjendur þessa þáttar vitlausari en aðrir landsmenn(eitthvað sem ég hef reyndar haldið fram síðan þessi þáttur byrjaði)

Re: Einstaklega illa skipulagt og hættulegt peningaplokk

Sent: Sun 01. Jún 2025 11:59
af littli-Jake
Þetta er mjög dapurlegt. Það er margsinnis búið að halda svona stóra viðburði þarna. Eina sem mér dettur í hug að eitthvað hafi "klikkað" í miðasölunni.

Re: Einstaklega illa skipulagt og hættulegt peningaplokk

Sent: Sun 01. Jún 2025 12:52
af einarhr
littli-Jake skrifaði:Þetta er mjög dapurlegt. Það er margsinnis búið að halda svona stóra viðburði þarna. Eina sem mér dettur í hug að eitthvað hafi "klikkað" í miðasölunni.


Gestalistinn frekar, skilst að það hafi verið fullt af fólki í höllinni áður en að það var opnað fyrir fyrir miðahöfum

Re: Einstaklega illa skipulagt og hættulegt peningaplokk

Sent: Sun 01. Jún 2025 14:29
af rapport
Var að heyra frá fólki sem var þarna að þetta hefði verið mjög staðbundið með troðning, það hefðu verið fleiri klósett en langt á milli þeirra og það hefði ekki verið beðið um skilríki eða leitað á fólkiá leiðinni inn og fyrir vikið æla ùt um allt frá litlu krökkunum (orð 19 ára frænda)...

Re: Einstaklega illa skipulagt og hættulegt peningaplokk

Sent: Sun 01. Jún 2025 17:31
af Dúlli
Mikið magn af krökkun á svæðinu, það var hvergi athugað skilríki, hvorki við inngang né við áfengissölu og fullt af fólki náði að smygla inn áfengi.

Að auki að mínu mati var þetta bara allt of langur viðburður, hefði verið hægt að sleppa helming, fólk var orðið þreytt og margir hverjir nánast sofandi á gólfinu.